blaðið - 18.10.2005, Page 2
18 I HÚSBYGGINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 biaðiö
ARINVÖRUR
BYGGINGAVINKUUt
raíMí - - -
Allar gerðlr festlnga
fyrlr palla og grlndverk
i lager
ásctöb
ÁrmúH 17, 103 Reyhjjenrtk
síml, 533 1334 fax, 5GB 0499
www.isol.is
I
Dalvegur 24
Kópavogi
544 4884
Ódýrara að
vinna með
penna en brotvél
Að byggja þak yfir eigið höfuð
er sennilega með stærri verkefn-
um sem einstaklingar eða pör
geta tekið sér fyrir hendur. Að
mörgu er að huga á öllum stigum
þess ferlis sem á sér stað þegar
nýbyggingar eru reistar; minnsta
skyssa getur kostað mánaða tafir
og slíkar hafa eðlilega slæm áhrif
á líkamlegt og andlegt (að ekki
sé minnst á fjárhagslegt) ástand
væntanlegra húseigenda. Það er
betra að vita af vítunum sem ber
að varast áður en þau banka upp
á með vígtennurnar glampandi.
Daníel Erlingsson er 36 ára gam-
all smiður sem vinnur um þessar
mundir að því að koma upp húsi
undir og yfir sig og fjölskyldu
sína. Blaðið hringdi í hann og
spurði hvað þeir sem hyggjast
byggja ættu helst að hafa í huga.
„Ja, það er margt að vara sig á,“ tek-
ur Daníel undir. „Eitt aðalatriði, og
nokkuð sem fólk gefur oft ekki nógu
mikið vægi, er einfaldlega að vinna
nógu vel í teikningunum áður en
farið er af stað. Það er ódýrara að
vinna með penna heldur en brotvél,
skemmtilegra líka. Ég grunnhann-
aði allt sjálfur og var kominn með
mjög þróaða teikningu af okkar
hugmyndum áður en ég fór með
það til arkitekts. Ég var búinn að
þarfagreina hvað við þyrftum í hús-
inu, hversu mörg svefnherbergi, hve
mörg salerni og hve stór stofan ætti
að vera. Hvar í húsinu viltu hafa
þessa hluti? Á stofan að vera sunnan
eða vestanmegin, svo dæmi sé tek-
ið. Það er ekki hægt að skipuleggja
lagnaleiðirnar áður en komið er á
hreint hvar baðherbergi og þvotta-
hús eiga að vera staðsett. Þetta eru
því hlutir sem þarf að gefa sérstakan
gaum og gera sér almennilega grein
fyrir áður en maður talar við arki-
tekt, þannig má spara bæði tíma og
vinnu.“
Forgarður helvítis
Húsið sem Daníel stendur í að reisa
er 244 metrar að grunnfleti og stað-
sett í nýja hverfinu í Hafnarfirði.
Glerveggir-hurðir
Brautir - Hert glér
demetra
Skólavörðustíg 21 a Sími 551 1520
LOKADAGAR
ÚTSÖLUNNAR
wm
Glæsilegur kristall
og aðrar gjafavörur
Allt að
40% afsl.
a r
Cjiœsiiegur fy'istafíog Fiancfunnið ísfensft gier
(Frábœrt verð, mifið úrvaf
„Það er rúmlega fokhelt en stefnir í
að verða bráðlega tilbúið undir inn-
réttingar, þannig að það sér fyrir
endann á þessu. Meðan framkvæmd-
irnar ganga yfir búum við í góðu yf-
irlæti hjá tengdaforeldrum mínum,
höfum ekki lagt það á okkur að sofa
í tjaldi eða fellihýsi á grunninum,
eins og dæmi eru um.“
Daníel segir að ekki hafi verið mik-
ið um óvæntar uppákomur eða vand-
ræði við smíðirnar, það sem af er í
það minnsta. „Þetta hefur legið ansi
beint við. Grunnurinn var reyndar
aðeins til vandræða, það er klöpp
allt í kringum húsið en undir því
sjálfu er moldarsvað sem náði ansi
langt niður. Það var eiginlega eins
og forgarður helvítis. En við settum
fyllingu í, þannig að það gekk upp
fyrir rest.
Varðandi það sem ber að hafa
í huga þegar hús á borð við þetta
eru reist myndi ég telja alla fyrir-
hyggju sérstaklega mikilvæga, eins
og áður sagði. Það er t.d. mjög gott
að ákveða hvað maður vill í eldhúsi,
baði og gólfefnum áður en farið er
af stað, þannig að þú sért með ein-
hverja línu sem þú getur gengið út
frá og standir ekki í að ákveða allt
á síðustu stundu. Vertu líka búinn
að finna flesta iðnaðarmenn og gera
samning við þá áður en þú ferð af
stað, það getur sparað mikið ómak.
í raun er þumalputtareglan sú að
maður ætti að viðhafa gott skipu-
lag frá degi eitt í öllum málum, sér-
staklega húsbyggingum. Það er það
veganesti sem ég hafði með mér úr
smíðageiranum í þetta verkefni, en
sennilega reynslu minnar vegna
hefur fátt komið mér í opna skjöldu
við framkvæmdirnar. Maður hefur
heyrt af fólki sem lendir í alls kyns
veseni, miklum töfum og fjárútlát-
um, en við höfum verið blessunar-
lega laus við sllkt og það er sjálfsagt
að einhverju leyti fyrirhyggjunni að
þakka,“ segir Ðaníel.
haukur@vbl.is