blaðið - 08.02.2006, Qupperneq 22
30IFÓLK
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 blaöiö
SMÁ
borgarínn
HEYRST HEFUR...
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Hann er kominn. Girðið húsið af!
Mokkur umræða hefur ver-
ið um það að undanförnu
að Samfylkingin hafi hneigst
of langt til vinstri og hafa sum-
ir gamlir Alþýðuflokksmenn
kvartað hástöfum
undan því að flokkur-
inn hafi ekki reynst
þeim sú breiða Jafn-
aðarmannahreyfing,
sem þeir vonuðust
eftir. Hafa þessi sjónarmið jafn-
vel sést hér í Blaðinu! Staða eð-
alkratans Stefáns Jóhanns
Stefánssonar bendir þó til
þess að ekki sé sú kenning
einhlít, en hann sækist eftir 3.
sætinu í prófkjörinu um næstu
helgi. Sjá margir í honum hinn
klassíska krata, sem vantað hafi
í forystulið Samfylkingarinnar í
borginni...
Stjórnmál i Hveragerði
hafa löngum þótt því
marki brennd, að því meira
sem menn vita um þau,
því minna skilja þeir. Þessa
, dagana er helsta hitamálið
áform Orra Hlöðversson-
ar, bæjarstjóra, og meirihluta
Samfylkingar og framsóknar-
manna að semja við verktaka-
fyrirtækið Eykt um byggingu
8-900 íbúða á tæplega 80 hekt-
ara svæði austan
Varmár. Margir telja
ri að með þessu afsali
’ *r Hveragerðisbær sér í
raun byggingarrétti
á svæðinu, sem um
ræðir. Fyrir þetta
ætlar Eykt að reisa fyrsta áfanga
að leikskóla á svæðinu, sem met-
inn er á 80 milljónir króna, en
landið telja menn margfalt verð-
mætara. Boðað er til borgara-
fundar í Hveragerði um málið
um næstu helgi, bæjarstjórinn
gefur sig hvergi. Hins vegar
hvísla sumir um að öðrum fram-
sóknarmanninum i bæjarstjórn
kunni að snúast hugur...
Nokkur kurr mun vera með-
al ýmissa frambjóðenda í
prófkjöri Samfylkingarinnar
vegna flokkadrátta, sem þeir
telja að séutþegar farnir að eiga
sér stað. Segja þeir opinbert
leyndarm^li að Dag-
ur B. Eggertsson
og Oddný Sturlu-
dóttir hafi gert með
sér bandalag og að
þau skori á stuðnings-
menn sína að styðja hinn kand-
ídatinn Hka. Sumum finnst það
óklókt af Degi vilji hann verða
oddviti listans, í því sæti þurfi
hann að hafa traust og stuðning
allra á listanum en ekki bara
sumra útvalinna....
s»
Mokkur umræða hefur
spunnist um tillögur
Björns Bjarnasonar dóms-
málaráðherra um myndun
svonefndrar greiningardeildar
hjá Ríkislögreglustjóra og vilja
sumir meina að þar verði vísir
að leyniþjónustu ís-
S lands. Sú umræða
'•* verður væntanlega í
hámæli þegar frum-
varpið verður lagt
fram. Af þessu hefur
hins vegar spunnist vinsæll sam-
kvæmisleikur, sem er að stinga
upp á hver væri vænlegasti yf-
irmaður slíkrar leyniþjónustu.
Útkoman er æði skrautlegur
hópur og má nefna foringja á
borð við Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins, Karl Th. Birg-
isson, fyrrverandi kollega hans
hjá Samfylkingunni, Hrafn
Jökulsson, skákfrömuð, Al-
bert Jónsson, sendiherra og Jó-
hann Benediktsson, lögreglu-
stjóra á Keflavíkurflugvelli...
4-21
© Jlm Urtger/dist. by United Media, 2001
FULLORÐINS-
SKATTURÁ
PIZZA HUT
Smáborgarinn er, eins og svo margir aðrir,
helgarforeldri og hittir því ungan gimstein
helst um helgar. Þegar það em fáar stundir
sem hægt er að njóta saman er oft reynt að
hafa þær sem skemmtilegastar og gera sér
glaðandag.
Það var einmitt það sem gerðist um
síðustu helgi og litla fjölskylda Smáborg-
arans ákvað að skella sér á Pizza Hut. Litla
fjölskyldan samanstendur sem sagt bara
af Smáborgaranum, maka hans og barn-
inu. Smáborgarinn hefur reyndar oft áður
komiö á Pizza Hut en þó ekki í langan tíma
en í þetta skiptið var það helst ísbarinn sem
heillaði enda barn með í för.
Gott og vel, Smáborgarinn og fylgifiskar
pöntuðu sér stóran skammt af hvítlauks-
brauði, z litlar pönnupizzur (9 tommur
hver), spaghetti af bamamatseðlinum og
gos á línuna. Síðan varð ísinn vitanlega að
fylgja með þannig að pantaðir voru þrír.
Eftir dágóða bið kom STÓR skammtur af
hvrtlauksbrauði sem var heldur Irtill, fjórar
sneiðar. Ætli lítill skammtur sé þá bara tvær
sneiðar? Svo komu pizzurnar tvær en gerð
voru mistök þannig að pizza Smáborgarans
var ekki tilbúin en fjölskyldan fékk aðra
pízzu í skaðabætur, sér að kostnaðarlausu.
Smáborgarinn gerði þau mistök að brta í
þá pizzu og uppgötvaði, sértil hryllings, að
sú mæta pizza var með gráðosti. Þannig
að Smáborgarinn horfði bara á hina borða
á meðan hann beið eftir sinni réttu pizzu,
sem kom um það leyti sem fylgrfiskarnir
voruaðfásérís.
Þjónninn kom með þrjár litlar dollur und-
ir (sinn, allar af sömu stærð og vitanlega var
þotið á ísbarinn. Isinn var settur í sirálina
og skreyttur með ískexum og sósum, mjög
ótæpilega hjá yngsta meðliminum. Þetta
var ágætis matur og Smáborgarinn stóð
upp sáttur.....þar til makinn borgaði reikn-
inginn. Rúmlega 6.000 þúsund krónuri!!!
Öll ánægjan hvarfeins og dögg fyrir sólu og
Smáborgarinn gat ekki annað en pirrast yfir
verðlaginu. Þvílikt og annað eins okur.
Þrátt fyrir að Smáborgarinn og maki
hans geti leyft sér þetta endrum og eins þá
finnst honum þvílík synd að eyða vikumat-
arpeningum itveggja klukkustunda máltíð.
Hver ertilgangurinn, ef ánægjan yfirágætis
máltíð flýgur út um gluggann um leið og ok-
urreikningurinn kemur. Auk þess sem Smá-
borgarinn er enn að klóra sér í hausnum yfir
því að ís bamsins kostaði rúmlega zoo krón-
urá meðan fullorðna fólkið borgaði nánast
helmingi meira fyrir sinn ís, þrátt fyrir að
allir ísarnir þrír væru af nákvæmlega sömu
stærðoggerð.
Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi
Saknar þú Þjóðarsálarinnar?
„Ég vil vera í tengslum við fólkið. Ég veit það frá gamalli tíð hve gott þetta
er í undanfara kosninga. Maður var í þessu í gamla daga að fá til sín stjórn-
málamenn til þess að sitja fyrir svörum hlustenda. Nú er ekki svo mikið
gert af því eftir að ég hætti. Ég tók mig því til og í stað þess að birta eina
heilsíðu með sætri mynd af sjálfum mér einhvers staðar ákvað ég að gefa
fólki færi á að ná tali af mér.“
Réðist að Jolie
Óvenju trúr aðdáandi Jennifer Aniston
gerði sér lítið fyrir og réðist að Angelinu
Jolie fyrir skömmu, en eins og flestir vita skildi
Brad Pitt við Aniston til að byrja með Jolie.
Reiði aðdáandinn, sem er kona, var að borða á
veitingastað í Berlín í Þýskalandi þegar hún
sá skötuhjúin, Jolie og Pitt, sitja við borð
rétt hjá. Aðdáandinn gjörsamlega tromp-
aðist og hljóp að parinu og öskraði: „Hvar
er hjónabandsdjöfullinn Angelina?"
Lífverðir stjörnuparsins héldu aðdá-
andanum á meðan þau drifu sig út.
Longoría ekki
trúlofuð
Leikkonan kynþokkafulla Eva Longoria neitar öll-
um sögusögnum um að hún og kærastinn hennar,
körfuboltastjarnan Tony Parker, séu trúlofuð
og segir allt of snemmt að hugsa um brúð-
kaup strax. Longoria var áður gift leikaran-
um Tyler Christopher en eftir skilnaðinn
var hún staðráðin í að gifta sig ekki of
fljótt aftur. „Trúið mér, ég myndi láta alla
vita,“ sagði Longoria aðspurð um málið.
„Við höfum það fínt, leyfið okkur að
gera þetta á okkar eigin hraða.“
Pamela ráðleggur Love
1 —
..
Kynbomban Pamela Anderson ráðleggur vinkonu sinni,
Courtney Love, að yfirgefa Ameríku til að losa sig við eitur-
lyfjafíknina í eitt skipti fyrir öll. Love var
nýlega sleppt úr stofufangelsi en Ander-
son er viss um að sviðsljósið í Banda-
ríkjunum, nánar tiltekið í Holly wood,
sé slæmt fyrir hana og hún verði
að drífa sig burt. „Hún verður
að dvelja á eyjunna St. Lucia
í Karabíska hafinu í hálft ár,
,sagði Pamela við fjölmiðla
ytra. „Þannig getur hún
sigrast á vandamálum
sínum.“
Stefán hefur ákveöið að halda opna simatíma á Útvarpi Sögu f aðdraganda prófkjörs Samfylkingarinnar.