blaðið - 06.03.2006, Síða 10
10 I SNYRTIVÖRUR
MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 blaAÍÖ
Hrukkukrem sem innihalda kóensím
Q-iofrá Nivea er sagt minnka hrukkur og koma í vegfyrir að nýjar myndist.
,Q-io er kóensím sem gegnir lykil-
hlutverki við að umbreyta orku lík-
amans og koma henni á það form
að frumur geti nýtt sér það til upp-
byggingar," segir Ólafur Gylfason,
framkvæmdastjóri Beiersdorf á
fslandi. Nivea framleiðir snyrtivöru-
linu úr Q-io kóensímum sem gerir
það að verkum að orka og kollagenfr-
amleiðsla húðarinnar eykst. Nivea
hefur einkaleyfi fyrir að nota eina
Q-io ensímið sem er líkt því sem lík-
aminn framleiðir en það er framleitt
á rannsóknarstofu.
„Nivea framleiðir Q-io andlits- og
augnkrem fyrir konur og karla. Til
viðbótar selur Nivea andlistkrem
án ilmefna sem er notað fyrir við-
kvæma húð.“
Ólafur segir að tiltölulega fáar
kvartanir berist vegna kremanna
frá Nivea þó alltaf geti komið upp
ofnæmiseinkenni. „Það er mjög góð
regla þegar ný krem eru notuð að
setja kremið i olnbogabót-
ina. Ef roði kemur í ljós
getur það verið merki
þess að viðkomandi
þoli ekki kremið.
Líkaminn minnkar
framleiðslu kóensíms
um 25 ára aldur en
með Q-10 kremunum
getur fólk haldið
húðinni ungri. Það
hefur einnig verið
sýnt fram á að Q-10
minnki hrukkur og
komi í veg fyrir að
nýjar myndist. f Q-10
línunni eru framleidd
sérstök augnkrem en þar er húðin
viðkvæmari og þynnri og því þarf
formúlan að vera öðruvísi fyrir
svæðið í kringum augun.
f Nivea visase linunni er einnig
hægt að fá krem (anti eye shadow)
sem er gott fyrir þrota í kringum
augun. Q-10 kvenlínan kom á mark-
aðinn árið 1998 en herralínan kom á
markað fyrir tveimur árum síðan.“
Ólafur segir að þeir sem hafi
áhyggjur af ótímabærri öldrun ættu
að nota krem frá Nivea því hér séu á
ferðinni krem sem hafa verið í þróun
lengi. „Nivea kom fyrst á markað
árið 1882 og það hefur stöðugt verið
unnið að nýjungum á kremunum
síðan.“
h ugrun@bladid. net
Fjólublár
draumur á
íslensku vori
Að skella maskara á augnhárin
er líklega sú förðunaraðferð sem
hefur hvað mest áhrif á útlitið og
þó konur noti einungis maskara
getur þessi takmarkaða snyrtivöru-
notkun skipt sköpum. Maskarar
eru mjög mismunandi, allt eftir
því hvort konur vilja þykkja eða
lengja augnhárin, jafnvel bæði, og
litaðir maskarar hafa notið aukinna
vinsælda síðustu misserin. Litaðir
maskarar geta lifgað mjög upp á
förðun þeirra sem nota einungis
maskara og gefið augniitnum
aukna dýpt. Þessi fjólublái cils á cils
maskari frá Chanel tónar fallega
við íslenska vorið, eins og draumur,
sem blikkar á hvörmum. f þessum
maskara eru mismunandi vaxgerðir,
hrísgrjónavax, bíflugnavax og
carnauba vax sem auðvelda mótun
augnháranna og er sérlega fallegur.
Hótel Ork - ATVINNA
SSL..
Óskum eftir að ráða í eftirfarandi störf:
Næturvördur:
100% starf í gestamóttöku auk annara tilfallandi
verkefna. Vinnutími ffá klukkan 19.00 til 07.00,
viku í senn og frí í eina viku. Tungumálakunnátta
nauðsynleg, jákvæð framkoma og þjónustulund.
Reynsla af bókunarkerfum æskileg.
Tölvukunnátta nauðsynleg.
Adstoðarfólk í eldhús og veitingasal:
Hlutastörf, en möguleiki á mikilli vinnu næstu mánuðina.
Þjónustulund og jákvætt hugarfar.
Umsóknir skulu sendast Sigurði hótelstjóra
á netfangið sigurdur@hotel-ork.is og veitir hann
nánari upplýsingar í síma 483 4700.
Hótel Örk
Hveragerði
www.hotel-ork.is
info@hotel-ork.is
HÓTEL ÖRK
Fundir - Ráðstefnur - Veislur - Árshátíðir
meetings@hotel-ork.is
Hitabreytmgar draga
úr raka húðttrítmttr
í veðrabrigðum að vori og hausti,
þegar kólnar og hlýnar til skiptis,
þarf að huga vel að rakagjöf húðar-
innar. Margir kannast við þurrk í
húðinni á þessum árstíma en þurr
og köld veðráttan dregur úr raka
hennar. Það er mikilvægt að endur-
nýja þann raka sem tapast og bera
vel af rakagefandi kremum á andlit
og háls auk þess sem almenn vatns-
drykkja er nauðsynleg til að við-
halda góðu rakastigi húðarinnar.
Snyrtivörufyrirtækin leita sífellt
leiða til að bæta rakakremin og
Blaðið kannaði virkni eftirfarandi
krema:
Vatnsveita um húðina
Hydraction kremið frá Dior. er
hannað til að auka á rakadreifingu
milli húðfruma. Það eykur einnig á
rakadrægni milli húðlaga og eykur
á mýkt húðarinnar um leið og það
er borið á. Það verður strax sýnileg
breyting á þurri húð og til lengri
tíma gefur notkun þess húðinni
fallegan blæ. Hydraction kemur í
nokkrum gerðum fyrir mismun-
andi húðgerðir og hefur mildan og
þægilegan ilm.
Nærandi næturraki
Resilience Lift Extreme frá Estée
Lauder eykur á raka húðarinnar
yfir nóttina og hjálpar henni að
jafna sig á margvíslegu áreiti eins
og álagi, sólargeislun og ofþornun.
Kremið eykur eðlilega kollagenfr-
amleiðslu líkamans og gefur húð-
inni æskublæ, lyftingu og ljóma.
Resilience Lift Extreme hentar
fyrir konur á miðjum aldri en þá
hefur dregið úr náttúrulegri getu
húðarinnar til endurnýjunnar og
rakagjafar. Virkni kremsins nær há-
marki eftir fjögurra vikna notkun.
V'-§T£E 1 AUDFK
%\\\i
nct3 Uít
- •-”•»»•41 S .?« 11» ....