blaðið - 13.10.2005, Side 1
H Rjúpnaveiði
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2005
Rjúpnaveiðar heíjast að nýju
18
Rjúpan kryddar sig sjálf
20..................
Uppskriftir að
fornu og nýju
21..................
10 rjúpur á mann - hámark
22............
Útbúnaður rjúpnaskytta
22..................
Hjálparsveit skáta
ávallt viðbúin
23 ...............
Kemst í samband við
almættið og eilífðina
24 ..............
Veiðimönnum hefur
fjölgað eftir bannið
Rjúpnaveiðar hefjast að nýju
þann næstkomandi laugardag eft-
ir tveggja ára friðun rjúpnastofns-
ins. Þó verður stígið varlegra til
jarðar en áður þar sem veiðitím-
inn hefur verið styttur um þrjár
vikur - verður núna til 30. nóv-
ember en ekki til 22. desember.
Samkvæmt reglugerð sem Sigríð-
ur Anna Þórðardóttir, umhverfis-
ráðherra, setti í ágúst síðastliðn-
um er stefnt að því að rjúpnaveiði
í haust verði ekki meiri en um
70.000 fuglar líkt og ráðgjöf Nátt-
úrufræðistofnunar Islands gerir
ráð fyrir. Þá felur reglugerðin í
sér sölubann á veiðibráð í kjölfar
þess að frumvarp sem veitir
umhverfisráðherra slíka heimild
var samþykkt síðastliðinn vetur.
Einnig er áframhaldandi bann
við notkun vélsleða, fjórhjóla og
ýmissa annarra torfærutækja við
veiðarnar. í fréttatilkynningu
frá umhverfisráðuneytinu frá
því í sumar kemur fram að þessir
annmarkar eiga að tryggja hóf-
sama veiði og að með heimild til
að setja sölubann hafi ráðherra
fengið mikilvægt stjórntæki til að
draga úr rjúpnaveiði.
Rjúpnastofninn á að verða sjálfbær
Á síðastliðnum tveimur árum frá
því að ákveðið var að friða rjúpuna
þá hefur stærð rjúpnastofnsins rúm-
lega þrefaldast og veiðiþol hans þar
af leiðandi aukist verulega. Það
er von umhverfisráðuneytisins að
stofninn verði sjálfbær og muni
sveiflast með náttúrulegum hætti
fylgi veiðimenn þessum tilmælum.
Umhverfisráðuneytið ítrekar þó
að ef veiðarnar verði mun meiri en
stefnt er að og gangi nærri stofn-
inum muni það grípa til hertra að-
gerða á næsta ári. Rjúpnaveiðar eiga
enda að vera tómstundariðja frekar
en atvinnumennska og magnveiði á
rjúpu á því að heyra sögunni til.
Enn friðuð í nágrenni
höfuðborgarsvæðisins
Gert er ráð fyrir því að stórt svæði
á Suðvesturlandi, umhverfis höfuð-
borgarsvæðið, verði áfram friðað
til ársins 2007. Náttúrufræðistofn-
un lagði reyndar til að komið yrði
á tímabundnu griðlandi rjúpna á
Norðausturlandi i því skyni að afla
betri gagna um áhrif veiða á rjúpna-
stofninn og þá einkum til að meta
náttúruleg afföll til að geta betur
metið veiðiþol stofnsins. Þá ræðst
sóknargeta veiðimanna að verulegu
leyti af birtutímanum hverju sinni
og mælti stofnunin einnig með því
að veiðitímabilið myndi ekki hefjast
fyrr en 1. nóvember þar sem hann
styttist óðfluga þegar líður á haustið.
Að þessum tillögum var hinsvegar
ekki farið.
SPORTBÚÐ TÍTAN
SKOTVEIÐAR, ÚTIVIST & KAJAKAR
liÉlll
25 Skotabelti
495.-
495.-
khálsi 5G 1
■ * m
Sími: 517 8810 www.sporlbud.is