blaðið - 13.10.2005, Síða 2
18 I VEIÐI
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2005 Ma6i6
Rjúpnaveiðar hefjast á laugardag
Rjúpnaveiðar
ekki lengur
atvinnugrein
Eftir tveggja ára veiðibann fara
rjúpnaveiðimenn á stjá um
helgina, án efa með gleði í hjarta.
Sigmar B. Hauksson, formaður
Skotveiðifélags íslands, bíður
spenntur eftir helginni.
Sigmar talar um að viðhorf til
rjúpnaveiða sé öðruvísi í dag en fyr-
ir nokkrum áratugum. „Fram á rúm-
lega miðja síðustu öld þá stunduðu
flestir rjúpnaveiðar í atvinnuskyni
og fram yfir seinni heimsstyrjöld
þá var þetta atvinna. Þetta var eini
möguleiki ungra bænda og bænda-
sona til að afla sér aura og rjúpna-
veiðar voru því lengi vel atvinnu-
grein enda voru rjúpurnar seldar
til Danmerkur. Síðan fjölgaði hér
í Reykjavík og þá var rjúpan seld í
verslunum. Rjúpan var snemma vin-
sæll jólamatur og allar búðir fylltust
af rjúpu fyrir jólin. Nú er viðhorfið
breytt. Nú veiðum við rjúpu fyrst
og fremst til skemmtunar. Þetta fór
að breytast hægt og bítandi upp úr
1960 en það má segja að það hafi
orðið veruleg breyting á þessu upp
úr 1990.“
Rjúpnastofninn ekki
óþrjótandi auðlind
Sigmar segir að upp úr 1990 hafi
menn tekið eftir því að rjúpnastofn-
inn er ekki óþrjótandi auðlind.
„Rjúpan hefur þá náttúru að hún
sveiflast á tíu ára fresti, fer úr þvi
að vera yfir milljón fuglar niður í
að vera þrjú hundruð þúsund fugl-
ar. Þá getum við ekki sótt í stofninn
endalaust. Sú hætta er fyrir hendi,
auk ýmissa breytinga í náttúrunni,
að við göngum of nærri rjúpunni.“
Aðspurður um hvort veiðimenn eigi
eftir að virða sölubannið segist Sig-
mar halda það. „Það er þannig að
við hvetjum veiðimenn að gæta hófs
við veiðarnar á meðan við erum að
byggja stofninn upp, að menn veiði
i hófi og aðeins fyrir sig og fjölskyld-
una. Ég býst við því að allflestir veiði-
menn muni virða þetta.“
Verður hluti af náttúrunni
Þegar Sigmar er inntur eftir því
af hverju rjúpnaveiðin sé svona
skemmtileg verður honum ekki
orðavant. „I mínum huga er það í
f Benelli
5 ára ábvrgð * óllum nýium byssum
Dreifing:
Hólmaslóð 1 -101 Reykjavik ■ Simi 562-0095/898-4047 - www.veidihusid.is
fyrsta lagi að vera úti í náttúrunni.
Þú þarft að hafa öll skilningarvit
spennt til hins ýtrasta, þú þarft að
fylgjast með einkennum í náttúr-
unni því þú ert auðvitað einn út í
óbyggðum. Þú þarft að lesa í snjóa-
lög og náttúruna. Þú þarft að fylgj-
ast með veðrinu, hvernig fuglinn
hagar sér, hvort hann sé styggur eða
spakur, hvort hann sé að fela sig eða
éta og hvort hann er í skóglendi eða
klettum. Þannig að það má segja að
þegar þú ert að veiða rjúpu þá verð-
urðu hluti af náttúrunni. Þetta er
líka líkamlega erfitt, þetta er gríðar-
leg áreynsla. Menn eru oft á göngu
í fjalllendi í átta til tíu klukkutíma.
Svo er það félagsskapurinn, maður
er yfirleitt að veiða með góðum vin-
um og það er snar þáttur í þessu.
Oft myndast hefðir að félagar fari á
sama tíma á hverju ári á sama stað
og veiði saman. Svo má náttúrulega
ekki gleyma því að rjúpan er einhver
besta villibráð sem til er á Islandi.
Þetta er eini hænsnfuglinn sem hér
er og hún hefur þá náttúru að hún
lifir á háfjallagróðri. Rjúþan krydd-
ar sig því eiginlega sjálf og kjötið
er afar ljúffeng villibráð, fíngert og
bragðmikið."
svanhvit@vbl.is
Allt fyrir
RJÚPNAVEIÐINA
jannsi^
www
Hlað ehf. BiidshöfSa 12 - S