blaðið - 31.03.2006, Side 10

blaðið - 31.03.2006, Side 10
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 blaA'lö 10 1 ERLEWÐAR FRÉTTIR Samræmt göngulag? Utanríkisráðherrar Kína, Rússlands, Bandaríkjanna, Þýskalands, Bretlands og Frakklands ásamt Javier Solana, talsmanni Evrópusambandsins í utanríkismálum, funduðu í Berlín gær um kjarnorkuáætlun frana. Á miðvikudag samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun sem hvetur frana til þess að láta af auðgun úrans. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin mun senda ráðinu skýrslu um viðbrögð þeirra við áiyktuninni eftir þrjátíu daga. Ályktunin er vægasta form aðgerða sem öryggisráðið getur gripið til. Bandaríkin og Evrópusam- bandið vilja grípa til harðari aðgerða láti stjórnvöld f Teheran ekki af auðgun úrans. Kínverjar og Rússar eru þvi andvígir og vegna andstöðu þeirra var orðalag sem fól í sér hótun um frekari aðgerðir fellt úr ályktuninni á síðustu stundu. Rússar íhuga innflutningsbann a vini Stjórnvöld í Moldóvu og Georgíu hafa mótmælt harðlega fyrirhuguðu innflutningsbanni Rússa á léttvíni frá löndunum tveimur. Heilbrigðisyf- irvöld í Rússlandi báðu tollayfirvöld á dögunum að banna innflutning á vínum frá löndunum sökum þess að þau uppfylla ekki reglur um hrein- læti landbúnaðarvara. Þessu þver- neita Moldóvar og Georgíumenn og hefur heilbrigðisráðherra þeirra síðarnefndu boðið rússneskum emb- ættismönnum að gera prufur á fram- leiðslunni í öllum vínræktarhéruðum landsins til þess að sannreyna gæðin. Innflutningsbannið myndi hafa miklar efnahagslegar afleiðingar fyrir löndin tvö en nánast öll vínfram- leiðsla þeirra er flutt út til Rússlands. Sumir stjórnmálaskýrendur telja að fyrirhugað bann sé ekki tilkomið vegna áhuga Rússa á auknum gæðum landbúnaðarafurða heldur séu stjórn- völd í Moskvu að refsa íbúum þess- ara fyrrverandi sovétlýðvelda fyrir skort á hollustu. Stjórnvöld í Georgíu líta í auknum mæli vestur í utanrík- isstefnu sinni og Rússar og Moldóvar eiga enn í hörðum deilum vegna ástandsins í Transnestria-héraði í Moldóvu. Rússar hafa aukið þrýsting á ríkin tvö með miklum verðhækk- unum á því gasi sem þeir flytja til þeirra. Þetta hefur haft víðtækar efnahagslegar afleiðingar en áður nið- urgreiddu Rússar orkuútflutning til landanna. Nicotineir HlLYFJA Hœttum aö reykja í samfélagi á vefnum þar sem allir fá styrk hver frá öönjm og enginn þarf aö standa einn í baráttunni. Meö sameiginlegu átaki drepum viö í fyrir fullt og allt Skráöu þig íátakiö á vidbuin.is Þar er auk þess hœgt aö finna allar upplýsingar um máliö. f r v mm, ■ Borgaraþing í Tjarnarsalnum í RáÓhúsi Reykjavíkur, 1. apríl, 2006 Fjölmörg íbúasamtök Reykjavíkur standa saman að borgaraþingi um borgina okkar laugardaginn 1. apríl og það er ekkert gabb! Tekin verða fyrir margvísleg efni: IBUALYÐRÆÐI REYKJAVÍK í ÖÐRU UÓSI! UMHVERFI OG SKIPULAG BORGARHAGFRÆÐIN BORGARMENNINGIN UMVHERFI OG VELLÍÐAN SJÁLFSMYND REYKVÍKINGA Gauti Kristmannsson Hrafn Gunnlaugsson Pétur H. Ármannsson Porvaldur Gylfason Porsteinn J. Vilhjálmsson Kristín Porleifsdóttir Eggert Pór Bernharðsson Við þinglok verða pallborðsumræður þar sem formenn íbúasamtaka og fulltrúar flokkanna sem fram bjóða til borgarstjórnar taka þátt. Fundarstjóri verður Hildur Helga Sigurðardóttir Þingið hefst kl. 10 og lýkur kl. 15 og verða bæði kaffi- og hádegishlé. Með þessu þingi fá Reykvíkingar tækifæri til að móta hugmyndir um borgina sína og segja forsvarsmönnum sínum frá því á staðnum. Við hvetjum alla sem áhuga hafa á borginni sem bústað okkar allra til að koma og taka þátt. Aðgangur er ókeypis. íbúasamtök Grafarvogs, íbúasamtök Laugardals, íbúasamtök Vesturbæjar, íbúasamtök 3. hverfis, Samtök um betri byggð. Múslimar í meiðyrðamál mbl.is | Tuttugu og sjö samtök danskra múslima höfðuðu meiðyrðamál á hendur rit- stjórum Jyllens-Posten í gær. Ákæran er sett fram vegna birtingar skopmyndanna af Múhameð spámanni í septem- ber á síðasta ári. Lögmaður samtakanna fer fram á 100.000 danskar krónur í bætur vegna myndbirtinganna. Málið var höfðað í gær en tvær vikur eru frá því saksóknari Danmerkur ákvað að höfða ekki opinbert mál gegn blaðinu vegna máls- ins þar sem myndirnar brytu ekki lög um kynþáttafordóma eða ærumeiðingar. Auglýsingadeild 510-3744 blaðið-

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.