blaðið - 13.10.2005, Blaðsíða 6
22 I VEIÐI
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2005 blaöiö
Útbúnaður
rjúpnaskytta
-Skiptir öllu máli
Rjúpnaveiðitímabilið er nú að
ganga í garð eftir þriggja ára
veiðibann og gera má ráð fyrir að
þetta hafi verið löng þrjú ár fyrir
ræktarsamar rjúpnaskyttur. Þær
geta þó tekið gleði sína á ný á laug-
ardaginn þegar banninu verður
aflétt.
Útbúnaður skiptir gríðarlegu máli
og ekki gengur að rjúka út án þess
að huga að fjölmörgum atriðum þar
sem að á Islandi er allra veðra von.
Oddur Kristinsson, skólastjóri
Björgunarskóla Slysavarnarskóla Is-
lands, veit allt um það hvernig á að
vera útbúinn þegar haldið er af stað
í óbyggðir.
„Það sem skiptir fyrst og fremst
máli er fatnaður. Það er lykilat-
riði að vera vel klæddur. Ef menn
stökkva út í gallabuxum og bóm-
ullarfötum þá þola þeir ekki lengi
kulda og vosbúð. Best er að vera í
ullarfötum eða einhverju slíku sem
innsta klæði, þá flísefni sem heldur
hita og yfirhöfnum úr öndunarefni,
vind-og regnheldum. Svo auðvitað
að hafa góða húfu, vera í góðum og
hlýjum sokkum og með vettlinga.
Það er góð regla að hafa alltaf föt til
skiptanna," segir Oddur.
Ekki gengur þó að standa vel
klæddur með byssu á öxlinni því að
fjölmörgu öðru þarf að huga að áður
SPORTVÖRUGERÐIN
SKIPHOLT 5 562 8383
Oddur Kristinsson
en farið er af stað.
„Að sjálfsögðu þarf að vera með
áttavita og GPS staðsetningatæki
og að kunna á það er grundvallar-
atriði. Það þarf að hafa gott kort af
svæðinu ferðast er um. Ekki má svo
gleyma að hafa mat og sjúkrakassa,"
segir Oddur.
Hann segir líka nauðsynlegt að
gera ráðstafanir áður en lagt er af
stað. Gera ferðaáætlun og fylgjast
vel með veðurspá.
„Margt hefur breyst síðan fyrir
nokkrum árum síðan. Menn eru
orðnir mikið meðvitaðari um veðr-
ið og kunnátta á kort og áttavita hef-
ur aukist mikið.“
Oddur segist ekki hafa miklar
áhyggjur af því að rjúpnaskyttur
séu búnar að gleyma tilþrifunum.
„Það eru ef til vill einhverjir nýir
að taka sín fyrstu skref sem við von-
um að séu meðvitaðir um hættur og
hafa kynnt sér þær vel. Ég vona að
þeir sem vanir eru hafi ekki tapað
kunnáttunni!" ■
Bettinsoli 1
tvíhleypa er
frábœr kostur fyrir I
rjúpnaveiöimanninn
J. Vilhjálmsson ehf.
Dunhaga 18,107 Reykjavík
Sími: 561-1950
j.vilhjalmsson@byssa.is
www.byssa.is
Byssusmíðl - Byssuvlðgerðlr - Ðyssusala
Nýjar byssur - Notaðar byssur - Pylgihlutir
Vöðlur - Vöðluviðgerðir - Vöðtuleiga * Stangarleiga
Umboö fyrir: Bla9er, Sauer og Maueer rlffta,
Schmldt 0 Bender, Pecar-Bertln og Mlnox ejönauka.
Higgetoh ótar og Recknagel ejónaukafeetlngar.
Útköllum björgunarsveita fer fœkkandi
Hjálparsveít skáta
ávallt viðbúin
Hjálparsveit skáta hefur góðan búnað á sínum snærum og vel þjálfaða einstaklinga.
Nú þegar rjúpnaveiðitímabilið
er að hefjast er ekki úr vegi að
spyrja Hjálparsveit skáta að því
hvort miklar áhyggjur séu af
því hvort veiðimennirnar lendi
á villigötum og þurfi á hjálp að
halda þegar þeir eru á fjöllum í
veiðihug.
Menn betur útbúnir
,Það er ánægjulegt að segja frá því
að útköllum vegna slíks hefur farið
fækkandi á seinni árum. Menn eru
betur útbúnir, með betri tæki og
eru betur meðvitaðir um það sem er
að gerast. Við erum auðvitað alltaf
tilbúnir en okkar útkallsvæði er eig-
inlega allt friðað. Það er ekki nema
að um stærri leit sé að ræða, menn
týndir í lengri tíma til dæmis, sem
við förum af stað ef það þarf meiri
mannafla. Ég held að reynsla okkar
sé sú að það megi alltaf búast við því
að einhverjir þurfi á hjálp að halda,“
segir Einar Þorláksson sem er í
Hjálparsveit skáta í Reykjavík.
Tæki geta bilað
,,Það er því miður alltaf að koma
upp aftur og aftur að einn og einn
er vanbúinn. Þeir lenda kannski í
slæmu veðri, missa áttir og eru hugs-
anlega ekki með búnað og ef hann
er til staðar kunna þeir jafnvel ekki
almennilega á hann. Það er grund-
vallaratriði að kunna á búnaðinn og
vera líka með áttavita. GPS-staðsetn-
ingartæki er auðvitað bara tæki og
tæki geta alltaf bilað,“ segir Einar og
bætir við að ef menn eru með kort,
vel útbúnir og eru sæmilega áttaðir
þá ættu þeir ekki að lenda í teljandi
vandræðum.
Slysin gerast
Einar segir líka koma upp atvik sem
enginn getur séð fyrir og þá bregð-
ast björgunarsveitir skjótt við.
„Menn geta dottið og meitt sig og
verða þá að fá hjálp. Þeir verða að
taka mið af veðrinu. Menn sem fara
í svona ferðir verða að vera vanir
náttúrunni, vanir útivist og kunna
að lesa í náttúruna og veðrið," segir
Einar og ítrekar að fólk fari ekki út í
neinni tvísýnu.
Stærsta deildin er í Reykjavík
Einar segir Hjálparsveitina hér á
stórhöfuðborgarsvæðinu aðallega
sjá um að finna fólk sem hefur týnst
hér í byggð, þar á meðal fullorðið
fólk, fjöruleitir og óveðursútköll eru
einnig í þeirra verkahring.
„Á Suðurlandinu og á fjalllendi fyr-
ir norðan er meira um fjallabjörgun-
araðgerðir og hálendisverkefni en
hérna í okkar umdæmi. Leitarsvæð-
in eru nær þeim en okkur. Við erum
með stærstu deildina og mestan
mannskap þannig að kallað er á okk-
ur ef um heildarútkall er að ræða,“
segir Einar.
GPS námskeið
Ekki er nóg að eiga bara GPS stað-
setningartæki heldur þarf að kunna
á það eins og komið hefur fram.
„Við höfum verið með námskeið
fyrir okkar félaga. Síðan veit ég að
Skotveiðifélagið og Landsbjörg hafa
haft námskeið fyrir þá sem vilja
læra almennilega á GPS staðsetning-
artækin,“ segir Einar en bætir við að
tækin séu i raun ekki flókin, grunn-
aðgerðir séu nokkuð einfaldar að
læra og svo er alltaf hægt að fara í
handbókina sem fylgir með og læra
af henni. Það sé líka brýnt að fólk
treysti ekki einvörðungu á tækið.
Veiðum hóflega!
Á laugardaginn munu skyttur hvað-
anæva af landinu flykkjast upp á
fjöll og firnindi til að skjóta hina
eftirsóttu rjúpu og því ekki seinna
vænna fyrir þær að fara að kynna
sér aðstæður og yfirfara búnaðinn.
„Fólk verður að skoða veðurspána
og kynna sér landið sem það ætlar
að ganga um. Betra er að taka of mik-
inn búnað en of lítinn. Svo er bara
að gæta hófs í veiðunum og hafa
gaman af.“ ■
katrin.bessadottir@vbl.is
Notum
Hlað-skot
OG BORÐUM
RJÚPUR Á
JÓLUNUM
www
HlaS ehf. Bíldshöfðci 1 2 - S