blaðið - 06.04.2006, Side 18
18 I VÍSINDI
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 blaöiö
Gengið í svefni af völdum svefnlyfs?
Rannsóknir benda til þess að svefnlyfsem selt er hér á landi kallifram samtvinnun hvata.
BlaÖiö/SteinarHugi
BlaÖiÖ/Gúndi
Hláturinn
lengir í raun
og veru lífið
Þetta eru ekki nýjar fréttir. Ómar
Ragnarsson söng um það á sínum
tíma að hláturinn lengi lífið og
lengi hefur þessu verið haldið fram
víða um heim. Vísindamenn hafa
hins vegar rannsakað þessa gömlu
kenningu og komist að því að hún
á við rök að styðjast. Það kom í ljós
í rannsókn sem framkvæmd var í
Loma Linda-háskólanum að jafnvel
eftirvæntingin ein eftir því að sjá
eitthvað fyndið getur aukið ónæmis-
styrkjandi hormón líkamans oggeta
áhrifin varað í allt að sólarhring.
Dr. Lee Berk, sem var í forsvari
fyrir rannsóknina í Loma Linda-há-
skólanum segist hafa komist að því
að fólk sem bjóst við að sjá fyndið
myndband var með 27% meira af
beta-endorfínum og 87% meira af
vaxtarhormónum í líkamanum en
þeir sem voru í viðmiðunarhópnum
og bjuggust ekki við að fá að sjá eitt-
hvað fyndið. Hver segir svo að kell-
ingabækurnar hafi aldrei rétt fyrir
sér?
Nýjar rannsóknir benda til þess
að svefnlyfið Ambien leysi úr læð-
ingi þörf fyrir að borða - í svefni.
Hið virta dagblað New York Times
greinir frá rannsóknunum þar sem
sagt er frá því hvernig lyfið hafi þau
áhrif á sumt fólk að það gangi í svefni
að ísskápnum og éti á sig gat. Daginn
eftir muna „nætur æturnar“ ekkert
eftir þessum leiðöngrum en vísbend-
ingarnar eru út um allt: hnetusmjör í
munninum, kartöfluflögur í rúminu,
matur sem áður var til er horfinn og
kveikt er á ofninum eða eldavélinni.
Selt hérálandi
Utan Bandaríkjanna er Ambien selt
undir nöfnunum Stilnox og Stilnoct
en það síðarnefnda er á íslenskum
markaði og er talsvert mikið notað.
Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri
Lyfjastofnunar, segir að það sé hlut-
verk yfirvalda að fylgjast með og
skrá aukaverkanir lyfja. „Ef það
koma fram svona aukaverkanir þá
er það að sjálfsögðu tekið til skoð-
unar. Ef það kemur síðan í ljós að
þessar aukaverkanir séu af völdum
lyfsins, þá á það að koma fram í
upplýsingum um lyfið." Rannveig
segir þetta vera skyldu yfirvalda og
lyfjafyrirtækisins.
Egg og beikon
„Þetta fólk er knúið áfram af þörf-
inni fyrir að borða,“ segir Dr. Mark
Mahowald frá svefnrannsóknarstöð
í Minnesota, í samtali við New York
Times. Kona ein í Kalíforniu sem not-
aði Ambien lýsir því hvernig það var
að vakna á morgnana með rúmið
fullt af sælgætisbréfum og matar-
leifar um allt eldhús. Hún kenndi
éiginmanni sínum og sonum um
sóðaskapinn í fýrstu áður en hún
komst að raun um að sökudólgurinn
væri hún sjálf. Konan segir að sonur
hennar hafi óttaðst það svo mjög að
hún myndi kafna í svefni einhverja
nóttina að hann hafi vakað yfir
henni. Konan komst ekki að því að
þetta vandamál hennar tengdist Am-
bien fyrr en hún hafði bætt á sig 50
kílóum. Önnur kona byrjaði að taka
lyfið vegna uppskurðs á baki. 1 kjöl-
far aðgerðarinnar þurfti hún að vera
í gifsumbúðum frá toppi til táar og
gat ekki hreyft sig fram úr rúminu.
Engu að siður fór matur að hverfa úr
ísskápnum á nóttinni. Hún ásakaði
hjúkrunarfólkið sem annaðist hana
um þjófnað og það var ekki fyrr en
sonur hennar vakti yfir henni að hið
sanna kom í ljós. Þrátt fyrir gifsið
tókst henni að komast að ísskápnum
í svefni og gæða sér á kræsingum. „Á
daginn komst ég ekki einu sinni á
klósettið eins míns liðs,“ segir konan.
Þegar sonurinn kom að henni fyrstu
nóttina sem hann var hjá henni stóð
hún hinsvegar við eldavélina og var
að steikja sér egg og beikon. Þegar
hún hætti að taka inn Ambien hvarf
vandamálið eins og dögg fyrir sólu.
Vinsælt svefnlyf
Svefnlyfið Ambien hefur notið mik-
illa vinsælda í Bandaríkjunum síð-
ustu ár og voru 26 milljónir lyfseðla
gefnir út á lyfið 2005. Sanofi-Aventis,
franska lyfjafyrirtækið sem fram-
leiðir Amhien segir lyfið fullkomlega
hættulaust. Talsmaður fyrirtækisins,
Melissa Feltmann, segir að allar þær
tilkynningar sem borist hafa um
þessa hvimleiðu aukaverkun hafi
verið tilkynntar til bandaríska lyfja-
eftirlitsins. Þrátt fyrir að meirihluti
þeirra sem nota lyfið geri það án nok-
urra vandkvæða, virðast aukaverk-
anir lyfsins þó vera nokkrar og segir
í New York Times að frést hafi að fólk
gangi í svefni, þjáist af ofskynjunum,
hneigist til ofbeldis og, sem liklega
vekur mestar áhyggjur, keyri í svefni.
Bandaríska lyfjaeftirlitið segir að
í ljósi þessara frétta verði farið ítar-
lega yfir sögu lyfsins sem verið hefur
á bandarískum markaði í 13 ár.
Frumhvatir tvinnast saman
Engar skýringar hafa fundist á þess-
ari undarlegu aukaverkun lyfsins, en
Dr. Carlos H. Schenk, svefnröskun-
arsérfræðingur i Minneapolis segist
vera á þeirri skoðun að þetta gerist
á þann hátt að heilinn slái saman
tveimur frumhvötum, að borða og
sofa. „Lyfið orsakar samtvinnun
þessara hvata á einhvern hátt,“ segir
sérfræðingurinn.
Auglýsing
Um deiliskipulög í Reykjanesbæ
Samkvæmt 25.gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997,er
hér með auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulögum.
1. Nýtt deiliskipulag íbúðabyggðar í Hlíðahverfi.
Svæðið afmarkast í suðri af væntanlegri Borgabraut og
norðri af Flugvallarvegi. Deiliskipulagstillaga sýnir
íbúðabyggð með blandaðri byggð á l.til 5.hæðum.
2. Nýtt deiliskipulag fyrir öldrunarþorp og hjúkrunar-
heimili.Svæðið afmarkast af Hjallavegi í suðri,
baklóðum Vallarbrautar í vestri, Krossmóa að norðan
og Njarðarbraut að austan. Deiliskipulagstillaga sýnir
2-3.hæða hjúkrunarheimili og þjónustumiðstöð, 3-6.
hæða fjölbýlishúsog l.hæðar raðhús.
Tillögu uppdrættir með greinagerðum liggja frammi á skrifstofu
ReykjanesbæjarTjarnargötu 12,frá fimmtudeginum 7.apríl til 7.
maí 2006.
Athugasemdum við tillögurnar skal skila til bæjarstjóra
Reykjanesbæjar eigi síðar 22.maí 2006 og skulu þær vera
skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkir tillögunum.
Reykjanesbæ 3.apríl 2006
Viðar Már Aðalsteinsson
Framkvæmdastjóri umhverfis- og skipulagssviðs
Var Jesús í jakahlaupi?
Það má vel vera að Jesús hafi gengið
á vatni. Spurningin er hins vegar
í hvaða formi vatnið var. Vísinda-
menn frá Flórída halda því nefnilega
fram að verið geti að spámaðurinn
hafi í raun gengið á nokkurskonar
ísfleka sem myndast hafi á Galíleu-
vatni á sínum tíma. Að mati vísinda-
mannanna er möguleiki á þvi að
óvenjuleg skilyrði í vatninu ásamt
snöggu kuldakasti geti útskýrt hina
frægu bibliusögu. Þeir segja, að
svona tilvik hafi átt sér stað á um
það bil 160 ára fresti fyrir 1500 til
2500 árum síðan. „Þetta er aðeins
byggt á líkum, þannig að við erum
ekki vissir um að þetta hafi gerst,“
segir prófessor Doron Nof við ríkis-
háskólann i Flórída. „Við erum að-
eins að benda á að líkur séu á þvi að
þetta fyrirbæri hafi verið til staðar á
tímum Jesús. En hvort þetta útskýri
söguna af því þegar hann á að hafa
gengið á vatninu, það veit ég ekkert
um.“
Rokið reddaði Móses
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem pró-
fessor Nof og félagar hans hafa reynt
að finna vísindalegar útskýringar á
biblíusögunum, en árið 1992 færðu
tveir félaga hans stærðfræðina sér í
nyt þegar þeir könnuðu söguna af
því þegar Móses skildi Rauða hafið
að. Þeir komust að því að þetta væri
mögulegt ef stöðugur vindur blési í
norð-austur á 64 kílómetra hraða á
klukkustund í um það bil 10 stundir.
Vindurinn hefði ýtt vatninu frá
stöndinni og minnkað vatnshæð-
ina þannig að neðansjávarhryggur
hafi komið í ljós. Móses hafi síðan
leitt þjóð sína eftir þessum hrygg úr
ánauð í Egyptalandi og aftur til fyr-
irheitna landsins.
NLP Námskeið
Neuro - Lingustic - Programming
- Er sjáll'straustið í óiagi?
- Langar þig i bctri líðan?
- Finnst þér að fáir skilji þig?
- Er eitthvað í fari þínu scm að þú vilt vinna bug á7
- Finnst þér að öðrutn gangi bctur í Iífinu en þér?
- Gengur illa að klára vcrkcfni scm þú bytjar á?
- Finnst þér crfitt að höndla gagnrýni?
Með NLP aðferðum gctur þú auðvcldlega brcytt lífi þínu og skapað þína eigin framtíð.
NLP cr notað af fólki um allan heim scm hcfur náö frábærum árangri i llfinu
Námskciðið fer fram helgarnar 28,29, 30.apríl og 5, 6, 7.mai.
Kennt er föstudaga frá kl.18-22 og laugardag og sunnudag frá kl.10-18.
Lciðbcinandi: Kári Eyþórsson MPNLP.
Upplýsingar i sima: 894*2992
Netfang: kari@ckari.CQm
Nánari upplýsingar um NLP má finna á: www.ckari.com