blaðið - 10.04.2006, Síða 8

blaðið - 10.04.2006, Síða 8
24 l! MATUR MÁNUDAGUR lOíAPRÍL 2006 MaöiA Matgœðingurinn spurður Hœfilegan skammt af ást í réttinn Þorbjörg Hafsteinsdóttir hefur vakið athygli landsmanna eftir að þátturinn Heil og sæl hóf göngu sina á Skjá einum. Þar leggur hún áhorfendum línurnar varðandi mat- argerð ásamt manni sínum, Oscari Umahro Cadogan, en saman fara þau í gegnum 10 grunnreglur í mata- ræði sem geta leitt til stórbættrar heilsu og aukinnar orku. Þorbjörg, sem er hjúkrunarfræð- ingur og næringarþerapisti d.e.t. að mennt, féllst á að svara nokkrum spurningum um eigið mataræði og það sem er í hennar mesta uppáhaldi. Annars er hægt að fræðast meira um boðskap Þorbjargar á heimasíðunni www.rogrunnreglur.co Hver erþinn uppáhaldsmatur? Fiskur, sérstaklega steinbítur, sjólax, lúða eða skötuselur sem er matreiddur eins blíðlega og hægt er - gjarnan hrár en helst gufusoð- inn með nýju grænmeti, sætum kartöflum og pesto frá La Selva. Svo má einnig nefna nautakjötsvöðva eða lambakjöt í Römertopf leirpotti kryddað með negulnöglum og allra- handana, kanel, hvítlauk, salti og pipar. Rauðlaukur í botninum og vatn nægilegt til að hylja laukana. Er í ofninum i 4 klst og þvílikt kjöt og bragð! Grænmeti með t.d. gufu- soðnu broccoli, rúsínur, eplabitar, möndluflögur í hreinu jógurti. Ein- falt, fljótlegt og gott, gott, gott! Versti matur sem þú hefur smakkað? Sem betur fer tekst mér oftast að sniðganga vondan mat, en neyðin hefur einstaka sinnum rekið mig inn á veitingahús þar sem borinn er hryllingur fram, t.d. kjúklinga- vængir sem er búið að djúpsteikja í sömu olíunni 150 sinnum eða græn- metisréttir sem eru gömul klístruð hrisgrjón mótuð sem buff og tóm- atar með þúsundeyjasósu út á. En mér hefur sjálfri tekist að búa til mjög bragðvondan mat sem getur gerst þegar ég er í tilraunaeldhús- inu og þróa uppskriftir. Þar fæðast stundum réttir sem ekki lifa lengi! Er eitthvað sem þú borðar aldrei? Ruslfæði og matvæli sem eru með viðbættum sykri og/eða gervisykri og unnum jurtaolíum! Ég borða næstum aldrei pasta og ég sniðgeng hestakjöt og hvalkjöt. Ekki endilega af þvi að það er slæmur matur - það er bara ég. Hvaða eftirrétt kýstu helst? Ávaxtasalat er uppáhaldið. Það þarf ekkert að hafa fyrir því að laga flókna eftirrétti fyrir mig. Góða osta, t.d. parmaggio, gorgon zola, geitarost t.d. manchego, maddona, nokkrar döðlur, rúghrökkbrauð og glas af góðu rauðvíni er toppurinn. Og svo ávextirnir á eftir. Uppáhaldshráefni í matargerð? Steinbítur og lúða, lífrænar sí- trónur þvi ég nota börkinn líka. Eins klettasalat, íslenskt bankabygg, þurrkaðir cherry tómatar í extra virgin ólífuolíu frá La Selva, ban- anar, bláber, hörfræolía o.fl. Uppáhaldskryddjurt eða krydd? Kanell, kóriander, hvítlaukur, járn- jurt, blóðberg, og svo eru Sonnentor kryddin í uppáhaldi. Og svo er það hann Umahro minn! Hmm! Eru einhverjir veitingastaðir í uppáhaldi? Ég á mína uppáhaldsstaði út um allan heim; í Kaupmannahöfn, í Róm og í Toscana, í Marrakech, í Rabat, í London, í Vancouver og fl. í Reykjavík fer ég ekki nóg út að borða en maturinn hennar mömmu á Tjarnargötu er í miklu uppáhaldi og svo er indverski staðurinn á Hverfisgötunni frábær. Hvað eldarðu þegar þú vilt elda eitthvað létt ogþægilegt? Ef ég kem seint heim og allir svangir elda ég eitthvað mjög fljót- legt. Ég tek fram Fissler gufu-wok- pottinn okkar og skelli honum á gasið með kókosolíu ofan í. Svo tek ég wok -grænmetið fram sem er beint úr pokanum frá Himneskri hollustu og svisa í olíunni snöggt, bæti síðan rækjum út í og sítrónu- safa og -berki, steinselju. Geturðu nefnt einhverjar mat- reiðslubœkur sem þú notar mikið? Kille Enna, vinkona okkar er frábær kokkur og hefur skrifað frábærar matreiðslubækur. Ann- ars skoða ég mest myndir og er- lend matreiðslutímarit og heim- sæki veitingarhús og markaði í öðrum löndum til að fá innblástur. Hvað þarfhelst að hafa í huga við matargerð? Að hráefnið sé ferskt og af góðum gæðum, að nota eldunaraðferðir sem ekki drepa matinn og gera hann óætan, og að setja hæfi- legan skammt af ást í réttinn þá klikkar þetta ekki! Borðarðu eitthvað sælgæti? Já, en ekki það sem þið kannski eigið við. Égborða rúghrökkbrauð með sykurlausri bláberjasultu, sem mér finnst algjört sælgæti. Ég borða Lara Bar úr þurrkuðum ávöxtum, hnetum og möndlum, ég fæ mér popp í bíó, og einstaka sinnum 75-80% sterkt súkkulaði. Þú sérð mig hinsvegar aldrei borða bland í poka eða álíka litasprengju, því mér þykir það hreinlega ógeðs- legt! Ekki að ég álíti mig fanatíska, en ef gæðameðvitund er það sama þ á er ég það sennilega og lifi góðu lífi með því. % FUNHEITAR EÐA SVALAR í veísCuna

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.