blaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 19

blaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 19
blaðið MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 KVIKMYNDIR I 27 AKURtYRI { 461 4666_______KULAVIK ( 421 1170 W x KL. 6-8:15-10:30 »•'■'• KL 6-8:15-10 KL 5:30 u-'J DERAILtD FUNWITH DICK&JANE KL. 8-10:10 B.i. 16 KL.8-10 DERAILED MUNICH OLIVER TWIST AKUREYRI DERAILED OLIVER TWIST MUNICH MARCH OFTHE PENGUINS KL. 8-10:10 1* KL 5:40 11.12 KL8 B.i. 16 KL 6 MUNICH KL 5:50-9 0.1.16 CACHÉ - FAUNN KL 5:30-8-10:30 B.1.16 PRIDE & PREJUD. KL 5:30-8-10:30 KING KONG KL 6 B.1.12 RUMOR HASIT KL 10 HARRY POTTER OG ELDB. KL6-9 B.1.10 DERAILED DERAILED VIP MUNICH PRIDE & PREJUDICE OLEVER TWIST RUMOR HA5IT CRONICLES OF NARNIA KING KONG DOMINO UTLI KJÚLUNN Isl. tal KL 5:45-8-10:20 B.1.16 KL 5:45-8-10:20 KL 6-9:15 B.i. 1* KL 8-10:40 KL5 llll KL8 KL5 KL 8 11.12 KL 10:20 B.1.16 KL 4 K.EIRA KNIGHTLEY PRIDE & PREJUDICE HROKl & H l.EYPI DÓMAR ALFABAKKI KEFLAVÍK KRINGLAN IVINSJELASIA MTND FRANSKRAR HÁTfBAR SÝNO ÁFRAM VESNA FJÖLBA ÁSKORANAl HASKOLABIO ROMAN POLANSkI Qliver TwiSt FiUOSMiUVIKIHAUNAlltKbljOKANUMROAUN POlAN'iM. KYCCD A SlCILDRI SMLDHXiU CHARLLS DKJKINJ. Mltí OSRAJUVlRDLAUNAMAf ANUM SIR HN RINGUiY. «4 TILNEFNINGAR m ÓSKARSVERÐLAUNA 2006 400 kr. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR kl: 12 UM HELGINA í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI STARSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS • HAGATORGt • S. 5301919 • «nraJnsinlobio.b HADEGISBIO OSKAHS- VERÐUUNA 2000 OSKARS- VERÐLAUNA DEraILED DANIEL AUTEUIL k J JOCIJ^UÁMXCOC rtM.vii nii mi d; immA- ( H I D D E N ) BESTA MYND EYRÓPlí 200,5 ' Barnatískan í New York Plat-gullkeðjan til landsins Bresku brjálœðingarnir í hiphop sveitinni Goldie lookin chain eru sem kunnugt á leiðinni til landsins ogspila á Nasa áföstudaginn Á tískuvikunni í New York eru börnin ekki skilin útundan. f gær hélt Child Magazine stóra tískusýningu þar sem sannkölluð stjörnubörnsáuumfyrirsætustörfin. Til að mynda voru systkini söng- og leikkonunnar Lindsay Lohan mætt á sviðið sem og börn Kimoru Lee Simmons. Sá sem stal senunni var hins vegar Marquis Jackson, sonur rapparans 50 Cent. Marquis Jackson er með rapptaktana I blóðinu. Systkinin Dakota og Aliana Lohan sýndu hvort sinn stílinn. Hljómsveitin Goldie lookin chain er þekkt fyrir griðarlega skemmti- lega sviðsframkomu en sveitin hefur spilað viða um Evrópu á und- anförnum árum. Fyrsta lag sveitar- innar sem fékk alþjóðlega athygli var útvarpssmellurinn Guns don’t kill people, rappers do sem kom út á plötunni Greatest hits árið 2004. Nýlega tröllreið lagið Your missus is a nutter öldum ljósvakans en gestir Nasa fá væntanlega að heyra þessi lög og fleiri smelli. Vinningshafar með í för Sveitin lendir á klakanum á morgun en stíf dagskrá bíður þeirra við kom- una til landsins. Með í för eru tveir vinningshafar í útvarpsleik sem hefur verið í gangi í Bretlandi und- anfarnar vikur í tengslum við tón- leika sveitarinnar hérlendis. Verð- launin voru ferð til íslands, miðar á tónleikana og tækifæri til að baða sig í íslenskum heitum potti með meðlimum hljómsveitarinnar. Búið er að skipuleggja heita potts ferð fyrir hljómsveit og vinningshafa á föstudeginum og má búast við óvæntri skemmtun fyrir einhverja grunlausa sundlaugargesti. Sam- bærilegur leikur hefur verið í gangi á X-inu 977 undanfarið og munu tveir íslenskir vinningshafar skella sér í heita pottinn með hópnum. Miðasala á tónleikana fer fram í verslunum Skífunnar í Reykjavík, verslunum BT á Akureyri og Selfossi, á Event.is og á Miði.is. Miðaverð er aðeins 3.700 + miðagjald og eru að- eins örfáir miðar eftir. Húsið opnar kl. 21:00 og tónleikar hefjast 22:00. atli@bladid.net Iggy Pop til íslands Iggy Pop á tónleikum fyrir tveimur árum. Tónleikahaldararnir lofa aö (slendingar eigi eftir að veröa vitni að einhverri stórkostlegustu sviösframkomu sem sést hefur. Iggy Pop mun stíga á svið með hljóm- sveit sinni The Stooges í Laugar- dalnum i byrjun sumars. Eini mun- urinn á The Stogges nú er að Mike Watt mun spila á bassa og að tæp 40 ár eru síðan hún var stofnuð. Hljómsveitin The Stooges var stofnuð árið 1967 og var fljót að vekja athygli á sér fyrir frábæra sviðsfram- komu sem er sögð vera óbreytt þrátt fyrir aldurinn. Það er RR ehf. sem hefur lofað komu rokkaranna en fyr- irtækið hefur m.a. flutt stórhljóm- sveitir á borð við Iron Maiden og Metallica til landsins. „Við erum búin að sitja fyrir Iggy Pop í langan tíma,“ segir Halldór Kvaran, framkvæmdastjóri RR. „Þessi maður er að sjálfsögðu goð- sögn og núna þegar hann og The Stooges eru saman í einni sæng þá er þetta enn vænni fengur fyrir alla tón- listarunnendur. Iggy hefur haft sín áhrif á þróun tónlistarstefna eins og t.d. pönksins ásamt því að hellingur af böndum sem eru að spila annars konar tónlist hafa verið að taka lög eftir Iggy. I hnotskurn má því segja að við leggjum metnað okkar í að ná til landsins toppklassa erlendum listamönnum og með Iggy bætum við einni fjöðrinni enn í hattinn.“ Himinlifandi haldarar Tónleikarnir verða haldnir í Laugar- dalshöll miðvikudaginn 3. maí næst- komandi. Tveimur dögum síðar er hljómsveitin svo bókuð á tónleika í Björgvin í Noregi. „Samningurinn er frágenginn og ekkert sem stendur út af borðinu þar. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir stórkostlega hljóm- leika á Islandi með Iggy Pop & the Stoogies nema e.t.v. að verur frá öðrum sólkerfum geri innrás og her- nemi norðurhvel jarðar. Við erum himinlifandi og hlökkum mikið til. Þetta er hvalreki á fjörur allra tónlistaráhugamanna og annarra sem hafa yndi og gaman af góðri skemmtun. Við höfum fengið hrúgur af þakkarpósti frá alls konar fólki sem við þekkjum ekki neitt sem er að lýsa yfir ánægju sinni. Við erum sérstaklega ánægð með að Iggy Pop komi loksins til íslands og að fólki gefist kostur á að verða vitni að því sem það hefur bara séð á prenti áður.“ Hrátt afl Fyrsta plata The Stooges var sam- nefnd hljómsveitinni og kom út árið 1969. Hún hefur verið kölluð ein besta rokkplata sögunnar enda mark- aði hún viss tímamót á sínum tíma. Ári seinna kom svo önnur plata sveit- arinnar sem fékk nafnið Funhouse. Árið 1973 skilaði sveitin frá sér Raw Power en hún inniheldur m.a. smell- inn Search and Destroy. Raw Power reyndist síðasta plata sveitarinnar því ári seinna lagði hún upp laupana og söngvarinn Iggy Pop snéri sé að sólóferli. Nú hefur Iggy Pop, 40 árum eftir að hann byrjaði feril sinn með The Stooges, trúlega aldrei verið þekktari. Sífellt fleiri hljómsveitir nefna Iggy And The Stooges sem sína helstu áhrifavalda t.d. Nirvana, Soundgar- den, Queens Of The Stone Age, The Hives, Green Day, The Ramones, The White Stripes og meira að segja Nick Cave. Einnig hefur þótt vinsælt að gera coverlög af lögum Iggy And The Stooges og jafn ólíkar sveitir eins og Slayer, Guns n’Roses, Duran Duran, Tom Jones og REM hafa tekið upp lög eftir þá. Hvaðerað gerast? Blaðið vill endilega fjalla um atburði líðandi stundar. Sendu okkur linu á gerast@bladid.net.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.