blaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 27
blaðið MÁNUDAGUR 6. MARS 2006
FÓLK I 39
Fyrir fólkið i landinu
SkjárEinn blés til stórsóknar í síð-
asta mánuði þegar hann hleypti
af stokkunum nýjum þætti, 6 til
sjö, með þeim Felix Bergssyni og
Guðrúnu Gunnarsdóttur.
„Það hefur gengið prýðilega að
koma þáttunum af stað,“ segir Felix.
„Við njótum þess að vinna saman
og ekki skemmir að vera með Ragn-
heiði Thorsteinson sem „pródúsent".
Við unnum fyrst saman á RÚV þeg-
ar hún var upptökustjóri Stundar-
innar okkar þegar við Gunni [Helga-
son] sáum um þáttinn."
Engir byrjunarörðugleikar?
„Jújú, alltaf eitthvað en vonandi er
það ekki of áberandi. Við erum
svolítið að henda okkur út í djúpu
laugina en ég treysti Guðrúnu full-
komlega. Hún hefur manna mesta
reynslu af svona þáttum.“
H\ernig er að vinna með Guðrúnu?
„Frábært. Algjörlega frábært. Við
hlæjum mikið. Maður hlakkar til
að fara í vinnuna á morgnana. Það
er alltaf góð tilfinning.“
Saknarþú Gunna?
„Ertu þá að tala um Gunna Helga eða
Dr. Gunna? Ég sakna Gunna Helga
alltaf þegar við erum ekki að vinna
saman. Hins vegar erum við alltaf
með eitthvað í gangi og nú erum við
að undirbúa nýja plötu og skemmt-
anir sumarsins. Það verður ekki leið-
inlegt. Ég sakna líka Dr. Gunna en
við erum líka að undirbúa verkefni
fyrir næsta ár, þannig að hann er
ekki langt undan.“
Góð ráð í matargerð
6 til sjö er sannkallaður fjölskyldu-
þáttur enda sýndur á besta tíma,
annað hvort þegar fjölskyldan er ný-
komin heim frá vinnu eða á leið til
vinnu á morgnana.
„Við ætlum að vera á mannlegu
nótunum og skoða það sem viðkem-
ur fjölskyldunni og heimilinu, upp-
eldið, garðinn, eldhúsið og svo fram-
vegis,“ segir Felix. „Þetta á að vera
notalegur þáttur og skemmtilegur
sem þú getur hugsað þér að hafa í
bakgrunninum á meðan fjölskyld-
an kemur saman eftir langan vinnu-
dag. Við ætlum t.d. að koma með
hugmyndir að kvöldmat og bjóða
fólki að elda með okkur og svo gef-
um við góð ráð.
Þátturinn er enn að mótast. Við
munum t.d. alltaf undirbúa fína
helgarmatinn á fimmtudögum en
annað er nokkuð ómótað. Menn
verða bara að fylgjast með frá byrj-
un.“
Jákvæð samkeppni
6 til sjö ræðst ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur. Hann er á sama
tíma og eitt helsta sjónvarpsefni
Stöðvar 2, kvöldfréttir NFS. „Sam-
keppni er bara af hinu góða. Við
erum óhrædd og ætlum að marka
okkur pláss á sjónvarpsmarkaði.“
Fyrir hverja erþátturinn?
„Vonandi alla fjölskylduna. Okkur
þætti ekki síður vænt um ef eldra
fólk gæti hugsað sér að njóta þátt-
arins með okkur. Ég held að þáttur
eins og 6 til sjö geti snert við fólki á
öllum aldri.
Þeir sem vilja koma hugmyndum
á framfæri við okkur mega endilega
skrifa okkur á 6tilsjo@si.is eða á fel-
ix@si.is. Þetta er þáttur um fólkið í
landinu og við viljum endilega að
það hafi eitthvað um umfjöllunar-
efnið að segja.“
Þátturinn er á dagskrá SkjásEins
alla virka daga milli klukkan 18
og 19. Hann er svo endursýndur á
morgnana fyrir fólk sem er að koma
sér til vinnu.
Felix Bergsson og Guðrún Gunnarsdóttir.
Ég held að þáttur eins og 6 til sjö geti
snert við fólki á öllum aldri
Skilafrestur
er til 21. mars
Allar upplýsingar á
Skattframtal 2006
Hægt er að nálgast leiðbeiníngar á neðantöldum stöðum
Reykjavfk
Skattstofan í Reykjavík
Bensínstöðvar í Reykjavík
Vesturland
Skattstofan á Akranesi
Sýslumannsskrifstofur Búðardal,
Borgarnesi, Stykkishólmi og Ólafsvik
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
Vestfirðir
Skattstofan á (saflrði
Sýslumannsskrifstofur í Bolungarvik
og Hólmavlk
Bæjar- og hreppsskrifstofur
Reykhólahrepps, Tálknafjarðarhrepps,
Vesturbyggðar, Súðavíkurhreppur og
Kaldrananeshrepps
Sparisjóður Vestfirðinga; á Bíldudal,
Flateyri og Þingeyri
Norðurland vestra
Skattstofan á Siglufiröi
Umboðsmenn:
Sigurbjörn Bogason, Sauðárkróki
Stefán Hafsteinsson, Blönduósi
Páll Sigurðsson, Hvammstanga
Norðurland eystra
Skattstofan á Akureyri
Umboðsmenn, bæjar- og
hreppsskrifstofur
Austurland
Skattstofan á Egilsstöðum
Verslunin Kauptún á Bakkafirði og
Vopnafirði
Essoskálinn á Breiðdalsvlk
Samkaup á Djúpavogi
Bókhald GG á Fáskrúðsfirði
Sýslumannsskristofur Seyðisfirði,
Eskifirði, Neskaupsstað og Hornafirði
Suðurland
Skattstofan á Hellu
Bæjar- og hreppsskrifstofur
Skaftárhrepps, Ásahrepps, Rangárþings
eystra, Gaulverjabæjarhrepps, Hraun-
gerðishrepps, Villingarholtshrepps,
Hrunamannahrepps, Grímsnes- og
Grafningshrepps, ölfuss, Skeiða- og
Gnúpverjahrepps og Bláskógabyggðar
Skrifstofa VÍS, Hveragerði,
Skrifstofa VlS, Arborg (Selfossi)
Vestmannaeyjar
Skattstofa og skrifstofa sýslumanns
Reykjanes
Skattstofan í Hafnarfirði
Bæjar- og hreppsskrifstofur
Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ,
Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði,
Reykjanesbæ, Sandgerðisbæ,
Grlndavík, Garði, Vogum og
Álftanesi
Sýslumannsskrifstofur Hafnarfirði,
Kópavogi og Keflavík
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Benslnstöðvar I Hafnarfirði,
Garöabæ, Kópavogi og á
Seltjarnarnesi
Leiðbeiníngar
hafa nú verið færðar I nýjan búning og eru afar
aðgengilegar til uppflettingar og stuðnings við
framtalsgerð á vefnum. Því hefur verið dregið
úr heimsendingu prentaðra leiðbeininga og
aðeins þeir sem töldu fram á pappír í fyrra fá
þær sendar heim.
Prentaðar leiðbeiningar má nálgast hjá skatt-
stjórum, umboðsmönnum þeirra, á ýmsum
sýslumanns- og bæjarskrifstofum og á bensín-
stöðvum á höfuðborgarsvæöinu (sjá nánar í
lista hér að neðan og á rsk.is).
Framtalsaðstoð
er veitt í síma 511-2250 milli kl. 9 og 16.
Frá 15.-31. mars verður sú þjónusta einnig
veitt utan dagtíma, þ.e. til kl. 22 á virkum
dögum og kl. 12-19 um helgar.
Framtal á vefnum
hefur verið opnað. Allir eiga að hafa fengið
veflykil sendan eða eiga varanlegan veflykil
frá fyrri árum. Sækja má um nýjan hafi hann
gleymst eða týnst.
Ný þjónusta
Skattyfirvöld hafa nú opnað fyrir þann
möguleika aö flytja skattaupplýsingar raf-
rænt úr vefbanka yfir á framtalið. (slands-
banki býður sínum viðskiptamönnum upp á
þessa þjónustu fyrstur banka, en búist er
við að aðrir viðskiptabankar fylgi í kjölfarið.
Skattframtöl
hafa verið borin út til þeirra sem ekki
afþökkuðu framtal á pappír við síðustu
framtalsgerð.