blaðið - 06.03.2006, Síða 8
8 I ERÍENDJiR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 blaöið
Korniö senn á
þrotum í Zimbabwe
Aðeins eru til um tveggja vikna
birgðir af korni í Afrikuríkinu Zimb-
abwe og hefur það ástand mála leitt
Hvetur Hamas
til að hundsa
eldri samninga
Ayman al-Zawahiri, næstráð-
andi hryðjuverkaleiðtogans Os-
ama Bin Laden, hvatti Hamas-
hreyfinguna á laugardagskvöld
til að hundsa eldri friðarsamn-
inga Palestínumanna og Israela.
I ávarpi sem al-Jazeera
sjónvarpsstöðin sýndi lýsti
al-Zawahiri því yfir að Hamas,
sem nú er komin til valda í
Palestínu, bæri að halda áfram
vopnaðri baráttu gegn ísraelum.
„Enginn Palestínumaður hefur
rétt á að gefa eftir eitt sandkorn
palestínskrar jarðar," sagði
al-Zawahiri m.a.. Hvatti hann
múslima í Palestínu, írak og
víðar til varfærni í samskiptum
við Bandaríkjamenn og leiðast
ekki til þátttöku í þeim „pólit-
ísku ferlum“ sem Bandaríkja-
stjórn reyndi nú að hefja víða
um heim. Vísaði hann með
þessu til kosninga og breyt-
inga í átt til lýðræðis sem víða
hafa átt sér stað í arabaríkjum
á undanliðnum misserum.
Al-Zawahiri vék sérstaklega
að samningum þeim sem
fyrri ráðamenn í Palestínu
hafa gert við ísraela. Sagði
hann þá gjörninga fela I sér
uppgjöf Palestínumanna,
Hamas-hreyfingunni bæri
því að hafna þeim og halda
áfram vopnaðri baráttu sinni.
Mahmoud al-Zahar, þing-
maður Hamas-samtakanna,
lýsti því yfir að hann væri ósam-
mála yfirlýsingum al-Zawahiris
og neitaði því að hreyfingin
hefði „gengið í gildru Banda-
ríkjamanna" er ákveðið var að
Hamas tæki þátt f þingkosning-
unum í Palestínu. Þeim lauk
með stórsigri hreyfingarinnar
en Israelar hafa neitað öllum
samskiptum við hina nýju
ráðamenn í Palestínu með
vísun til þess að Hamas stefni
að því að uppræta ríki gyðinga.
til þess að fátækir íbúar landsins
hafa ekki lengur ráð á að kaupa
brauð.
Verð á brauði hefur á einni viku
hækkað um 30% í Zimbabwe og efna-
hagsástandið verður sífellt verra, að
sögn breska ríkisútvarpsins, BBC.
Er nú svo komið að verðbólgan mæl-
ist rúmlega 600%.
Robert Mugabe, forseti Zimbabwe,
sem er í raun einráður í landinu,
hefur afrekað að leggja efnahaginn
í rúst á aðeins nokkrum árum. Árið
2000 hóf hann herferð gegn hvítum
bændum i landinu og hafa jarðir fjöl-
margra þeirra verið teknar eignar-
námi og þeir flæmdir á brott. Þetta
hefur haft í för með sér hrun land-
búnaðarframleiðslunnar. Mugabe
forseti neitar því að stjórnarstefn-
unni sé um að kenna og fullyrðir
að miklir þurrkar hafi kallað þessar
hörmungar yfir þjóðina.
BBC hefur heimildir fyrir því að ör-
yggissveitum stjórnvalda hafi verið
skipað í viðbragðsstöðu til að bregð-
ast við leiði örbirgðin og óánægjan
til mótmæla og uppþota. Stjórnar-
andstaðan í landinu segir ástandið
mjög alvarlegt og ljóst sé að þjóðin
fái ekki þolað öllu meira. „Ástandið
er skelfilegt sökum skortsins,“ segir
Arthur Mutambara, leiðtogi MDC-
hreyfingar stjórnarandstöðunnar, í
samtali við BBC. „Eldsneyti er ekki
fáanlegt og neysluvarningur er svo
dýr að almenningur hefur ekki ráð
á að kaupa hann. Atvinnuleysið er
80% og verðbólgan 600%,“ bætir
hann við.
Alþjóðlegar hjálparstofnanir segja
að um 4,3 milljónir manna þurfi á
matvælaaðstoð að halda í Zimbabwe
á næstu mánuðum en uppskera
verður næst í maí. Um 13 milljónir
manna búa í landinu.
Robert Mugabe, forseti Zimbabwe
m Reuters
Háu bensínverði mótmælt í Irak
Fjöldi fólk kom saman I bænum Kut, sem er um 170 kílómetra suður af Bagdad, höfu-
borg (raks, í gær tii að mótmæla háu bensínverði í landinu. Krafðist fólkið þess að
stjórnvöld lækkuðu verðið án tafar. Þá hefur verð á gasi einnig hækkað mikið i (rak að
undanförnu og kröfðust mótmælendur þess einnig að brugðist yrði við þeim vanda.
Við gröf Khomeinis
(ranskar konur söfnuðust í gær saman við grafhýsi Ayatollah Ruhollah Khomeini, fyrrum trúarleiðtoga landsins, í höfuðborginni Tehre-
an. Konurnar lýstu yfir stuðningi við kjarnorkuáform stjórnvalda. Á Vesturlöndum telja margir að klerkastjórnin I (ran hyggist koma
sér upp gereyðingarvopnum en ráðamenn landsins segja tilganginn með kjarnorkuáformunum eingöngu friðsamlegan; ætlunin sé að
framleiða orku í borgaralegum tilgangi. Ayatollah Khomeini lést árið 1989 eftir að hafa rfkt í (ran í tíu ár. Hann var leiðtogi byltingarinn-
ar í landinu árið 1979 sem lauk með stofnun íslamsks lýðveldis.
Segir að Guð muni kyeða upp
dóm um innrásina í írak
Tony Blair, forsœtisráðherra Bretlands, er harðlega gagnrýndur
vegna ummcela um almcettið og innrás handamanna í írak.
Tony Blair forsætisráðherra Bretlands sætir ámæli fyrir yfirlýsingar um innrásina í (rak.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sætir nú harðri gagnrýni
vegna ummæla sem hann lét falla
þess efnis að Guð muni á hinsta
degi kveða upp dóm yfir þeirri
ákvörðun hans að ráðast inn í írak.
Andstæðingar innrásarinnar lýsa
yfir furðu sinni sökum ummæla
forsætisráðherrans og foreldrar sem
misst hafa syni sína í írak segja þau
ósmekkleg.
Blair sagði í viðtali við sjónvarps-
manninn Michael Parkinsson á laug-
ardag að ákvörðun um að taka þátt i
innrásinni í írak hefði verið sér afar
erfið. „Þegar maður stendur frammi
fyrir slíkri ákvörðun hafa sumar
þessara ákvarðana verið mjög erf-
iðar, sérstaklega vegna þess að eins
og þú veist... er um Iíf fólks að tefla
og í einhverjum tilfellum dauða
þess,“ sagði Blair orðrétt. „Eina
leiðin til að taka slíka ákvörðun er
að reyna að gera hið rétta sem sam-
viskan býður. Ég tel að ef menn hafa
trú á slíkum hlutum þá geri þeir
sér grein fyrir að annað fólk leggur
mat á slíkt... og ef menn trúa á Guð
þá leggur Guð einnig mat á slíkt,“
sagði Blair í viðtalinu. Er hann var
spurður hvort hann hefði beðið til
Guðs eftir handleiðslu í Iraksmál-
inu kvaðst forsætisráðherrann, sem
er maður kristinn og trúrækinn,
ekki vilja ræða það. Við allar erfiðar
ákvarðanir yrðu menn að treysta á
samvisku sína.
Reg Keys, sem bauð sig fram í
kjördæmi Blair í þingkosningunum
í fyrra og missti son sinn í átökum
í írak, fordæmdi ummæli forsæt-
isráðherrans. Ömurlegt væri að
ráðamenn skyldu blanda saman
trú og innrásinni í írak. „Það fólk
sem kveða mun upp dóm yfir Blair
verður ekki Guð. Það verða fjöl-
skyldur fallinna breskra hermanna
og það verða fjölskyldur saklausra
íraka sem hefur verið slátrað í þessu
gjörsamlega óþarfa stríði,“ sagði
Keys. Hann er stofnandi samtaka
er nefnast Herfjölskyldur gegn stríð-
inu (Military Families Against The
War) en trylltur lýður myrti son
hans í bænum Majar Al-Kabin i júní-
mánuði árið 2003.
Keys sakaði Blair um að fara að
dæmi George W. Bush Bandaríkjafor-
seta en haft hefur verið eftir honum
að hann hafi ákveðið að ráðast inn
í írak og Afganistan vegna þess að
það hafi verið vilji Guðs. „Erum við
að horfa á 100 líkkistur sem fluttar
eru til Bretlands vegna þess að Guð
sagði honum [Blair] að hefja stríð?“
spurði Keys. Rose Gentle, sem
missti son sinn í borginni Basra í
Suður-írak árið 2004, sagði að sann-
kristinn maður hefði aldrei hafið
Iraksstríðið. „Sannast sagna hef ég
viðbjóð á þessum ummælum. Þau
eru brandari,“ sagði hún.
Dr. Evan Harris, þingmaður Frjáls-
lynda demókrataflokksins, lýsti yfir
því að ummæli forsætisráðherrans
væru „galin“ og hvatti stjórnmála-
menn til að vísa ekki til almættisins
í störfum sínum. „Stjórnmálakerfi
okkar byggist á ákvörðunum sem
kjörnir og ábyrgir stjórnmálamenn
taka en ekki guðir þeirra eða ein-
hverra annarra “
Fréttaskýrandi breska ríkisút-
varpsins, BBC, Terry Stiazny, sagði
að ummæli Blair væru þau fyrstu
sem frá honum bærust í þá veru
að trú hefði haft einhver áhrif á þá
ákvörðun hans að taka þátt i innrás
Bandaríkjamanna í írak.