blaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 1
Sérblað um Formúlu 1 íylgir Blaðinu í dag SÍÐUR 15TIL23 ■ ERLENT Tony Blair gagn- rýndur vegna um- mæla um almættið Segir að Guð muni dæma ákvörðun um innrás í frak ■ ÍÞRÓTTIR Tók Edgar Davids létt í bekkpressu Emil Hallfreðsson ræðir um lífið í atvinnu- mennskunni | SÍÐA 30 sphs 550 2000 | www.sph.is Alltaf að vinna? Kynntu þér Vildarþjónustu fyrirtækja Erfðaprinsinn Árni hættir afskiptum af stjórnmálum Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, dregur sig út úr stjórnmálum. Jón Kristjánsson verður félagsmálaráðherra en Siv Friðleifsdóttir kemur í heilbrigðisráðuneytið. Árni Magnússon, félagsmálaráð- herra, hyggst hætta afskiptum af stjórnmálum og mun láta af ráð- herraembætti og þingmennsku. Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, mun taka við félagsmálaráðuneyt- inu, en í stól heilbrigðisráðherra sest Siv Friðleifsdóttir, þingmaður og fyrrverandi umhverfisráðherra. „Ég hef á síðustu vikum farið í gegnum ákveðið endurmat á mínu lífi og minni stöðu og tekið ákvörðun um það að hverfa af þeim opinbera vettvangi, sem pólit- íkin er, með þeim atgangi og áreiti, sem henni fylgir. Ég ákvað fyrir fá- einum vikum með sjálfum mér og fjölskyldu minni að fara ekki fram í næstu kosningum. Þegar þannig er komið finnst mér heiðarlegast að standa upp og víkja fyrir fólki, sem hefur brennandi áhuga á pólitíkinni og ætlar sér stóra hluti þar,“ sagði Árni á blaðamannafundi í anddyri Alþingis eftir þingflokksfund fram- sóknarmanna, sem boðað var til með skömmum fyrirvara um fimm- leytið í gær. Árni sagði að um persónulega ákvörðun væri að ræða, sem hann hefði tekið með hagsmuni sína og sinna nánustu að leiðarljósi. Eigin- kona Árna hefur átt við veikindi að stríða að undanförnu. Árni mun taka við starfi hjá íslandsbanka innan skamms. Brey tingþessi á ráðherraliði Fram- sóknarflokksins mun eiga sér stað á ríkisráðsfundi, sem haldinn verður að Bessastöðum á morgun. Hall- dór Ásgrímsson, forsætisráðherra, sagði að heilbrigðisráðuneytið væri afar krefjandi ráðuneyti og að hann treysti Siv fyllilega til þess að takast á við hin brýnu verkefni, sem þar biðu. Framsóknarmenn hafa bundið miklar vonir við Árna Magnússon og hefur jafnan verið rætt um hann sem erfðaprins flokksins, sem tekið fæti við forystu hans þegar Halldór sgrímsson, formaður Framsóknar- flokksins, dregur sig í hlé. Við brott- hvarf hans má ætla að spenna auk- ist í flokknum á ný um hugsanlega arftaka Halldórs. Siv Friðleifsdóttir hefur ekki dregið dul á metnað sinn í þá veru og sögðu þingmenn flokks- ins í samtölum við Blaðið í gær að nú hefði hún fengið kjörið tækifæri til þess að sýna hvað í henni byggi. Halldór Ásgrímsson vék óbeint að þessu á blaðamannafundinum í gær, sagði að Siv hefði fengið nokkra hvíld og kæmi hress til leiks á ný. Öllum væri ljóst að skoð- anakannanir að undanförnu hefðu ekki verið framsóknarmönnum hagfelldar, en þeir ætluðu sér að gera stóra hluti í kosningunum á komandi ári. Árni Magnússon, fráfarandi félagsmálaráðherra, og Halldór Ásgrimsson, forsætisráðherra, ræða við fulltrúa fjölmiðla í Alþingishúsinu síðdegis í gær. BlaÖið/SteinarHugi Reynt að lægja öldur „Hrókeringar innan Framsókn- arflokksins hafa legið í loftinu um nokkurt skeið,“ segir Stein- grímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna um mannabreyt- ingar í ríkisstjórninni. „Það er jafnframt ljóst að það hafa verið viðsjár á framsóknar- heimilinu. Þetta er kannski til marks um að það eigi eitthvað að reyna að lægja öldur og skapa frið- vænlegra ástand þó það kunni að vera persónulegar ástæður Árna sem settu þetta allt af stað. Svona utan frá séð lítur út fyrir að sú ráðstöfun Halldórs Ásgrímssonar á sínum tíma að setja Siv Friðleifsdóttur, sem er oddviti flokksins í fjölmennasta kjördæmi landsins, út úr ríkis- stjórninni hafi verið ansi dýr- keypt honum. Ég leyfi mér hins vegar að efast um að þetta dragi langt í að leysa hinn mikla vanda floldcsins,“ segir Steingrímur. En er erfðaprinsinn búinn að yfirgefa Framsóknarflokkinn? „Þetta sýnir hversu varhuga- verðar bollaleggingar um fram- tíðarleiðtogaefni stjórnamála- flokka eru. Ég sá ekki að Guðni Ágústsson eða Siv myndu taka því þegjandi að inn kæmi nýr maður úr spunadoktorahirð Hall- dórs og yrði sjálfkrafa formaður án nokkurrar baráttu.“ FRJALS IBUÐALAN Okkar markmið er aö veita framúrskarandi þjónustu á sanngjörnum kjörum. Komdu til okkar i Lágmúla 6, hringdu í 540 5000 eöa sendu okkur póst á frjalsi@frjalsi.is. Viö viljum aö heima sé best! FRJALSI

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.