blaðið - 31.03.2006, Blaðsíða 21
blaöió FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006
21
99............................................................
Mamma var skáldaskvísa og pabbi er líka svona listasál svo ég hefalltaf
verið íþessum heimi. Mér finnstþað ágættþví mikið afþvísem Hulda
er að tala um gæti virkað eins og latína á fólk sem skilurþað ekki en
ég á yfirleitt mjög auðvelt með að skilja þessar pælingar hennar."
ingin fram á einu bretti.“
Listamenn þurfa ekki
að passa í kerfin
Finnst þér ekkert erfitt að vera
þriggja barna móðir með eitt á leið-
inni og málari ísenn?
„Nei, börnin mín gáfu mér eigin-
lega kjarkinn til að gera þetta. Ég var
komin fimm mánuði á leið þegar ég
sótti um inngöngu í Listaháskólann.
Ég hugsaði með mér hvernig börnin
mín myndu vilja gera hlutina og
fór eftir því. Maður þarf að hlusta á
hjartað. Þrátt fyrir að þetta sé erfið
leið þá er þetta bara þroskaganga.“
Margir hefðu eflaust stefnt á að lcera
eitthvað „praktíst“ í þínum sporum?
„Já, ég ætlaði líka að gera það...
læra grafíska hönnun. Það voru allir
að hvetja mig til að vera skynsöm og
gera það, en það var bara eitthvað
sem leiddi mig áfram til að verða
málari. Það eina sem ég hef yfir að
kvarta er kannski áreiti frá umhverf-
inu. Tískustraumar og óskráðar
reglur um hvað passar núna og
hvað ekki. Þannig er sérstaklega í
grafískri hönnun, en í málverkinu
má maður gera það sem maður vill
og þarf ekki að vera undir eftirliti.
Margir málarar þora samt ekki því
stundum getur verið erfitt að vera al-
veg frjáls. Mér finnst vanta svolítið
meiri meðvitund um það að lista-
menn mega vera eins og þeir vilja og
þurfa ekki að passa inn í þessi kerfi,“
segir Hulda.
Vanur listafólki og vand-
ræðum þeirra
Valgarður þekkir vel til listamanna
enda er hann sonur Nínu Bjarkar
Árnadóttur og Braga Kristjónssonar
í Fornbókabúð Braga. Hann segir
það því ekki flækjast mikið fyrir
sér að búa með listamanni. „Ég er
náttúrlega bara alinn upp til þess.
Mamma var skáldaskvísa og pabbi
er líka svona listasál svo ég hef alltaf
verið í þessum heimi. Mér finnst
það ágætt því mikið af því sem
Hulda er að tala um gæti virkað eins
og latína á fólk sem skilur það ekki
en ég á yfirleitt mjög auðvelt með að
skilja þessar pælingar hennar. Hvort
sem þær ganga út á komplexa, lista-
menn eða allt þetta listarugl. Ég á
mjög auðvelt með að setja mig inn
í þessa hluti. Þetta getur samt verið
mjög flókið -sérstaklega samskipti
listamanna. Þau eru öðruvísi en til
dæmis á milli tveggja múrara. Þeir
eru bara að múra einhvers staðar
úti í bæ og eru ekki mikið að pæla
í hvor öðrum nema það sé kannski
á þann hátt að annar taki verk af
hinum. Listamenn eru hins vegar
alltaf að höggva í hvorn annan, öf-
undast og metast. Reyndar held ég
að það sé ekkert alslæmt, málið er
bara að listamenn hafa engan ákveð-
inn punkt til að miða sig við. Læknir
þarf bara að lækna og múrarinn að
múra en ef þú ert listamaður þá ertu
bara á gresjunni og hinir listamennir
standa í kring og eru alveg jafn rugl-
aðir og þú. Það er hins vegar best
þegar þeir verða vinir og kunna að
deila reynslu og upplifunum saman.
Mér finnst mjög gaman að umgang-
ast listafólk. Það heldur reyndar
stundum að það sé rosa mikið öðru-
vísi en múrarar, en þeir eru það ekk-
ert. Þeir eru bara manneskjur; alveg
jafn miklir bjánar og allt það.“
Tala við börnin
Fjórða barn Huldu var komið undir
þegar þau fóru til Arnars Hauks-
sonar, kvensjúkdómalæknis, með
það fyrir augum að gera ráðstafanir
til að koma í veg fyrir frekari barn-
eignir. „Arnar þurfti ekki annað en
að horfa á Huldu. Svo sagði hann
að við værum því miður of sein.
Hún væri orðin ólétt. Hann glotti
á meðan," segir Valli og hlær. Að-
spurð segist Hulda líka stundum
finna fyrir svolitlum kvíða þegar
hún hugsar út í hvernig eigi að sjá
fyrir fjórum börnum með málverka-
sölu og múrun. „En þá fer ég oft að
hugsa um Biblíuna. Jósep og Maríu
röltandi inn í fjós með barnið. Ég fer
alltaf að hugsa um einfaldleikann
við svona aðstæður enda finnst mér
hann rómantískur. Ég held að fólk
fari einmitt svo oft að hugsa um ein-
faldleikann þegar árin færast yfir.
Þá hugsa þau til þeirra tíma þegar
það var ekki allt til og fólk þurfti
að hafa aðeins fyrir hlutunum. Það
gefur öðruvísi upplifun að þurfa að
hafa fyrir lífinu heldur en að fá allt
upp í hendurnar. Konur í dag vilja
bara 300 fermetra hús og ég veit
ekki hvað, en auðvitað er það auka
álag á mæður að þurfa að hugsa um
þetta allt saman. Hver á að þrífa og
halda þessu við? Fer ekki öll orkan í
það? Það verður ekki mikið eftir til
að sinna öðru.“
Valli leggur áherslu á mikilvægi
þess að rækta samskipti innan
fjölskyldunnar.
„Það er svo mikilvægt að fólk nái
að tala saman. Maður er kannski í
heila viku í sínum veruleika og svo
áttar maður sig á því að maður er
ekki búinn að tala við eitt barnið
í sjö daga. Bara búinn að skipa
honum fyrir og segja honum hvað
hann á að gera eða ekki, en ekkert
svona rólegt spjall um daginn og
veginn. Foreldrar þurfa líka að tala
við börnin sín. Spyrja út í hugsanir
þeirra og spjalla svo um það. Fjöl-
skyldan þarf að tala saman til að til-
finningar þroskist," segir Valli.
„Maður lærir líka svo mikið á því
að tala við börnin sín. Ég var t.d. að
skamma yngri strákinn minn um
daginn. Var að reyna að svæfa Braga
litla en þessi stutti var alltaf að trufla
mig svo þegar ég hastaði á hann þá
sperrti hann sig og sagði: „Mamma
þú ræður engu. Guð ræður öllu.“
Þetta fékk mig til að hætta þessum
æsingi og róa mig niður. Allt í einu
mundi ég að þetta hefur allt sinn
gang og það er óþarfi að æsa sig yfir
smámunum," segir Hulda að lokum.
margret@bladid. net
Aðalsími
510-3700
Ritstjórn
510-379»
Aunlýsingadeild
510-3744
Smáauglýsingar
510-3737
FRJÁLST
ÓHÁÐ
blaóid
Við hjá Sportmönnum getum boðið uppá frábærar
veiðiferðir til Skotlands, Póllands og Kanada. Jafn-
framt veiðunum þá getum við sett saman hinar mis-
munandi ferðir í bland við skotveiðamar.
Sem dæmi í Skotlandi má nefna að fá að upplifa
skoska menningu með .ví að sofa í alvöru kastala og
upplifa miðaldar stemmingu. Aldrei að vita að einh-
verjir fomir andar geri vart við sig. Ef menn vilja þá
er líka upplagt að taka golfsettið með sér.
Við bjóðum einnig uppá lúxusgolfferðir. Takmarkaður
fjöldi er í hverri ferð enda er mikið lagt uppúr þjónus-
tunni við viðskiptavini okkar.
I ferðinni er gist miðsvæðis við frábæra 18 holu velli.
Spilað er á 5-6 mismunandi völlum þannig að fjöl-
breytikeikinn er vissulega til staðar.
í hverri ferð er alltaf spilað á einum af hinum stóm
völlum eins og Muirhead og Kingbams.
Gemm tilboð fyrir hópa. I Póllandi bjóðum við uppá
villisvínaveiðiferðir en að sjálfsögðu er önnur bráð til
boða eins og Rádýr.
Þarna eins og í Skotlandi getum við bætt við skoðu-
narferðum eða heimsókn til fyrirtækis sem sérhæfir
sig í svokölluðum Herferðum en þar er hægt að keyra
skriðdreka og margt annað