blaðið - 31.03.2006, Side 1
WA STJARÍ m 'IAN^ Fasteignasala
> 11 Traust viðskipti Anton Valgarðsson sími: 699 4431 Rúnar S. Gíslason lögg. fasteignasali
Rekkjan
Skipholtss Simi 5881055 www.rekkjan.is
Oleymuni ekki i 1«U okkar «4 góda liíl
að það ero Uöeœöt aö íá góöan svcfu.
VISALán
-HAðfMDAR AFBOAGAMIR
i
NJÓTTU LÍFSINS
med HFILBRlfjÐUM
LIFSSTIL
m Blaðið/Steinar Hugi
Vorvæntingar
Veðráttan hefur verið umhleypingasöm á höfuðborgarsvæðinu, en í gær mátti halda að það væri farið að vora um stund. Blíðan við Tjörnina hafði sitt aðdráttarafl og fiðurfénaður-
inn fagnaði hækkandi sól ekki síður en mannfólkið.
Krefjast íhlutunar stjórnvalda
Starfsmenn varnarliðsins undirbúa áskorun til íslenskra stjórnvalda um að þeim verði
tryggðir starfslokasamningar við brottför hersins. Óttast að tapa áunnum réttindum.
Starfsfólk varnarliðsins á Miðnes-
heiði vill að íslenska ríkið þrýsti á
Dandarísk stjórnvöld um að herinn
rangi frá starfslokasamningum við
islenska starfsmenn. Undirskriftar-
listi þessa efnis gengur nú meðal ís-
lenskra starfsmanna á varnarsvæð-
inu og mun hann verða afhentur
íslenskum stjórnvöldum á næstu
dögum. Almennur ótti er meðal
starfsmanna að þeir tapi áunnum
réttindum sínum við brottför
hersins.
„Herinn sleppur við
skuldbindingar"
Samkvæmt heimildum Blaðsins
undirbúa starfsmenn varnarliðsins
á Miðnesheiði áskorun til íslenskra
stjórnvalda þess efnis að þrýst verði
á stjórnvöld í Bandaríkjunum um
að þau gangi frá starfslokasamn-
ingum við alla íslenska starfsmenn
varnarliðsins.
Allir íslenskir starfsmenn varnar-
liðsins, um 6oo talsins, fengu upp-
sagnarbréf síðastliðinn mánudag.
Einn starfsmaður varnarliðsins,
sem óskaði eftir nafnleynd, sagði
við Blaðið að starfsmenn væru
orðnir langþreyttir á aðgerðar- og
undirbúningsleysi íslenskra stjórn-
valda. Lengi hefði legið fyrir að
herinn væri á leiðinni burt en rík-
isstjórnin hefði skellt skollaeyrum
við því.
„Það er ekki hægt að láta það við-
gangast átakalaust að þessir menn
fari frá öllu þessu starfsfólki án
þess að gera við það einhvers konar
starfslokasamning. Við viljum
áð ríkið sjái til þess að bandarísk
stjórnvöld borgi okkur þá starfs-
lokasamninga sem okkur ber.“
Þá sagði viðmælandi Blaðsins
að starfsfólk varnarliðsins væri
áhyggjufullt yfir því að það muni
tapa áunnum réttindum sínum við
brottför hersins. „Þessi atvinnu-
rekandi er að fara frá landinu og
hann er í raun og veru að skilja
fólk eftir. Hann hefur boðið upp
á sjúkra- og lífeyristryggingar og
annað fyrir starfsfólk sem hefur
unnið hér og flest allt starfsfólk
hefur sýnt þessum atvinnurekanda
mikla tryggð. En hann er að sleppa
við þessar skuldbindingar með því
að segja einfaldlega að hann sé
farinn.“
Sanngjarnt og eðlilegt
Guðbrandur Einarsson, formaður
Verslunarmannafélags Suðurnesja
(VS), staðfesti í samtali við Blaðið að
áskorunin væri í undirbúningi en
sagði VS ekki tengjast henni beint.
„Ég heyrði af þessum undirskriftar-
lista í gær en veit ekki meira.“
Guðbrandur sagðist þó styðja
þessa áskorun. „Ég hef margoft lýst
þeirri skoðun yfir að ég tel það vera
sanngjarnt og eðlilegt að gengið
sé frá einhverjum starfslokum við
það fólk sem hefur unnið svo árum
skiptir fyrir herinn.“
Þá sagði Guðbrandur að fjölmörg
réttindi væru í húfi fyrir starfsfólk
hersins og aðeins væri hægt að
tryggja þau með einhvers konar
starfslokasamningum. „Mikið af
þessu fólki er að fara á vinnumark-
aðinn og þarf að fara að vinna sér
aftur inn starfsaldurstengd launai-
gildi. Það er þvi sanngjörn krafa
þegar heilt vinnusvæði er tekið
í burtu að gengið sé frá einhvers
konar starfslokasamningum.“
Reuters
Hundarnir snúast gegn Thaksin
Suwan, 60 ára gömul húsmóöir í Bangkok, höfuðborg Tailands, tók hundana sína
með í gær er hún tók þátt t mótmælum gegn Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra.
Mikil ólga hefur ríkt í landinu að undanförnu en stjórnarandstaðan krefst afsagnar
forsætisráðherrans sem sakaður er um spillingu. Mótmælin í gær þóttu annars held
ur daufleg og má greina merki þess að almenningur sé tekinn að þreytast á þeim.