blaðið - 24.04.2006, Side 24

blaðið - 24.04.2006, Side 24
32 I MENNING MÁNUDAGUR 24. APRÍL 2006 blaöiö Hulda Hákon í Kína Listakonan Hulda Hákon býr þessa dagana í Kína, nánar tiltekið í Xia- men, þar sem hún vinnur að úti- listaverki sem sett verður upp í Finn- landi. Þetta er ekki fyrsta verkið sem Hulda vinnur í Kína því hún kom þar fyrst árið 2004 ásamt eigin- manni sínum Jóni Óskari. „Ég hefði örugglega ekki farið aftur alla leið til Kína til að vinna nema vegna þess að ég kynntist landinu aðeins í fyrri ferðinni og þá aðallega í gegnum Chinese European Art Center, sem er miðstöð í Xiamen sem vinnur að því að auka samskipti Kína og Evr- ópu á menningarsviðinu. Þá lét ég Verkið sem Hulda Hákon er að vinna að er útilistarverk sem sett verður upp í Finnlandi. Hulda Hákon. Hún dveiur í Kína og vinnur að iist sinni. steypa verk fyrir mig í brons og vinn nú með sömu aðilum og þá. I fyrri ferðinni var ég í mun verndaðra umhverfi en nú og umkringd ensku- mælandi Kínverjum," sagði Hulda Hákon þegar blaðamaður hafði sam- band við hana. Þegar hún er spurð af hverju Finnar hafi valið hana til að gera útilistarverk segir hún: „Finn- arnir sáu útilistarverk eftir mig í Noregi og það vakti áhuga þeirra. Þeir báðu mig því að vinna fyrir sig verk og ég tók boðinu. Verkið er steypt í brons og verður svo pólerað. Ég valdi að vinna með Kínverjum vegna þess að ég vann með þeim í fyrri ferðinni og allt stóðst eins og stafur á bók. Núna gerðu Kínverjar mér tilboð í allan pakkann og sjá meira að segja um að koma lista- verkinu til Finnlands. Kínverjar eru fyrsta flokks handverksmenn og það er mjög gaman að fylgjast vinnu- brögðum þeirra. “ Hulda Hákon dvelst í Kína til 15. maí. Hún segir dvölina vera mikið ævintýri. „Ég bý nálægt höfninni í gömlu kínversku hverfi. Þegar ég fer út þá blasa við litlar verslanir og veit- ingahús sem virðast aðallega vera rekin af fjölskyldum sem búa þá mjög gjarnan á efri hæðinni. Það er einhver þorpsstemning í þessu öllu og næsta skref hjá mér er að reyna að finnast ég tilheyra á einhvern hátt. Ég hef aldrei upplifað hérna óhug þegar ég er ein á ferð. Fólkið er hlýlegt, brosmilt og yfirleitt stálheiðarlegt. 1 fyrra skiptið sem ég var hérna átti ég í miklu basli með að finna mat sem hentaði mér. Var alltaf að leita að grófri kornvöru sem er ófá- anleg. Langaði til dæmis mikið í rúg- brauð með osti. Ostur sést hvergi. Maður þarf að fara í hálftíma ferða- lag í strætó til þess að nálgast hann. Hann fæst í vestrænni búð nálægt flugvellinum. Núna reyni ég bara að borða það sem fólkið hér er að borða. Þar sem húsið mitt er við sjóinn er mikið um sjávarfang á boðstólum. Allt frá stórum kröbbum niður í ein- hverskonar marflær. Ávextirnir og grænmetið er mjög gott og mikið úr- val. Allt kjöt hér er mjög bragðgott. Ég held að það hljóti að vera vegna þess að það er ekki komin verk- smiðjuframleiðsla á það. í fyrra skiptið sem ég var hérna átti ég mun erfiðara með að gera mig skiljanlega. Talaði ensku við fólk sem kann ekki ensku og stundum varð þetta tómt rug. Erla Þórarins- dóttir, vinkona mín sem var hér um tíma, sagði mér að tala bara íslensku ef viðkomandi kynni ekkert í ensku. Það er svo skrítið að eftir að ég fór að gera það þá er miklu auððveldara að gera sig skiljanlega. Nú fer ég bara út eins og fín frú og kaupi í matinn eins og ekkert sé.“ Kiljur trá JPV útgáfu JPV útgáfa hefur sent frá sér Tjöldin - ritgerð í sjö hlutum eftir Milan Kundera í þýðingu Friðriks Rafnssonar. Iþessuritgerðasafni fjallar Milan Kundera um evrópsku skáld söguna, allt frá ís- lendingasögum til samtímahöfunda, og tengsl hennar við skáldsagnahefð annars staðar, svo sem í Suður-Am eríku og Japan. Kundera leggur áherslu á að skáldsagan sé sérstök list- grein, ákveðið form þekking- arleitar sem á að baki merka sögu, en býr líka yfir ákveðnum sérkennum þar sem kímni og húmor eru meðal lykilatriða. Hann bendir á að skáldsagan sé manninum mikilvæg til þess að skilja flókinn nútímaheiminn, sjá í gegnum „tjöld fyrirframtúlkunar- innar“, vita hvaðan hann kemur, í hvaða samhengi hann lifir og hvert stefnir. Tjöldin komu út í París vorið 2005 og hlutu afar lofsamlega dóma sem einstaklega læsileg og aðgengileg hugleiðing um skáldsöguna. Bókin var á metsölulistum í Frakklandi vikum saman og hefur þegar verið þýdd á ein tuttugu tungumál. Milan Kundera er einn merkasti skáldsagna- og ritgerðahöfundur samtímans. Hann fæddist í Tékk- landi, en fluttist til Frakklands árið 1975 þar sem hann hefur búið og starfað æ síðan. Tíu bækur, átta skáld- sögur, smásagnasafn og ritgerðasafn, hafa þegar verið þýddar á íslensku eftir hann og notið mikillar hylli íslenskra lesenda. JPV útgáfa hefur einnig 1 sent frá sér Valkyrjur eftir Þráin Bertels son í kiljuútgáfu. Bókin kom út síð- astliðið haust og varð ein af metsölubókum síðasta árs og hlaut afar góða dóma gagnrýnenda og lesenda. Nýverið seldi JPV þýskan útgáfurétt bókarinnar til eins stærsta útgefanda Þýskalands. Þegar Freyja Hilmarsdóttir er myrt hverfur handrit að bók sem hún er að skrifa. Bókin heitir Valkyrjur og inniheldur berorðar lýsingar fyrrverandi eiginkvenna tveggja frægra manna á hjónaböndum sínum. Hér er um að ræða Magnús Mínus, eig- anda Mínus-verslananna og Minus Group, og Kjartan A. Hansen, sendi- herra og fyrrum fjármálaráðherra. Víkingur Gunnarsson og sam- starfsfólk hans í Rannsóknarlögregl- unni taka til við rannsókn málsins. En það gerir líka Elin Óskarsdóttir ríkislögreglustjóri sem vill gjarna finna þetta opinskáa handrit því að þar er sagt frá hinni umtöluðu rannsókn Efnahagsbrotadeildar á fjárreiðum Minus Group - og hvort sú rannsókn sé til komin v e g n a þ r ý s t - ings frá forsæt- i s r á ð - h e r r a lands- ins. SU DOKU talnaþrautir Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóörétt i reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aöeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins 8 9 7 5 3 ' 7 8 4 8 2 3 1 7 4 8 6 5 2 4 8 9 7 2 9 7 2 3 4 6 5 2 5UOOKLJ SHOP- IS ©6610015 Lausn sioustu gátu 8 1 5 3 4 6 9 2 7 9 2 4 5 7 1 6 3 8 3 6 7 2 8 9 1 4 5 7 3 2 9 1 4 8 5 6 4 8 9 6 5 3 2 7 1 1 5 6 7 2 8 3 9 4 2 7 1 8 3 5 4 6 9 5 9 8 4 6 2 7 1 3 6 4 3 1 9 7 5 8 2

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.