blaðið - 30.05.2006, Page 2

blaðið - 30.05.2006, Page 2
2IFRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 blaðið blaöió= Hádegismóum 2,110 Reykjavík Sími: 510 3700 • www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@ bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Evrópurann- sóknir efldar Samtök iðnaðarins hafa ákveðið að styrkja Alþjóðamálastofnun og Rannsóknarsetur um smáríki við Háskóla Islands (HÍ) um 2,5 millj- ónir á ári.. Stofnanirnar tvær munu með stuðningi Samtaka iðnaðarins efla Evrópurannsóknir við HÍ, stofna verkefnabanka sem veitir allt að sex styrki til lokaverkefna meist- aranema við HÍ í Evrópufræðum, skipuleggja Dag ungra fræðimanna, árlega ráðstefnu sem haldin verður í Hl, og standa fyrir hringborðsum- ræðum, fræðslufundum og útgáfu. 20% Afsláttur af málningarvörum ^ÍSLANDS MÁLNING Sérhönnuð málning fyrir (slenskar aöstaeöur. Sætúni 4 / Sími 517 1500 1 KOKOS-SISAL TEPPI Falleg - sterk - náttúruleg Verð frá kr. 2.840,- pr. m2 ; Suðurlandsbraut 10 Simi 533 5800 ! www.simnet.te/8trond V^STRÖND Kanntu orminn? . Blalil/Frikki Skrykkdansflokkurinn Zero Gravity, sem skipaður er dönsurum á aldrinum 3-13 ára, sýndi listir sínar I Austurstræti. Skrykkdansinn virðist vera I uppsveiflu þessi misserin þrátt fyrir að enn hafi ekki brostið á viðlíka æði og geisaði hér á landi á niunda áratugi síðustu aldar þegar Stefán Baxter var upp á sitt besta. Eftir því sem Blaðið kemst næst er hann enn ósigraður fslandsmeistari í þessari list. Einmana bangsi við hestaheilsu Björninn sem setti Bæjaraland í Þýskalandi á annan endann í síðustu viku er við hestaheilsu.. Björninn vakti mikla athygli í síðustu viku í Þýskalandi en björn hafði ekki sést á þeim slóðum í um 170 ár. Hannhafðikomiðtillandsins vegna makaleitar. I fyrstu fögnuðu Þjóðverjar komu hans en þegar það spurðist út að hann hafi drepið sjö bæverskar rollur og gert skurk í að minnsta kosti tveimur hænsna- kofum breyttist tónninn. Werner Schnappauf, umhverfisráðherra Bæjaralands, lýsti björninn rétt- dræpan í kjölfarið. Þessi ákvörðun var harðlega gagnrýnd af ítölskum stjórnvöldum. Ekkert hafði spurst til bangsa fyrr en í gær en þá sást hann við landamæri Austurríkis og ítalíu, nánar tiltekið í Týrol. Umhverfisráð- herra Ítalíu, Alfonso Scanio, sagðist ánægður með að bangsi væri á lífi og sagði að nú þyrfti að sannfæra stjórn- völd í Týrol um að þyrma lifi hans. Segja ríkisstjórnina hafa náð völdum í Ráðhúsinu Minnihlutinn í nýrri borgarstjórn segir framsóknarmenn hafa átt þess kost að stíga út úr skugga Sjálfstæðisflokksins. Segja nýjan meirihluta starfa í krafti minnihluta atkvæða. Viðbrögð verðandi minnihluta- manna í borgarstjórn Reykjavíkur við þeim tíðindum að framsóknar- menn og Sjálfstæðisflokkur hafi náð saman um myndun meirihluta eru öll á einn veg. Svandís Svavars- dóttir, oddviti Vinstri-grænna, segir að Björn Ingi Hrafnsson sé áttundi maður Sjálfstæðisflokksins. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóraefni Samfylkingarinnar, segir fréttir af nýjum meirihluta koma sér á óvart. Hann segir framsóknarmenn hafa átt kost á að stíga út úr skugga Sjálfstæðisflokksins. Björn Ingi áttundi maður sjálfstæðisfiokksins „Ég minnist þess þegar ungur stjórn- málamaður horfði af einlægni og bjartsýni í sjónvarpsmyndavéíina og talaði um að valið stæði á milli hans og áttunda manns sjálfstæðisflokks- ins, segir Svandís Svavarsdóttir, odd- viti Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs „Nú er hann þessi áttundi maður.“ Svandís segir að nú sé sú staða komin upp að stóriðjustefnan sé komin til valda í ráðhúsi Reykja- víkurborgar. „Sú pólitík sem rík- isstjórnin hefur rekið verður nú við stjórnvölinn og það eru afar vondar fréttir fyrir Reykvikinga..“ Sögulegu tækifæri klúðrað Svandís segir að R-lista flokkarnir og frjálslyndir hafi á mánudagsmorgun- inn átt ágætis fund. „Ólafur F. Magn- ússon kaus að fara af þeim fundi í hádegismat og hefur ekki sést síðan og ég tel að þá hafi sögulegu tækifæri verið klúðrað.“ Svandís segir að ekki hafi strandað á neinum sérstökum málum á þeim fundi. „Við vorum einfaldlega í fundarhléi og þá hófst þessi vegferð sem endar með því að gamaldags einkabíla-stór- iðjupólitík verður við stjórnvölinn næstu fjögur árin.Við munum hins vegar ekki láta meirihlutann í friði með sín verk. Við munum fara af slagkrafti inn í kosningavetur í þing- inu og það verður sótt fram á báðum vígstöðvum í einu.“ Hún segir að hreinar línur verði í þeim efnum þar sem sömu flokkar séu við völd á báðum stöðum. Gat stigið út úr skugga Sjálfstæðisflokksins Ég vil nú byrja á því að óska ríkis- stjórnarflokkunum tilhamingju með að hafa náð að mynda meirihluta í borginni,“ segir Dagur B. Eggerts- son, oddviti Sam- fylkingarinnar. Hann segir Fram- sóknarflokkinn hafa staðið frammi fyrir tveimur býsna ólíkum kostum í stöðunni. „Flokkurinn átti kost á samstarfi sem fela myndi í sér nýjabrum og mikla deiglu þar sem framsókn hefði fengið tækifæri til þess að sanna sig og stíga út úr skugga Sjálfsstæðisflokksins. Þeir völdu hins vegar hinn kostinn." Dagur segir það hafa komið sér á óvart að sá kostur hafi orðið ofaná. Hann hafði átt von á því að hitta Björn Inga á fundi eftir hádegi í gær, en þess í stað hafi framsóknarmenn ákveðið að leita annað Með minnihluta at- kvæða að baki sér „Þessi meirihluti er með minnihluta atkvæða á bak við sig og því eru forsendurnar á vissan hátt svolítið hæpnar,“ segir Margrét Sverrisdóttir, sem skipaði 2. sæti á lista Frjáls- lyndra og óháðra í Reykjavík. „Það eru þó fordæmi fyrir þessu en þetta er ekki lík- legt til vinsælda hjá kjósendum, sérstaklega þar sem Framsóknar- flokkurinn á í hlut og hann hefur gert þetta svo oft áður.“ Margrét segist viss um að Fram- sóknarflokkurinn hafi samið sig frá kosningaloforðum sínum. „Ég er sannfærð um að Framsóknarmenn hafi fengið Orkuveituna og að það hafi skipt þá öllu máli.“ sérmerkt þér! D Heiðskírt' , . l-éttskýiaöCijk.. Skýjiiö Alskýjað Rigning. litilshátlar1^—* Rigning Súld ' Sn)ókoma'2£3 . Slytlda ct-éýöa Snjóél Skúr aMtte Algarve 23 Amsterdam 10 Barcelona 21 Berlín 13 Chicago 23 Dublin 12 Frankfurt 10 Glasgow 12 Hamborg 11 Helsinki 11 Kaupmannahöfn 12 London 12 Madrid 25 Mallorka 24 Montreal 20 New York 19 Orlando 23 Osló 14 París 12 Stokkhólmur 10 Vín 13 Þórshöfn 05 Á morgun Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 902 0600 Ðyggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.