blaðið


blaðið - 24.04.2006, Qupperneq 22

blaðið - 24.04.2006, Qupperneq 22
30 I ÍPRÓTTIR MÁNUDAGURINN 24. APRÍL 2006 blaöið Reuters íranir tilbúnirí slaginn (ranir standa í ströngu á flestum sviðum þessa dagana. Þeir eiga ekki eingöngu við umheiminn á sviði alþjóðamála heldur munu þeir einnig taka þátt á HM í knattspyrnu. Um helgina voru nýjar keppnistreyjur landsliðs þeirra í knatt- spyrnu kynntar. Eins og sést á myndinni var landsliðsþjálfarinn, Branco Ivankovic, og aðstoðarmaður hans, Sharokri, ánægðir með nýju treyjuna. (ranir leika í D-riðli á HM í Þýskalandi í júní í sumar. Riðillinn er spennandi en (ranir etja kappi við Portúgali, Angóla og Mexíkóa. íslenska liðið stefnir á gull Heimsmeistaramót3. deildarkarla í íshokkí hefst í dag, mánudag í Skautahöllinni. Heimsmeistarakeppni 3. deildar karla í íshokkíi 2006 fer fram í Skautahöllinni í Laugardal frá 24. til 29. apríl. Þátttökuþjóðir utan íslands eru Armenía, írland, Lúxemborg og Tyrkland. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, menntamálaráðherra, setur mótið formlega á mánudagskvöldið kl. 19:45 að viðstöddum heiðursgest- unum Miroslav Subrt, æviforseta Al- þjóða íshokkísambandsins, Ellerti B. Schram forseta ÍSÍ, Stefáni Konráðs- syni, framkvæmdastjóra ÍSl, Ólafi G. Einarssyni, fyrrum menntamálaráð- herra, fulltrúum fjölmargra styrkt- araðila Íshokkísambands Islands og fleiri gestum. Fyrsti leikur íslenska liðsins fer fram að mótssetningu lok- inni þegar íslenska liðið tekst á við liðið frá Lúxemborg. Það er spennandi vika sem bíður áhugamönnum um íshokkí en leiknir verða alls 10 leikir frá mánudegi til laugardags. Þetta er í 8. sinn sem ÍHÍ teflir fram landsliði í fullorðinsflokki og í þriðja sinn sem heimsmeistara- keppnin er haldin hér á íslandi. Vorið 2004 lék liðið á heimavelli og vann sig upp í 2. deild. Á síðasta ári var haldið til Belgrade í Serbíu og Svartfjalla- landi þar sem liðið féll hins vegar aftur í 3. deild. I ár er íslenska liðið hins vegar ákveðið í að vinna mótið og endurheimta sætið í 2. deild. Óvenjuungt lið Stemmningin er mjög góð í íslenska liðinu og leikmennirnir eru í góðu formi þessa dagana. Liðið hefur verið að ganga í gegnum endurnýjun og er meðalaldur mjög lágur miðað við önnur landslið. Þeir ungu leikmenn sem eru í liðinu núna hafa æft vel og lengi, þeir hafa góðan leikskiln- ing, mikið þol og tækni. I liðinu eru einnig reynsluboltar með marga leiki að baki eins og varnarmaðurinn Ing- var Þór Jónsson og sóknarmennirnir Jónas Breki Magnússon og Rúnar Rúnarsson sem eiga allir yfir 30 lands- leiki að baki. Tveir atvinnumenn eru í liðinu, þeir Jón Gíslason og Daníel Eriksson sem léku með Nordic Vik- ings í Asíu-deildinni sl. vetur. Strákarnir stefna á að vinna þetta mót. Þeir telja sig eiga mikla mögu- leika á því og þar með færast upp í aðra deild. Aðalþjálfari landsliðsins Ed Maggiacomo er einnig mjög bjart- sýnn á að liðið nái gulli. Hann segir það hafa gefið liðinu meiri breidd að hafa fengið leikmenn sem spila erlendis með í liðið og segir íslenska liðið hiklaust eiga heima í 2. deild. LENGJAINI LEIKIR DAGSINS Spilaðu á næsta sölustað eða á (engjan.is Djurgárden - Gautaborg 1,75 2,80 3,15 Helsingborg - AIK 1,80 2,80 3,00 Örgryte - Gefle 1,95 2,70 2,75 Start - Brann 1,80 2,80 3,00 Greuther Fiirth - Energie Cottbus 1,85 2,75 2,90 Amiens - Sedan 2,45 2,60 2,20 Fulham - Wigan 1,85 2,75 2,90 Academica Coimbra - Braga 2,20 2,60 2,45 Reuters Rafael Benitez kaus að vera með bindi í undanúrslitaleiknum, en Jose Mourinho kaus hins vegar að vera með trefil. Íberískt orðaskak í kjölfar undanúrslitaleiks Jose Mourinho, hinn portúgalski knattspyrnustjóri Chelsea, tók ósigri liðsins gegn Liverpool í und- anúrslitum bikarsins með miklu jafnaðargeði þrátt fyrir að draumur hans um að sigra bæði bikar og deild yrði að engu. Hann sagði við blaðamenn eftir leikinn að þrátt fyrir úrslitin væri Chelsea mun betra lið og benti á að í tíu rimmum liðanna síðustu tvö árin hefði Liverpool aðeins unnið tvisvar. „Þeir eiga ekki möguleika í okkur yfir heilt keppnistímabil,“ sagði hinn geðþekki knattspyrnu- stjóri og benti á að samanlagt for- skot Chelsea á Liverpool yfir tvö síðustu keppnistímabil væru 45 stig. „Betra liðið vann ekki leikinn. Það var jafnt á með liðunum í fyrri hálfleik. Liverpool byrjaði ágætlega í seinni hálfleik en við stjórnuðum leiknum algjörlega síðustu þrjátíu mínúturnar,“ sagði Mourinho og kenndi tapinu um að leikmenn hans hefðu ekki nýtt færin sín og að Liverpool hefði verið heppið með dómgæslu. „Það er ekki hægt að sleppa að nýta færin gegn liði sem leikur svo varnarsinnaðan leik,“ sagði hann ennfremur og sagði á sinn kaldhæðna hátt að hann von- aði að Liverpool myndi ganga vel í undankeppni Meistaradeildarinnar á næsta tímabili. Rafael Benitez, hinn spænski knattspyrnustjóri Liverpool, sagði blaðamönnum eftir leikinn að Mo- urinho hefði ekki viljað taka í hönd- ina á sér eftir leikinn. „Hann sá mig fagna með stuðningsmönnum okkar og ég ætlaði að þakka honum fyrir leikinn en hann hafði greinilega engan áhuga á því,“ sagði Benitez eftir leikinn og bætti við að þrátt fyrir að Chelsea hefði marga dýra leikmenn í herbúðum sínum mátti það lítils gegn liðsanda í Liverpool. .Leikmenn mínir voru frábærir og það að komast í úrslitaleik bikarsins er frábært afrek.“ VINNUVÉLANÁMSKEIÐ NÁMSKEIÐ VIKULEGA vidur.is Harðviðurtil húsbygginga. Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket o.fl.o.fl.Gæði á góðu verði Uppl. hjá Magnúsi (síma 660 0230 og 561 1122 Skeytin inn Bryan Robson, knatt- spyrnustjóri West Brom- wich Albion og fyrrum fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, gagnrýnir í nýrri sjálfsævisögu sinni gulldreng- inn David Beckham. Robson segir engan veginn við hæfi að Beckham sé fyrirliði enska landsliðsins. Robson segir að Beckham hafi ekki sömu leið- togahæfileikana og John Terry, fyrirliði Chelsea, og Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, og skorti grimmdina sem er nauð- synleg í fari sannra leiðtoga. Robson telur væntingar Eng- lendinga fyrir HM í Þýskalandi vera fullmiklar en segir þó að núverandi lið sé það besta sem England hefur teflt fram síðan 1990 og geti hugsanlega farið alla leið og unnið mótið. Meira um enska landsliðið. Gareth Southgate, fyrrum landsliðsmaður og núverandi varnarjaxl Middlesbrough, telur að knattspyrnustjóri sinn, Steve McClaren, ekki vera reiðubúinn til þess að axla þá ábyrgð sem felst í starfi landsliðsþjálfara. McClaren er einn þeirra sem kemur til greina sem arftaki Sven-Göran Eriksons eftir HM í sumar. Southgate segir McClaren vera góðan knatt- spyrnustjóra en hann þurfi meiri reynslu áður en hann taki að sér landsliðsþjálfun. Southgate segir að þrátt fyrir að hjartað segi honum að næsti landsliðsþjálfari ætti að vera Englendingur segi skynsemin honum að gáfulegast væri að fá Arsene Wenger, hinn franska knattspyrnustjóra Arsenal í starfið. Allir virð- ast hafa sterkar skoðanir á því hver eigi að verða næsti landsliðs- þjálfari Englend- inga. Brasilíski landsliðsmaðurinn Juninho, sem hefur leikið undir stjórn McClaren hjá Middlesbrough, segir landa sinn Filipe Scolari, landsliðsþjálfara Portúgals, vera rétta manninn í starfið. Scolari hefur lýst yfir áhuga sínum á starfinu en enska knatt- spyrnusambandið er staðráðið í því að næsti landsliðsþjálfari verði af bresku bergi brotinn. Hinir fjölmörgu aðdá- endur ísraelska knatt- spyrnuliðsins Maccabi Haifa á Islandi fögnuðu grimmt um helgina en þá tryggði liðið sér titilinn í ísraelsku deildinni. Maccaba Haifa hefur mikla yf- irburði í ísraelskri knattspyrnu og hefur unnið deildina fimm sinnum síðustu sex keppnis- tímabil.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.