blaðið - 06.04.2006, Blaðsíða 10

blaðið - 06.04.2006, Blaðsíða 10
Fermingarbarn ’6 7 10 I ERLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 blaðiö „Pabbi og mamma gáfu mér skáta- tjald í fermingargjöf sem var seinna stoliö frá mér í Húsafelli. En íslensku oröabókina sem ég fékk frá Gillu frænku á ég ennþá og hef notaö Fermingargjafir sem vit er í (Eb t d d a edda.is Bæði smekklegri og valdameiri en forverinn / nýrri œvisögu um Lauru Bush eiginkonu Bandaríkjaforseta kemur meðal annarsfram að hún er valdameiri en cetlað var. Forsetahjónin Laura og George Bush standa þétt saman Þrátt fyrir að vinsældir eigin- manns hennar hafi aldrei mælst minni hjá kjósendum er Laura Bush ein vinsælasta forsetafrú í sögu Bandaríkjanna. Nýrrar ævisögu, sem er rituð i samráði við forsetahjónin, er beðið með nokkurri eftirvæntingu í Bandaríkjunum. í henni kemur meðal annars fram að áhrif Lauru á stjórn forsetans eru umtalsverð og að hún er afar gagnrýnin á val Hillary Clinton á innréttingum. Þrátt fyrir að forsetafrúin hafi ekki látið mikið á sér bera frá því að maður hennar, George Bush, tók við embætti hafa stjórnvöld í Hvíta húsinu í auknum mæli notfært sér vinsældir hennar til þess að bæta ímynd forsetans, en kannanir sýna að um 85% Banda- ríkjamanna bera hlýjan hug til Lauru Bush. Stjórnmálaskýrendur tala um skipulagða herferð í þeim efnum og hefur borið mikið á Lauru í bandarískum fjölmiðlum og nýjasta útspilið í þeim efnum er útgáfa ævisögu hennar. Bókin er talin líkleg til mikilla vinsælda og í henni kemur meðal annars fram að áhrif Lauru á gang mála innan ríkisstjórnar eiginmanns hennar eru meiri en almennt var talið. Fékk Bush til að beita sér í mál- efnum kvenna í Afganistan I bókinni, sem er skrifuð af Ron- ald Kessler metsöluhöfundi fjölda bóka um bandarísk þjóðmál, er dregin upp mynd af vammlausri konu sem ráðamenn innan stjórn- arinnar sækja gjarnan til þegar góðra ráða er þörf. Fram kemur að hún hefur komið með tillögur um áherslur stjórnarinnar í stefnu- málum og jafnvel haft áhrif á fjár- veitingar innan stjórnkerfisins. Haft er eftir Condoleezzu Rice, núverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi öryggisráðgjafa forset- Laura Bush höfðar sterkt til almennings í Bandaríkjunum. ans, að Laura hafi átt hugmynd- ina að því að bandarísk stjórnvöld lögðu áherslu á að afhjúpa fyrir umheiminum bága stöðu kvenna undir stjórn Talíbana í Afgan- istan. Einnig kemur fram að for- setafrúin hafi mikil áhrif á hverja forsetinn skipar í embætti. Einn ónafngreindur heimildarmaður tekur svo sterkt til orða að hún hafi beitt „neitunarvaldi" gegn sumum tilnefningum. Þrátt fyrir þetta segir Laura i bók- inni að hún gæti þess að skipta sér ekki of mikið af starfi eiginmanns síns og að gagnrýni hennar á störf hans sé ávallt jákvæð og uppbyggi- leg. Hún gerir það að ráði tengda- móður sinnar, Barböru Bush fyrrum forsetafrúar, en gagnrýni hennar á son sinn hefur stundum sett forsetann í háska. Þekkt er að Barbara gagnrýndi eitt sinn ræðu- höld hans svo harkalega að honum varð svo bylt við að hann missti stjórn á bíl sínum og keyrði á. Þrátt fyrir að Kessler geri mikið úr áhrifum Lauru á ríkisstjórn forsetans fjallar stærsti hluti bókarinnar um einkalíf hennar. Fram kemur í bókinni að Laura hafi valdið banaslysi 1 umferðinni þegar hún var 17 ára og þau hjónin hafi eignast tvíburana, Jennu og Barböru, eftir að hafa tekið inn kröftug frjósemislyf. Talar um sóðaskap Hillary Sá kafli í bókinni sem vakið hefur hvað mesta athygli fjallar um hve hneyksluð forsetafrúin var á því hvernig forveri hennar, Hillary Clinton, innréttaði vistarverur Hvíta hússins og hversu niður- nídd húsgögnin og teppin voru þegar þau Laura og George fluttu inn. Laura, sem er annáluð smekk- manneskja, segir að hún hafi þurft að taka á honum stóra sínum til þess að koma hlutunum til betri vegar. Ekki er hefð fyrir því að forseta- frúr í Bandaríkjunum tjái sig mikið um forvera sina en sú staðreynd að í bókinni eru fleiri skot á Hillary Clinton þykir benda til að repúblik- anar eru farnir að taka fyrirhugað forsetaframboð hennar árið 2008 alvarlega. Grunaður um hryðjuverk vegna tónlistarsmekks Bresk lögregluyfirvöld stöðvuðu flugvél sem var að hefja sig til flugs í Durham á Englandi á leið til London í gær. Talið var að hryðju- verkamaður væri á leið um borð i vél- ina. Ástæðan fyrir óttanum var sú að hinn 24 ára gamli Harraj Mann hafði sungið lag upphátt með ensku rokkhljómsveitinni Clash í leigubíl á leið til vallarins. Ökumaður leigu- bílsins leist ekki betur en svo á texta lagsins London Calling sem Mann söng í bílnum að hann lét lögreglu- yfirvöld vita um grun sinn að þarna væri líklega hryðjuverkamaður á ferð. Lagið fjallar um kjarnorkuárás á London. Mann var færður til yfirheyrslu eftir handtöku en var sleppt að henni lokinni. Hann missti af fluginu. Haft er eftir í honum í enskum fjöl- miðlum í gær að hann hafi sungið með lögum Led Zeppelin og Clash sem hann lék á ferðaspilaranum sínum í leigubílnum en taldi þá iðju ekki gefa ástæðu til þess að ætla að hann hyggðist fremja hryðjuverk. Lögregluyfirvöld í Durham sögðu í fjölmiðlum í gær að leigubílstjór- anum hefði verið full alvara með ábendinguna og hvöttu borgara til að halda áfram að láta vita yrðu þeir vitni að einhverju grunsamlegu. Tónlist hryðjuverkamanna?

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.