blaðið - 30.05.2006, Page 4

blaðið - 30.05.2006, Page 4
4IFRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 blaðið Samfylking á Akureyri ræðir við sjálfstæðis- menn Bæjarfulltrúar Samfylkingar- innar á Akureyri ákváðu í gær að slíta viðræðum við L-lista og Vinstri-græna um myndun meirihluta í bæjarstjórn Akur- eyrar. f kjölfarið bárust fregnir af að viðræður væru hafnar á milli fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar um hugsanlegt meirihlutasamstarf. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hélt ekki velli í sveitarstjórnarkosning- unum á laugardaginn. f tilkynningu frá Samfylking- unni á Akureyri kemur fram að í ljósi þessa hafi samfylking- armenn talið eðlilegt að ræða við L-lista og Vinstri-græna um hugsanlegt meirihlutasamstarf. Þessar viðræður hafi þó leitt í ljós að slíkur meirihluti geti ekki orðið nægilega traustur og því hafi Samfylkingin slitið þeim. r 1 Fullt hús ævintýra Viðopnum 2. júní Barnlausir einstaklingar vanræktir í kosningum Prófessor í stjórnmálafræði segir hugsanlega ástæðu fyrir lélegri kjör- sókn vera áhugaleysi flokka á málefnum barnlausra einstaklinga. Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði segir að hugsan- fega megi útskýra dræma þáttöku í sveitarstjórnarkosningunum um helgina með því að barnlausir ein- staklingar sem ekki eru komnir á elfilífeyri hafi gleymst stefnuskrám flokkanna. „Það gæti verið að stefnumál flokk- anna hafi beinst of mikið að fjöl- skyldum og eldra fólki og því hafi einstaklingurinn gleymst,” segir Ólafur en bendir þó á að það sé að- eins tilgáta og ekki sé búið að rann- saka það á nokkurn hátt. Hann segir einnig að mögulega séu íslendingar að fylgja svipaðri þróun og á sér stað í nágrannalöndunum þar sem kosn- ingaþátttaka hefur farið minnkandi undanfarin ár. Hann bendir þó á að pólitískur áhugi á íslandi hafi alltaf verið mjög mikil. „Allir flokkar voru að bjóða um- fangsmikla félagsþjónustu en ekki að lækka skatta eða önnur málefni sem varða einstaklinga,” segir Ól- afur en kosingaþáttaka í borginni var afar dræm og var hún verst I mið- borg Reykjavíkur þar sem aðeins 77 prósent kusu en hingað til hefur þátttaka yfirleitt verið í kringum 83 prósentin. Mikið af ungu fólki og einstak- lingum eru búsettir í miðborginni og segir Ólafur að þessar tölur gefi ákveðnar vísbendingar um skipt- ingu kjörsóknar eftir póstnúmerum og bætir við að mikil áhersla hafi verið lögð á úthverfin í Reykjavík fyrir kosningar. Kjartan Due Nielsen kosningar- stjóri og formaður ungra jafnaðar- manna í Reykjavík segir dræma þátt- öku ungs fólks vonbrigði fyrir unga jafnaðarmenn og bendir á að kosn- ingar komi á afar óhentugum tíma fyrir ungt fólk vegna prófanna, „fólk á erfiðara með að koma sér inn í mál- efnum og þátttöku í stjórnmálum vegna tímaleysis,” segir hann. Kjartan vill að tímasetning kosn- inga verði breytt og þær haldnar um haust frekar en á vorin þegar mikið gengur á hjá ungu fólki. Kjartan er ekki sammála því að einstaklingurinn hafi gleymst hjá flokkunum en segir þó að hugsan- lega hefði mátt vera fleiri skýrar línur í ákveðnum málum. Engu að síður hafi Samfylkingin barist fyrir mörgum málum sem við komu einstaklingum. Bolli Thoroddsen, formaður Heim- dallar, tekur í svipaðan streng og Kjartan. „Ég tel ekki að einstakling- urinn hafi gleymst þótt ýmsir hags- munahópar hafi verið ansi áberandi í kosningabaráttunni,” segir Bolli. Bolli segir að mikið hafi verið um útskriftir hjá framhaldsskólum á landinu um helgina og mikið gengið á hjá ungu fólki. Hann segir að áhugi ungra, barnslausra einstaklinga á kosningunum hafi verið afar mis- jafn en flest ungmenni hafi áhuga á íbúðarkaupum og samgöngumálum. Kveður Bolli þau mál hvíla einna þyngst á ungum borgarbúum. Eve-online á toppinn í vef- mælingum fslenski tölvuleikurinn Eve-online vermir nú efsta sæti veflista Sam- ræmdrar vefmælingar sem mælir notkun á islenskum vefsíðum. Þetta þykja nokkrar fréttir þar sem fréttavefirnir mbl.is og visir.is hafa frá upphafi mælinga verið mest notuðu vefirnir. En enginn má við margnum og þar sem Eve-online nýtur vaxandi vinsælda um allan heim hefur það legið fyrir í nokkurn tíma að vefurinn næði efsta sætinu. Alls nota rúmlega 225 þúsund not- endur vefinn í viku hverri. íslend- ingar eru þar í miklum minnihluta en notendur hér á landi eru aðeins 0,42% af heildarfjöldanum. Flestir spilara koma frá Bandaríkjunum, 20% og næstflestir frá Bretlandi eða 9.4%- Ljósabekkur kveikti í Ak- ureyrinni Eldsupptök sem áttu sér stað í Akur- eyrinni EA-110 á laugardaginn síð- asta með þeim afleiðingum að tveir menn létust og sex menn fengu snert af reykeitrun voru út frá raf- magni í ljósabekk. Bekkurinn var staðsettur í frístundarrými skips- ins. Rannsókn er ekki lokið. Uppþvottavéladuft 3kg kr498.-1 ^ Trident gegn hryðjuverkum Tillögur bandaríska varnarmála- ráðuneytisins um beitingu lan- drægra eldflauga á skotmörk sem tengjast alþjóðlegri hryðjuverka- starfsemi eru umdeildar. Stuðn- ingsmenn tillagnanna telja að þær hjálpi Bandaríkjamönnum í bar- áttunni gegn alþjóðlegri hryðju- verkastarfsemi á meðan aðrir benda á að það auki líkurnar á að kjarnorkustyrjöld brjótist upp. Varnarmálaráðuneytið hefur farið þess á leit við þingið að það samþykki fjárveitingu til þró- unar á langdrægum eldflaugum sem bera hefðbundna sprengju- odda. Um er að ræða uppfærslu á sprengjuoddum á kafbáta- eldflaugunum Trident II. Þær flaugar bera kjarnaodda og hægt er að skjóta þeim að skotmörkum um allan heim með litlum fyrir- vara. Varnarmálaráðuneytið vill að þróaðir verði nýjir oddar á flaugarnar sem geta borið hefð- bundnar sprengjur. Slík útfærsla myndi að sögn heimildarmanna bandaríska blaðsins New York Timesinnanvarnarmálaráðuneyt- isins veita hermálayfirvöldum svigrúm til þess að ráðast á bæki- stöðvar hryðjuverkamanna með afar skömmum fyrirvara. Þar sem að eldflaugarnar bæru með hefðbundnar sprengjuhleðslur myndi hættan á falli óbreytta borgara minnka til muna. Að sögn James Cartwright, hershöfðingja og yfirmanns langdrægra kjarnorkuvopna bandaríska hersins (e. Strategic Command), er hugsunin á bak- við vopnakerfið sú að hægt verði að skjóta eldflaug að stöðvum hryðjuverkamanna um klukku- stund eftir að njósnir berast um staðsetningu þeirra. Cartwright segir ennfremur að hermálayf- irvöld telji ekki fullnægjandi að hafa einungis möguleikann á að gera slíkar árásir með loftárásum eða með stýriflaugum. Mikil- vægur tími getur glatast við und- irbúning slíkra árása. Donald Rumsfeld, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, er sagður styðja hið nýja vopnakerfi heilshugar. Talið er að veiti Banda- ríkjaþing fjármagni í þróunina muni taka tvö ár að þróa kerfið. Grafið undan stöðugleika Ekki eru allir á eitt sáttir við hug- myndirvarnarmálaráðuneytisins. Þingmenn demókrata hafa bent á að vopnakerfið auki hættuna á að kjarnorkustríð geti brotist út. Samkvæmt hugmyndum varnar- málaráðuneytisins myndu kaf- bátar bera bæði langdrægar Tri- dent flaugar með kjarnaoddum og hefðbundnum sprengjuoddum. Væri þeim skotið á loft ættu þau ríki sem hafa getu til þess að fylgj- ast með eldflaugum erfitt með að greina hverslags hleðsla væri í eldflaugunum og hvert þeim væri stefnt. Ef að Trident II flaug væri skotið á stöðvar hryðjuverka- manna í Mið-Asíu væri til að mynda ómögulegt fyrir Kínverja og Rússa að greina hvert flaugin væri að stefna og gætu jafnvel litið á hana sem árás. Einnig benda sérfræðingar í varnarmálum á að þróun kerfisins grafi undan stöð- ugleika í alþjóðakerfinu. Steve Anderson, sérfræðingur í afvopn- unarmálum og fyrrum ráðgjafi Þjóðaröryggisráðsins, telur að vopnakerfið grafi undir þeim óskrifuðu reglum sem hafa þróast undanfarin fimmtíu ár varðandi meðferð langdrægra flauga. Þeim hefur aldrei verið beitt og tilvist þeirra hafi eingöngu haft fæling- argildi. Með þessum tillögum sé verið að senda öðrum stórveldum þau skilaboð að Bandaríkin líti á langdrægar flaugar sem venjuleg vopn og í kjölfarið munu önnur ríki gera það sama.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.