blaðið - 13.10.2005, Blaðsíða 8

blaðið - 13.10.2005, Blaðsíða 8
24 I VEIÐI FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2005 blaöið Sala skotafyrir rjúpnaveiði hafin Veiðimönnum fjölgar eftir bannið Næstkomandi laugardag hefst rjúpnaveiðitímabil eftir tveggja ára veiðibann og munu veiði- menn án efa flykkjast á heiðar, eltandi hvítu dýrðina. Til að geta stundað þetta áhugaverða sport þarf ýmsan búnað sem og skot og vesti. Hjálmar Ævarsson, versl- unarstjóri verslunarinnar Hlaðs, segir að menn séu þegar farnir að versla skot fyrir rjúpnaveiðitíma- bilið. Hjálmar segir að þegar veiðitíma- bilið byrji um helgi þá fari margir á rjúpu. „Ég reikna með að það fari mjög margir á rjúpu' á laugardaginn. Það var svo sem alltaf þannig þegar það hittir svona á helgi. En þetta veð- urfar gerir veiðiskapinn miklu erfið- ari. Það er náttúrlega kominn snjór yfir flest svæði þar sem rjúpan er og það er því erfiðara að sjá hana. Þetta jafnar leikinn mikið og ég held að veiðimenn séu mjög sáttir við þetta. Að minnsta kosti hafa menn verið að ... \ koma og ná sér í lítilræði af rjúpna- skotum og búnaði tengdum því.“ Nýir skotveiðimenn Aðspurður að því hvort þeir hafi átt birgðir af skotum síðan fyrir bannið segir Hjálmar svo ekki vera. „Þegar bannið var sett á þá áttum við hráefni í skot en lítilræði af til- búnum skotum því við hlöðum þau ekkert fyrr en í lok gæsavertíðar. Á þessum tveimur árum sem rjúpna- bannið hefur verið þá hefur náttúr- lega komið endurnýjun í skotveiði- mennina og þeir eru flestir á rjúpu. Það er því mikið meiri sala á rjúpna- vestum og þess háttar búnaði.“ Garmin GPSmap 60CS Leiðsögutæki fyrir veiði- og útivistarfólk Ótrúlega öflugt staðsetningartæki með áttavita og hæðartölvu. Fjölhæft tæki í bílinn, veiðina eða á fjallið, vinsælasta GPS tækið í dag. Nýtt GPS kort fyrir Garmin tæki, með götum, heimilisföngum og hæðarlínum GPS kort er vektor kort af íslandi fyrir Garmin GPS tæki með leiðsöguhæfum vegagögnum um allt land. Einnig götukort af höfuðborgarsvæðinu með heimitisföngum, 20 metra hæðarlínum úr ISV-50, 40.000 örnefni og áhugaverðirstaðir, vatnafar, þjóðvegir, fjaltaslóðar og skálaskrá. í fyrsta sinn á íslandi fæst nú vegakort með leiðsöguhæfum gögnum fyrir PC tölvur, Windows Mobile handtölvur og Garmin GPS tæki. Láttu ekki afvegaleiða þig - vetdu Garmin. GARMIN KEMUR ÞÉR ÁSPORIÐ Garmin Foretrex 101 Einfalt en öruggt og fyrirferðarlítið á hendi. Garmin GPSmap 60 Níðsterkt í veiðina, hagstæður kostur. Garmin GPS 60 Ódýrt en fjölhæft, góð kaup. Sölubann verðurvirt Þegar Hjálmar er spurður að því hvort mikil umræða um rjúpnaveiði- bann hafi jafnvel fjölgað veiðimönn- um segir hann að svo geti jafnvel ver- ið. „ Ég er nokkuð viss um að fjöldi veiðimanna verði meiri en fjöldi af veiddum rjúpum á eftir að vera minni. Ég efast ekki um að veiði- menn eigi eftir að gæta sér hófs. Það er sölubann á rjúpum og það skiptir ekki máli þó einn veiðimaður veiði slatta af fugli því þá fyllir hann sína frystikistu fljótt. Hann þarf því að finna einhvern glæpamann til að kaupa þetta af sér. Ef veitingamenn virða þetta líka þá geta menn ekkert losnað við þetta, alveg sama hve illa innrættir þeir eru.“ svanhvit@vbl.is Listi yfir útbúnað Hér er listi yfir útbúnað sem gott er að vera með þegar gengið er til rjúpna. • Vatnsheldur hlífðarfatnað- ur sem andar • Ullarnærföt eða annar góð- ur undirfatriaður • Þykkir göngusokkar og annað auka par • Hlý húfa og þunn hetta. Gott ef húfan er í skærum lit • Vettlingar • Vatnsheldir leðurgöngu- skór • Skotvesti eða bakpoki und- ir útbúnað og fugla • GPS-staðsetningartæki • Sími • Áttaviti • Ljós með blikki • Nesti og eitthvað að drekka, drykkjarmál • Sjónauki www.garmm.is s GflRMIN Komdu í glæsilega verstun okkar við Fiskislóð 16 úti á Granda og kynntu þér gott úrval GPS staðsetningartækja frá Garmin. Við eigum allar stærðir og gerðir af tækjum sem henta fyrir hvers konar veiði, útivist og jafnvel skokkið, innanbæjar sem utan. o R.SIGMUNDSSON Umboðsmenn ^4 Akureyri Haftækni • Egilsstaðlr: Bllanaust • Grundarfjörður: Mareind - isafjörður: Benslnstöðin Keflavik: Tæknivik • Reyðarfjörður: Veiðiflugan ■ Selfoss: Hársnyrtistofa Leifs - Vestmannaeyjar: Geisli ^l Reykjavlk: Arctic Trucks, Everest, Hlað, Intersport, RSH, Útillf, Vesturröst • Frihöfnin ^ FISKISLÓÐ 16 I 101 REYKJAVlK | SÍMI 520 0000 I www.rs.is Hníf Teygjubindi og plástra Byssan þarf að vera hrein og í lagi • Vönduð skot sem þola kulda Einnig er nauðsynlegt að láta vita hvert maður fer, hve- nær maður kemur til baka en gott er að vera kominn inn í bíl fyrir myrkur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.