blaðið - 31.03.2006, Side 37
blaðið FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006
DAGSKRÁI 37
Hinn gaurinn í Blur
Graham Coxon, fyrrum gítarleikari
Blur, kennir fyrrverandi félögum
sínum í hljómsveitinni um að hafa
ekki tekið á áfengisvanda sínum.
Coxon hætti í Blur árið 2002. Þegar
Coxon hætti var Blur við upptökur
á plötunni Think Tank sem kom út
árið 2003. Damon Albarn gaf það
reyndar til kynna þegar Coxon yf-
irgaf Blur að dyrnar stæðu opnar ef
hann gæti hugsað sér að snúa aftur.
Árið 2004 kom upp orðrómur þess
efnis að Coxon myndi mögulega
snúa aftur en hann neitaði því stað-
fastlega.
Það var líf eftir
Blur og Coxon hóf
sólóferil og gaf nú
út á dögunum sína
sjöttu sólóplötu sem
nefnist Love Trav-
els At Illegal Speeds.
Tónlistargagnrýn-
andi The Guardian gefur henni fjór-
ar stjörnur af fimm mögulegum. í
umsögninni kemur meðal annars
fram að þó platan gefi ekki fyrirheit
um byltingu við fyrstu áheyrn þá
vinni hún-á, grafi sig
inn í vitundina og
neiti að fara.
Flestir vita hver
George Michael er
en þegar dúettinn
Wham ber á góma er
talað um George Mi-
chael og hinn gaur-
inn. Graham Coxon var mestmegn-
is þekktur sem einn af fylgifiskum
Damon Albarn en virðist með sinni
sjöttu sólóplötu loksins hafa skorið
á naflastrenginn.
Hjarðeðlið
„Ef tveir menn eru samþykkir í einu og öllu,
þá er víst að einn þeirra er hugsandi.“
Lyndon B.Johnson,fyrrverandiforseti Bandaríkjanna (1908-1935)
y
Þennan dag...
...árið 1945 fæddist breski tónlistarmaðurinn Eric Clapton. Gítargoðsögn-
in fékk fljótlega viðurnefnið „Slowhand“ og er almennt talinn einn
áhrifamesti tónlistarmaður seinni hluta 20. aldar. Clapton hefur komið
víða við á sínum ferli og var meðlimur í hljómsveitunum Yardbirds og
Cream svo eitthvað sé nefnt. Clapton hefur lagt stund á ýmis stílbrigði í
gegnum tíðina en blúsrætur hans hafa aldrei visnað.
Stöð 2 bíó, 20.05 About Schmidt
(Um Schmidt) Úrvalsmynd sem
var tilnefnd til tveggja Óskarsverð-
launa. Warren R. Schmidt stendur
á tímamótum. Hann er sestur i helg-
an stein og þarf að hugleiða hvernig
hann vill eyða ævikvöldinu. Á sama
tíma fellur eiginkona hans frá og
Schmidt er því einn á báti. Hann á
að vísu dóttur en samkomulag þe-
irra er stirt. Schmidt semur líka illa
við tengdasoninn og ekki bætir það
ástandið. Aðalhlutverk: Jack Nichol-
son, Kathy Bates, Hope Davis, Derm-
ot Mulroney. Leikstjóri: Alexander
Payne. 2002. Leyfð öllum aldurshóp-
um.
iEoeiitie&í
jaughlcr
i
Sjónvarpið,
22.10 Óvinir
hlátursins
(Enemies of
Laughter)
Bandarísk
gamanmynd
frá 2000 um
gamanþátta-
höfund sem
gengur illa i
ástarmálunum þangað til að besti
vinur hans ákveður að gera heim-
ildamynd um tilburði hans á því
sviði.
QHBBl
Stöð 2, 22.50 The Fan (Aðdáand-
inn) Gil Renard (Robert De Niro)
lifir fyrir uppáhaldsliðið sitt í hafna-
boltanum. Það er honum því mikið
gleðiefni þegar stórstjarnan Bobby
Rayburn gengur til liðs við það.
BERMEO
SVEFNSÓFI
Komdu í verslun
okkar að
Suðurlandsbraut
því sjón er sögu
ríkari.
Fjölbreytt úrval áklæða með
óhreinindavörn sem hægt er
að taka af og þvo.
kr. 144.500 stgr.
140cm
LIIMAIM
H Ú S G Ö G N
SUÐURLANDSBRAUT 22 • SÍMI 553 7100 • www.linan.is
X
r