blaðið - 31.03.2006, Side 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 blaðiö
Hágæða
prótein
Fáar
hitaeiningar
Schröder í orku-
bransann
G e r h a r d
Schröder,
fyrrverandi
kanslari
Þýskalands,
hefur verið
r á ð i n n
stjórnar-
formaður
alþjóðlegs
orkufyrir-
tækis sem
hefur yfir-
umsjón með
byggingugas-
leiðslu frá Rússlandi til Þýskalands.
Fyrirtækið er í eigu rússneska
fyrirtækisins Gazprom og þýsku fyr-
irtækjanna BASF og E.On. Leiðslan
mun sinna io% af jarðgasþörf hag-
kerfa Evrópusambandsins. Ráðning
Schröders þykir í meira lagi umdeil-
anleg þar sem að hann barðist hart
fyrir að samningar milli þýskra og
rússneskra stjórnvalda um bygg-
ingu leiðslunnar næðust meðan
hann var kanslari. Meðal annars
myndaði hann persónulegt vin-
áttusamband við Vladímír Pútín,
forseta Rússlands, en áhugi hans á
verkefninu var nauðsynlegur fyrir
framgang þess.
Forseti Póllands veitti
Jaruzelski heiðursorðu
Lech Kaczynski, forseti Póllands,
veitti Wojciech Jaruzelski, eina af
æðstu viðurkenningum pólska rík-
isins á dögunum. Forsetinn verð-
launaði hinn aldna herforingja fyrir
framúrskarandi föðurlandsást.
Allir þeir sem voru fluttir til Síberíu
eftir hernám Sovétmanna í seinni
heimsstyrjöldinni eiga möguleika
á að vera tilnefndir til orðunnar og
er Jaruzelski í þeim hópi.
í fangabúðunum í Síberíu varð
Jaruzelski sannfærður kommún-
isti og barðist síðar með Sovét-
mönnum gegn nasistum í stríðinu.
Farsæll ferill innan pólska komm-
únistaflokksins fleytti honum á
endanum til æðstu metorða.
Jaruzelski var aðalritari pólska
kommúnistaflokksins og for-
sætisáðherra landsins á níunda
áratugnum. Hann setti herlög í
landinu á sínum tíma og bannaði
starfsemi verkalýðsfélagsins Sam-
stöðu, sem undir forystu Lech Wa-
lesa ruddi lýðræðinu braut í land-
inu. Margir Pólverjar líta svo á að
Jaruzelski hafi sagt eigin þjóð stríð
á hendur með herlögunum.
Orðuveitingin hefur vakið
mikla furðu í Póllandi og skiptar
skoðanir eru um hana. Einnig
vekur það furðu að á sama tíma
og forsetinn heimilar orðuveiting-
una berst tvíburabróðir hans, Ja-
roslaw Kaczynski, sem formaður
stærsta stjórnmálflokks landsins
fyrir þvi að Jaruzelski verði sviptur
Lech Kaczynski, forseti Póllands, er hrifnari af Shrek en Jaruzelski þrátt fyrir að hann
veitti þeim síðarnefnda orðu
eftirlaunum vegna setningar
herlaganna.
Talsmaður Kaczynski, Maciej
Lopinski, hefur afsakað forsetann
og sagði á dögunum að forsetinn
hafi skrifað undir orðuveitinguna
fyrir slysni. Tók hann fram að for-
setinn læsi ekki öll þau skjöl yfir
sem hann skrifar undir.
Jaruzelski fagnar orðuveit-
ingunni. 1 viðtali við pólska
sjónvarpsstöð í vikunni og sagði
hann orðuveitinguna sýna að Lech
Kaczynski sé hafinn yfir pólitískar
átakalínur í stjórnarathöfnum
sínum.
Kveikti í sér
vegna kjötleysis
Sextugur maður í indversku borg-
inni Ahmedabad kveikti í sér um
helgina eftir að kona hans neitaði
að elda kjöt handa honum. Mað-
urinn lést á sunnudag af völdum
brunasára.
Maðurinn, Mithailal Ram Sanji-
van, hafði verið atvinnulaus í mörg
ár og átti við áfengisvandamál að
stríða. Hann bað konu sína um
helgina að elda handa sér kjöt en
hún neitaði sökum þess hve fjárráð
heimilisins væru takmörkuð. Varð
Sanjivan svo yfirtekinn af harmi út
af þessum tíðindum að hann gekk
úr húsi sínu og hellti yfir sig kveiki-
lög og kveikti í sér.
Skipting Kosovo
kemur ekki
til greina
mbl.is | Albert Rohan, samninga-
maður Sameinuðu þjóðanna varð-
andi framtíð Kosovo, varaði serb-
neska minnihlutann í héraðinu við
því í gær að ekki komi til greina að
því verði skipt upp. Rohan sagði
þetta við lok heimsóknar sinnar til
Kosovo, en þriðja umferð samninga-
viðræðna um framtíðarstöðu og
stjórnskipan héraðsins á að hefjast
á mánudag.
Rohan áréttaði að réttur Serba
í héraðinu verði tryggður og að
þeir „eigi að geta stjórnað sinum
eigin málum innan lagaumhverfis
Kosovo." Hann sagði þetta þó
ekki þýða að héraðinu verði skipt
þannig upp að hluti þess falli ekki
undir eðlilegan laga- og stjórnsýslu-
ramma Kosovo.
ÍSALKÚNA/
Nú færðu
ferskar og fljótlegar
tilbúnar á pönnuna eða í ofninn
Blaðamanni sleppt ur
haldi mannræningja
Bandarísku blaðakonunni Jill Caroll
var sleppt úr haldi mannræningja í
Irak í gær. Caroll, sem starfar fyrir
bandaríska blaðið Christian Science
Monitor, var rænt í Bagdad þann
sjöunda janúar s.l. Hún var á leið að
taka viðtal við stjórnmálamanninn
Adnan-al Dulaimi þegar ræningj-
arnir handsömuðu hana. Túlkur
hennar lést í átökunum. Mannræn-
ingjarnir skildu Caroll eftir við
höfuðstöðvar íslamska-stjórnmála-
flokksins í Bagdad. Bandarisk stjórn-
völd segja að hersveitir hafi ekki átt
þátt í því að hún losnaði úr gíslingu
og neita því að lausnargjald hafi
verið greitt mannræningjunum.
Caroll sagði í fjölmiðlum i gær
að mannræningjarnir hafi farið
vel með hana og ekki beitt hana of-
beldi. Hún sagðist hafa verið geymd
í vistlegu herbergi og haft aðgang að
hreinlætisaðstöðu.
Mannræningjarnir, sem eru
liðsmenn Herdeilda hefndarinnar,
kröfðust þess að allir kvenfangar í
Irak yrðu látnir lausir ellegar myndu
þeir myrða blaðakonuna. Gáfu þeir
Blaðakonan Jill Caroll.
stjórnvöldum frest til 26. febrúar
til þess að verða við kröfum þeirra.
Ekki var gengið við þeim.
Um 230 útlendingum hefur verið
rænt í Irak frá þvi að Bandaríkja-
menn og bandamenn þeirra gerðu
innrás í landið árið 2003. Um 50 af
þeim hafa verið myrtir en ekki er
vitað um örlög 90 þeirra.
SIAL HITABLÁSARAR
Hágæða rafmagns- og steinolíublásarar
MURBUÐIN
Margar stærðir og gerðir
- hagstætt verð
Kletthálsi 7-110 Reykjavík
Sími 544 5470 ■ www.murbudin.is