blaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 14
22 I ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 biaöÍA
Charlton - Liverpool í kvöld
1 kvöld verður einn leikur í
ensku úrvalsdeildinni á dagskrá.
Þá mætast á The Valley Charl-
ton og Liverpool. Liverpool,
sem hefur átt mjög góðu gengi
að fagna í vetur, hefur aðeins
hikstað í síðustu tveimur deild-
arleikjum. Jafntefli á heimavelli
gegn Birmingham og svo tap um
síðustu helgi fyrir Chelsea. Þetta
er nokkuð sem Rafa Benitez,
framkvæmdastjóri rauða hers-
ins, er ekki sáttur við og hann
ætlar sér og sínum mönnum
sigur í leiknum í kvöld og ekk-
ert annað.
Liverpool verður án fyrir-
liða síns, Steven Gerrard sem
er meiddur, og það má fastlega
reikna með að hann leiki heldur
ekki með um helgina þegar Li-
verpool mætir Wigan. Það er
vissulega áhyggjuefni fyrir
púlara því Gerrard hefur
leikið af stakri snilld í
vetur og hefur oftar
en ekki drifið
sitt lið áfram
og halað inn
stigum með
s t ó r 1 e i k .
Framherjar
Liverpool
hafa ekki
verið að
gera góða
hlutiað und-
anförnu.Dji-
bril Cisse
og Peter
C r o u c h _
hafa ekki
skorað í síð-
ustu sjö deild-
arleikjum liðs-
ins. Árangur
Liverpool á úti-
völlum í vetur er: 4
sigurleikir, 4 jafntefli og
3 tapleikir. Markatalan er 12-
10. Liðið er í þriðja sæti, 21 stigi á
eftir Chelsea en á tvo leiki til góða.
Þá er rauði herinn sex stigum á eftir
Man.United sem er í öðru sæti og á
Liverpool einnig tvo leiki til góða
á þá. Það má segja að aðalkeppnin
STORLEIKUR I BEINNI
CHALTON - LIVERPOOL
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR KL. 20.00
FRjÁLSI ICELANDAIR
FAOU ÞÉR ÁSKRIFT !
í SIMA 800 7000. Á WWW.ENSKI.IS j
EOA I NÆSTU VERSLUN SIMANS. '
EfíSHI %
B O LT I N A/fBr
sé um
annað sæti deildarinnar sem og
fjórða sætið en fjögur efstu sætin
gefa þátttökurétt í Meistaradeild
Evrópu á næstu leiktíð.
Charlton hefur verið eitthvert
Steven Gerrard, leikmaður Liverpool.
furðulegasta lið úrvalsdeildar-
innar í vetur. Liðið fór feyki-
vel af stað og var um tíma í
öðru til þriðja sæti. Síðan
lá leiðin niður á við svo
um munaði en undan-
farnar vikur hafa verið
ansi hreint sveiflu-
kenndar. Charlton
er óútreiknanlegt í
leikjum sínum en
liðið er i 13. sæti með
30 stig eða 15 stigum
á eftir Liverpool.
Charlton hefur
unnið 4 leiki gert 2
jafntefli og tapað sex
leikjum á heimavelli.
Markatalan er 13-16. Á
þessu sést hið undarlega
gengi Charlton á leiktíð-
inni en um tíma var liðið
það eina í úrvalsdeildinni sem
hafði ekki unnið leik á heimavelli.
Hermann Hreiðarsson og félagar
fá vissulega verðugan mótherja í
kvöld. Sjálfa Evrópumeistarana
og ef skjóta ætti á úrslit yrðu þau
1-2 fyrir púlara. Leikurinn verður
sýndur á Enska boltanum og hefst
klukkan 20.
r
GETRAUNIR
Diddi getspaki spáir í spilin
Við hér á Blaðinu verðum með umfjöllun um Evrópuseðilinn í get-
raunum á miðvikudögum og eða þriðjudögum það sem eftir lifir leik-
tíðar í boltanum. Einnig ætlum við að vera með hugmyndir fyrir ykkur
lesendur um á hvað skal tippa á Lengjunni en nýr Lengjuseðill kemur
ávallt út á þriðjudögum. Svona lítur þetta út hjá okkur þessa vikuna:
Evrópuseðiliinn leikvika 6
Fiorentina-Inter X2
Juventus-Parma 1
Palermo-Lazio 12
Ascoli-Livorno 1x2
Chievo-Sampdoria 1x2
Udinese-Reggina 1
Messina-Siena íx
Lecce-Empoli íx
Charlton-Liverpool 2
Chelsea-Everton 1
Middlesbro-Coventry 1
Stuttgart-Werder-Bremen 1x2
Gladbach-Schalke 1x2
Sparnaðarkerfi: S-4-4=144 raðir. 1.440 kr.
S-4-4-144 er sparnaðarkerfi sem kostar 1.440 krónur og líkurnar á 13
réttum er 11,1%. Þar getur þú þrítryggt 4 leiki og tvítryggt 4 leiki og fest
5 leiki. Þetta myndi kosta 9 sinnum meira á opnum seðli. Til að þetta
kerfi gangi upp þarf einn af þrítryggðu leikjunum að fara með jafntefli
eða allir með jafntefli. Eitt dæmi af mörgum til að kerfið gangi upp
er ef fyrsti þrítryggði leikurinn endar með jafntefli þá verða hinir þrír
einnig að enda með jafntefli.
Lengjan þessa vikuna hjá Didda
getspaka.
Öryggið
nr.38 Udinesa-Reggina 1
nr.26 Leverkusen-Wolfsburg 1
nr.45 Middlesboro-coventry 1
nr.35 Milan-Trevico 1
nr.44 Chelsea-Everton 1
nr.57 Sacramento Chicago 1
Heildarstuðull 4.45
Ef 1.000 krónur eru lagðar
undir og allir leikirnir eru réttir
verður vinningsuppæðin 4.450
krónur.
Langskotið
Nr.31 Fiorentina-Inter 2
Nr.29 Strasbourg-Paris SG 2
Nr.46 Real Zaracoza-Real
Madrid 2
Nr.43 Charlton-Liverpool 2
Nr.36 Palermo-Lazio 1
Nr.34 Messina-Siena 1
Heildarstuðull er 49.93
Ef 300 krónur eru lagðar undir
og allir leikirnir eru réttir verður
vinningsupphæðin þá 14.979
krónur.
Rétt er að minna á að allir
vinningar í getraunum eru skatt-
frjálsir. Gott mál það.
Adu fer sennilega til Chelsea
Einhver efnilegasti knattspyrnuleik-
maður heims í dag er bandaríski
pilturinn Freddy Adu. Piltur hefur
verið undir smásjá stórliða víðs
vegar um heim um langt skeið og
þar hefur Manchester United oftar
en ekki verið nefnt sem það félag
sem væri líklegasti lendingarstaður
Adu. í gær gerðist það svo að hið
ríka félag Chelsea kom allt í einu
upp á borðið og samkvæmt breska
blaðinu The Times er talið líklegast
til að hreppa þennan ótrúlega leik-
mann sem spilar með bandaríska
liðinu DC United.
í janúarmánuði síðastliðnum lék
hann sinn fyrsta A-landsleik fyrir
Bandaríkin og er búist við að hann
verði í leikmannahópi Bandaríkj-
anna á HM í Þýskalandi í sumar.
Kaupverð
Chelsea er
talið vera í
kringum 5
milljónir sterl-
ingspunda,
sem er jafn-
virði um 550
milljóna ís-
lenskra króna.
Sú upphæð þykir óvenju lág og er lík-
legt að hún verði mun hærri. Freddy
Adu er fæddur í Ghana en er banda-
rískur ríkisborgari og er búsettur
þar. Hann vakti fyrst athygli fyrir
einum fjórum árum fyrir ótrúlega
hæfileika sína sem og líkamlegan
styrk en hann þykir óvenju þrosk-
aður leikmaður þótt hann sé aðeins
16 ára.
MÍN SKOÐUN
ÓLAFUR RAFNSSON FORMAÐUR KKÍ
Rekstraríþróttir
Isíðasta pistli opnaði ég umræðu
um rekstrarforsendur íþrótta-
hreyfingarinnar á Islandi undir
yfirskriftinni „íþróttarekstur“ þar
sem samanburður var gerður á
forsendum markmiða íslenskrar
íþróttahreyfingar við rekstrarum-
hverfi fyrirtækja í viðskiptalífinu.
Að þessu sinni er ætlunin að færa
umfjöllunina út fyrir landstein-
ana þar sem samruni markmiða
íþrótta og viðskiptalífs hefur orðið
meiri og þar er e.t.v. meira viðeig-
andi í sumum tilvikum að fjalla um
„rekstraríþróttir“.
Það er að verða viðurkennd stað-
reynd að víða erlendis þykja mark-
mið reksturs íþróttafélaga í mörgum
tilvikum nær markmiðum fjárfesta
en ólympíuhugsjónarinnar. Nefna
má sem dæmi innreið fjárfesta í
eignarhald knattspyrnufélaga á Eng-
landi. Vissulega má segja að íþrótta-
legum árangri fylgi meiri athygli
og þar með tekjur, en engu að síður
má einnig finna merki þess að ef
valið stæði milli fjárhagshagnaðar
eða íþróttalegs árangurs þá kynni
Mammon að ráða vali. Var David
Beckham frekar seldur sem vöru-
merki en afreksmaður frá Manc-
hester United til Real Madrid?
Fyrir 6-7 árum tóku aðstandendur
nokkurra stærstu félagsliða Ítalíu,
Spánar og Frakklands í körfuknatt-
leik sig saman og drógu sig út úr
keppni meistaradeildarinnar sem
FIBA hafði byggt upp með góðum
árangri á árunum þar á undan og
stofnuðu sína eigin Evrópudeild
undir merkjum ULEB. Ástæðan
var einkum óánægja með tekjuskipt-
ingu - þeim fannst of mikið renna
til uppbyggingarstarfs hreyfingar-
innar. Nú er staðan sú að keppni
félagsliða í álfunni er klofin og stór-
sködduð - hefðbundna körfuknatt-
leikshreyfingin hefur orðið af nauð-
synlegum tekjum til uppbyggingar
grasrótarinnarog ULEB skortir veru-
lega úrræði við þróun reglukerfis,
dómara o.s.frv. og þurfa að treysta á
að sækja sér unga leikmenn til gras-
rótar þess áhugamannakerfis sem
þeir skildu eftir í sárum.
Aöilar innan knattspyrnunnar fylgj-
ast vel með þróun mála hjá ULEB
I raun var hér um að ræða alvarlegt
arðrán skammtímahagsmuna tiltek-
inna fjárfesta og eiginhagsmunaað-
ila. Þetta kerfi stendur á brauðfótum,
ekki síst þar sem verulega skortir á
samfélagslegan og pólitískan stuðn-
ing. Slíkt fælir öfluga auglýsendur
frá og takmarkar langtímasamn-
inga. En á sama tíma blæðir hefð-
bundna körfuknattleikshreyfingin
fyrir fjárskortinn. Ómögulegt er að
spá um hver þróun eða niðurstaða
verður en miklar viðræður hafa
átt sér stað á undanförnum árum
- með misjöfnum árangri. Hefur und-
irritaður verið þátttakandi í þeirri
umræðu innan stjórnar Evrópska
körfuknattleikssambandsins.
Veit ég að aðilar innan knatt-
spyrnuhreyfingarinnar fylgjast vel
með þessum málum því ósjaldan
hefur skapast orðrómur um hinn
svonefnda G14 hóp stærstu félags-
liða Evrópu. Líklega hefur þróunin
innan ULEB undanfarið fremur
fælt félögin frá aðgerðum, auk
þess að fjárhagslegur styrkur knatt-
spyrnuhreyfingarinnar hefur getað
haldið félögunum i núverandi
fyrirkomulagi.
í Bandaríkjunum er að finna
nokkuð athyglisvert samhengi fyr-
irtækjareksturs NBA deildarinnar
við grasrótarkerfi háskólakörfubolt-
ans. Virðist það dæmi ganga furðu-
vel upp í þessu landi tækifæranna.
NBA liðin eru í sjálfu sér lítið annað
en fyrirtæki sem byggja á sérleyfi
(„franchise") deildarinnar á sama
tíma og NCAA háskóladeildin
útilokar allar launagreiðslur til
leikmanna og gerir jafnvel kröfur
um námsárangur þeirra. Talið er
að NCAA sé ein af stærstu íþrótta-
einingum í heimi að því er varðar
fjárhagslega veltu - og er það út af
fyrir sig merkileg staðreynd í ljósi
umfjöllunar í nýlegum pistli um
ofurlaun leikmanna. Fjármunirnir
eru nýttir óskertir til uppbyggingar
og þróunar - og afleiðingin er rjóm-
inn af einni vinsælustu íþróttagrein
í heimi.
En almennt vil ég ítreka aðvörun-
arorð mín um ofuráherslu fjárhags-
legs ávinnings umfram íþróttalegan
árangur. Tökum öfgakennt dæmi.
Segjum sem svo að fjárfestar hefðu
keypt íslenska landsliðið í hand-
knattleik og í stað þess að tefla fram
þjóðarstolti í hverri stórkeppninni
á fætur annarri þá myndu „eig-
endur“ liðsins kjósa á sama tima
að láta eftir sæti sitt til að taka þátt
í boðsmóti á Arabíuskaga vegna 50
milljóna króna þátttökugreiðslu þar-
lendra olíufursta.
Myndi þjóðin sætta sig við það?
Varla.