blaðið - 31.03.2006, Blaðsíða 35
blaðiö FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006
'"tóitÉrtö
G 1 35
Síðasta band standandi
í kvöld ráðast úrslit Músiktil-
rauna 2006 þar sem 12 hljóm-
sveitir etja kappi. Þær koma víðs
vegar að af landinu en stærstur
hluti af höfuðborgarsvæðinu.
Hljómsveitirnar sem keppa í kvöld
eru Who Knew, Furstaskyttan, Prop-
anól, We Made God, Antik, Tranz-
lokal, Ultra Mega Technobandið
Stefán, The Foreign Monkeys, Le
Poulet de Romance, Modern Day
Majesty, Sweet Sins og The Ministry
Of Foreign Affairs.
Kristján Kristjánsson, sem situr
í dómnefnd Músiktilrauna, sagði
í samtali við Blaðið að það sem
einkenndi keppnina í ár væri gífur-
leg fjölbreytni og jafnframt væru
hljómsveitir jafnari að gæðum en
oft áður. „Þetta verður mjög spenn-
andi og skemmtilegt kvöld,“ sagði
Kristján. Þórhallur Jónsson, verkefn-
isstjóri, tók undir þau orð Kristjáns
og sagði keppnina hafa verið óvenju
fjölbreytta.
Stökkpallur frægðarinnar
Að venju opna sigurvegarar síðasta
árs kvöldið. Að þessu sinni er það
hljómsveitin Jakobínarína. Kristján
sagði að vegur Músiktilrauna hafi
vaxið mikið og sigurvegurum keppn-
innar byðist í kjölfarið einstakt tæki-
færi til að koma sér á framfæri hjá
plötufyrirtækjum, til að spila og til
kynningar á hljómsveitinni.
Andrea Jónsdóttir mun þeyta
skífum á lokakvöldinu og veitt verða
verðlaun fyrir hljóðfæraleik.
Miðasala hefst kl. 18.00 og eru
400 miðar í boði. I ár bauðst fólki í
fyrsta sinn að kaupa passa á undan-
kvöldin sem einnig veitir forgangs-
rétt á miða á lokakvöldið og gekk
salan ágætlega. Fyrir þá sem ekki
komast í Loftkastalann verður hægt
að hlusta á beina útsendingu á Rás 2,
auk þess sem Síminn er með beina
útsendingu á www.siminn.is
Jakobínarína nýkomin úr tónleikaferðalagi í Bandaríkjunum. Blalió/Fríkki
Kal gera
það gott
Fyrsta plata serbnesku hljóm-
sveitarinnar Kal, sem spilar á
Vorblótinu - Rite of Spring í
lok apríl, hefur fengið frá-
bærar viðtökur. Platan, sem
ber nafn sveitarinnar, fór á
dögunum beint í annað sæti
á heimstónlistarlista Evrópu.
Vorblótið verður haldið á
Nasa dagana 27. til 30. apríl. Fjöl-
margar fólk- og jazzsveitir koma
þar fram, til dæmis Mezzoforte,
Petter Winnberg, Salsa Celtica
og Flís ásamt Bogomil Font.
Vefur hátíðarinnar var
nýlega opnaður á slóðinni
www.riteofspring.is. Þar má
finna helstu upplýsingar um
hátíðina ásamt myndum,
tónlist og myndböndum
sveitanna sem koma fram.
Miðasala
gengur vel
Miðasala á Blúshátíð í Reykja-
vík fer vel af stað. Hátíðin fer
fram dagana 11.-14. apríl og
hvetja aðstandendur blús-
áhugamenn til að tryggja sér
miða í tima þar sem færri
komust að en vildu í fyrra.
Blúsdívurnar frá Chicago,
Deitra Farr, Zora Young, Graná
Louis og Mississippiblúsar-
inn Fruteland Jackson verða
aðalgestir hátíðarinnar sem
fer fram á Nordica Hótel 11.-13.
apríl og í Fríkirkjunni þann 14.
Miðasala er á fullum
gangi á www.midi.is.
Leaves
snýr aftur
Hljómsveitin Leaves heldur
tónleika á Gauki á Stöng mánu-
daginn 3. apríl næstkomandi.
„A haustmánuðum urðu breyt-
ingar á hljómsveitinni þegar
gítarleikarinn Arnar Ólafsson
yfirgaf sveitina. Við það urðu
áherslubreytingar á tónlist
Leaves og hefur hljómsveitin
eytt undanförnum mánuðum
í hljóðveri við að taka upp
nýtt efni,“ segir meðal annars
í tilkynningu frá sveitinni.
Leaves mun spila nýtt efni
á tónleikunum í bland við
eldra. Hljómsveitin Lokbrá og
trúbadorinn Bob Justman hita
upp og kostar 500 krónur inn.
Njóttu dagsins
Taktu flugið
Aðeins fimm skref á Netinu og þú ferð á loft
Það getur ekki verið auðveldara.
Þú bókar flugið á flugfelag.is þar sem þú finnur ódýrustu
fargjöldin og að auki frábær tilboð.
Njóttu dagins, taktu flugið og smelltu þér á flugfelag.is
FLUGFELAG ISLANDS
Taktu flugið