blaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 6
6 I FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 blaðið I fíeulers í sandgryf junni Namibíumaðurinn Lesley Neib fylgist með höggi sinu f eyðimörkinni við Walvis-flóa. Þar hafa namibískir golf-áhugamenn komið sér upp nfu holu golfvelli sem þeir kalla „West Side Club." Völlurinn er sérstakur fyrir margra hluta sakir. Á honum finnast engar flatir, teigar, vatsngryfjur né gras. Aðeins sandur og einstaka pálmatré. Þrátt fyrir það nýtur völlurinn mikilla vinsælda meðal heimamanna enda þarf ekki að borga nein félagss- gjöld til þess að fá að leika á honum. Framsóknarflokkurinn talaöi ekki einni röddu Oddviti Samfylkingar sakar framsóknarmenn um óheiðarleika í viðræðum um myndun meirihluta. Gunnar I. Birgisson verður áfram bæjarstjóri og segir af sér þingmennsku. Guðríður Arnardóttir, oddviti Sam- fylkingarinnar í Kópavogi, segir Framsóknarflokkinn í Kópavogi ekki hafa talað einni röddu í sam- skiptum sínum við Samfylkinguna. Guðríður segir að menn Omars Stef- ánssonar, oddvita Framsóknarflokks- ins í Kópavogi, hafi lagt fram ósk um skriflegt tilboð frá oddvita Samfylk- ingarinnar með hugmyndum um skiptingu embætta ef til samstarfs Framsóknarflokks, Samfylkingar og Vinstri-grænna kæmi. I tilkynningu frá Guðríði kemur fram að Framsóknarflokkurinn hafi óskað eftir slíku tilboði og sérstak- lega kannað hvort Samfylking og Vinstri-grænir hafi verið tilbúnir að gefa framsóknarmönnum eftir bæj- arstjórastólinn. Ómar segir að hann aldrei hjá framsókn- Ómar Stefánsson armönnum að mynda meirihluta með Samfylkingu og Vinstri-grænum en samt hafi þeir kosið að halda öllum aðilum volgum í þeirri von að þannig myndu þeir bera mest úr býtum. Gunnar áfram bæjarstjóri Sjálfstæðismenn og framsóknar- menn í Kópavogi náðu samkomulagi seint á sunnudagskvöld um áfram- haldandi meirihlutasamstarf í bæj- arstjórn. Gunnar I. Birgisson verður áfram bæjarstjóri, en Omar Stefáns- son verður formaður bæjarráðs. Enn á eftir að taka ákvörðun um hver muni taka við embætti forseta bæj- arstjórnar en hann mun koma úr röðum sjálfstæðismanna. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri segir að flokkarnir hafi ekki verið lengi að ná samkomulagi og að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi ekki rætt við aðra flokka um mögulegt samstarf. „Við ætlum að halda áfram því góða starfi sem við hófum fyrir 16 árum siðan. Kópavogur er nú þegar besta bæjarfélagið til búa í og við ætlum að sjá til þess að svo verði áfram,“ segir Gunnar í samtali við Blaðið. Gunnar segist ætla senda forseta Alþingis bréf á næstu dögum þar sem hann tilkynnir afsögn sína. Hann tók sér frí frá þingstörfum eftir að hann tók við bæjarstjóraembætti fyrir rúmu ári.. Framsóknarflokkurinn fékk skýr skilaboð Ómar Stefánsson var eini framsókn- armaðurinn sem náði sæti í bæj- arstjórn, en flokkurinn missti tvo bæjarfulltrúa í kosningunum á laug- ardaginn. Ómar segir að Framsóknar- flokkurinn hafi fengið skýr skilaboð. „Við þurfum að gera betur og láta vita þegar við erum að standa okkur vel. Við megum ekki bara standa í sam- starfinu, heldur berja okkur á brjóst og vera stoltir af verkum okkar í bæj- arstjórn. Við höfum greinilega verið of hógværir. Við þurfum að sýna fram á að við erum stór hluti af þessu samstarfi, eins og við höfum verið til þessa,“ segir Ómar. Ómar segir að mikið hafi verið um símtöl í kjölfar úrslita kosninganna en engar formlegar viðræður hafi átt sér stað fyrr en viðræður hófust milli sjálfstæðismanna og framsókn- armanna. „Þessi meirihluti hélt velli þannig að það var eðlilegast að byrja á viðræðum þessa tveggja flokka. Það gekk vel að ná samkomulagi þegar við - ræðurnar fóru af stað,“ segir Ómar. Áhersla lögð á fjölskyldumálin Hann segir að Framsóknarflokk- urinn hafi lagt mesta áherslu á fjöl- skyldumálin í þessari kosningabar- áttu og að fólk í Kópavogi muni finna það næstu fjögur árin að Framsókn- arflokkurinn muni standa við gefin loforð. „Við ætlum að halda áfram þessari uppbyggingu og ætlum að gera enn betur. Við ætlum að sýna Kópavogs- búum að Framsóknarflokkurinn sé þess virði að hafa í bæjarstjórn og í meirihluta. Það er gott að búa í Kópa- vogi og stöðugt batnandi eftir því sem framsóknarmenn hafi meiri og meiri áhrif,“ segir Ómar. I samkomulagi flokkanna er búið að ganga frá skiptingu málefna- nefnda og verður málefnasamningur lagður fyrir fulltrúaráð flokkanna næstkomandi miðvikudag. - allt - allt til bygginga til framkvæmda Kraftur, gæði og öryggi Þegar fjárfesta á í tækjum er ómetanlegt að sérfróðir fagaðilar séu með í ráðum. Við hjá MEST fylgjum viðskiptavinum okkar alla leið og veitum þeim alhliða fagþjónustu. MEST býður upp á Metabo rafmagnsverkfæri fyrir fagaðila og framkvæmdafólk. Hafðu samband við söluráðgjafa okkar fáðu nánari upplýsingar í síma 4 400 400. Ljósmynduðu verknaðinn mbl.is | Brotistvarinnísumarbú- stað í Vaðnesi um helgina. Lög- reglan á Selfossi segir, að þeir sem þar voru á ferð muni hafa hreiðrað um sig um stund en litlu stolið. Sýnilega hafði verið farið í heitan pott og fólk verið við drykkju. Hústökufólkið skildi eftir myndavél í húsinu og er lögregla að skoða myndir sem virðast hafa verið teknar af fólk- inu þar sem það sat við drykkju í húsinu. Er verið að bera kennsl á fólkið. Níutíu ára en samt ný Við opnum 2. júní HEREFORD S T E I K H Ú S Laugavegur 53b • 101 Reykjavík 5 11 3350 • www.hereford.is Mánudagar og þriðjudagar Tveir fyrir einn af matseðli frá kl 17:00 - 19:30 Miðvikudagar Rifjadagar firá kl 17:00 til 19:30, rif og kaldur á aðeins 1.990. Alla daga 17:00-19:30 - tveir fyrir einn af fordrykkjum

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.