blaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 16
241 HEILSA
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 blaðiö
Er þunglyndi eðlilegt?
ífebrúarfinna margirfyrir þungri lund, doða ogþreytu. Varla glittir í sumarið við hinn andlega sjóndeildarhring.
Innan skynsamlegra marka eru
þessar tilfinningar eðlilegar enda
ekki hægt að búast við því að við
séum uppfull af þrótti og elju allt
» árið um kring. Við erum jú hluti
af hringrás náttúrunnar líkt og
allt annað sem lifir. í gamla daga
þótti ekkert óeðlilegt að detta í
tímabundið þunglyndi enda var
þá ekki búið að finna upp lyf við
öllum tilfinningaskalanum líkt og
á þessari öld. Nóg var að fara eftir
ráðunum sem koma fram í þessari
vísu:
Eflundin þín erþreytt
Þá þessum fylgdu orðum
Gakktu með sjó ogsittu við eld
r Svo kvað völvanforðum
En hvenær er kominn tími til að
bregðast við þessum breytingum í
lundarfarinu? Hvar á að draga lín-
una á milli alvarlegs þunglyndis og
skammdegisdoða? Blaðið kom að
máli við dr. Rúnar Helga Andrason,
sálfræðing, en hann skrifaði ítarlega
' grein um þunglyndi inn á vefsíðuna
persona.is.
,Það er eðlilegt að bregðast við áföll-
um sem koma upp í lífinu," sagði
Rúnar Helgi þegar blaðamaður sló á
þráðinn. „Reyndar getur verið mjög
misjafnt hvernig fólk tekst á við
sorgir sínar og mismunandi hvert
ferðalagið í bataferlinu leiðir mann,
en það er ekki eðlilegt að það líði
margir dagar þar sem manneskjan
er þjökuð af sorg, sjái engan tilgang
með lífinu og enga leið út úr þessari
slæmu líðan. Ef þannig er komið
fyrri manni er ráðlagt að leita sér
hjálpar."
Öllu frestað
,Við getum talað um þrennt sem er
einkennandi fyrir þunglyndi:
I fyrsta lagi sú tilfinning að þetta
ástand, þessi líðan, muni aldrei lag-
ast. 1 öðru lagi er sjálfsmyndin nær
alltaf afleit - sú tilfinning að mað-
ur sé vondur pappír sem á sér ekki
viðreisnar von. í þriðja lagi verða
dagleg verkefni erfið og jafnvel óyf-
irstíganleg. Þetta eru verkefni sem
allir verða að takast á við, eins og að
borga reikninga, þvo þvott og annað
slíkt. Öllu er slegið á frest.“
Helgardrykkja og þunglyndi
Rúnar segir að helgardrykkja geti
verið ávísun á þunglyndi.
Nagalskóli Professionails
Viðurkennr nám þar sem nem-
cndur útskritast ineð alþjóðlegt
diplóma sent gefur þeim at-
vinnumöguleika í yfir 60
löndum.
Sveigjanlegt nám sem tekur
tillit til mismunandi náms-
hraða nemenda.
Urvcgum nemcndum störf
hérlendis og erlendis.
Innritun allt árið.
Heildverslunin Hjölur,
sími 588 8300.
Nánari upplýsingar á
www.profcssionails.is
„Það er mjög slæmt þegar fólk er far-
ið að skrimta út vikuna til þess eins
að geta lyft sér upp um helgar með
því að fá sér í glas. Þetta er ávísun á
vítahring sem mjög erfitt getur ver-
ið að koma sér út úr. Flestir kannast
til dæmis við að finna fyrir svoköll-
uðum „móral“ jafnvel þó þeir hafi
ekki gert neitt rangt. Að baki þess-
ari tilfinningu liggja efnafræðilegar
ástæður - áfengi hefur þessi áhrif á
heilabúið. Síendurtekin drykkja með
endurteknum „móral“ getur leitt til
þunglyndis sem síðan vindur upp á
sig eins og snjóbolti. Helgardrykkja
getur því reynst mörgum illa.“
Gakktu með sjó og sittu við eld
1 vísunni hér að ofan kemur fram að
það er gott og gagnlegt að hreyfa sig
til að sigrast á þunglyndi. Að ganga
með sjó og sitja við eld. Ganga með-
fram Ægissíðu og hugleiða andans
mál um leið og maður klárar síð-
ustu sígarettuna. Þá síðustu áður en
breyttur lífsstíll er tekinn upp. Rún-
ar Helgi segir þetta hollráð vera hár-
rétt. Gildi hreyfingar sé ómetanlegt
þegar kemur að því að vinna sig upp
úr þunglyndi.
„Því meira sem ég hef unnið með
)unglyndi því meira legg ég upp úr
)ví að virkja fólk. Hreyfing skapar
framleiðslu boðefna í heilanum og
þessi boðefni létta lundina. Líkt og
með efnafræðilegar ástæður þess
að áfengisneysla og þunglyndi fara
hönd í hönd, þá getur vond sjálfs-
mynd og neikvæðar hugsanir í eig-
in garð líka haft beinar afleiðingar
á heilastarfsemina þannig að vont
versnar. Ef maður peppar sig upp á
morgnana í stað þess að rífa sig nið-
ur þá á maður betri dag i vændum.
Ef allt er erfitt í huganum þá verður
allt í kringum okkur erfitt. Þetta
er hreinlega spurning um að skapa
sér jákvætt viðhorf," segir sálfræð-
ingurinn Rúnar Helgi Andrason að
lokum.
Hamraborg 10 • Kópavogi • sími 554-4414
Tryggvagata 28 • Reykjavík • sími 552-5005
www.snyrtistofa.is
margret@bladid.net