blaðið - 30.05.2006, Síða 10

blaðið - 30.05.2006, Síða 10
10 IFRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 blaðiö Þýskur svanur ástanginn afbát Svanur sem heldur sig til á vatni rétt við borgina Miinster í Þýska- landi er ástfanginn. Hann hefur tekið ástfóstri við hjólabát, sem er í svanslíki og fimm sinnum stærri en hann sjálfur. Undan- farnar þrjár vikur hefur svanur- inn daðrað við bátinn þrátt fyrir að hafa fengið lítil viðbrögð við atlotum sínum. Peter Overschmidt, sem á bát- inn, segir að svanurinn reyni að verja hann og fæli aðra svani frá honum. Hann segir að svanurinn liti á bátinn sem stóran og mynd- arlegan svan sem sé kjörinn maki. Overschmidt segir ennfremur að hann óttist að svanurinn verði nið- urbrotinn þegar hann loks áttar sig á því að ást hans á bátnum er ekki endurgoldinn. Hann hefur þó trú á því að svanurinn læri af þessu öllu saman og geri ekki sömu mistökin aftur. Ástin er blind höfðu rænt okkur, þökk sé því öryggi sem lýðræðið færir, “ bætti hann við. Næstur Uribe kom Carlos Ga- viria, vinnstri sinnaður öldungag- deildarþingmaður. Hann fékk um 22% greiddra atkvæða. Gaviria ját- aði ósigur sinn og kvaðst ánægður með úrslit kosninganna. „Við erum ánægð með úrslitin. Þetta er í frysta skipti í sögu landsins sem hin lýðræð- islega hreyfing vinstri manna er í for- ystu fyrir stjórnarandstöðuna,” sagði hann. Marxíska skæruliðahreyfingin FARC hafði heitið því að reyna ekki að spilla fyrir framkvæmd kosning- anna. Kjördagurinn var sá rólegasti sem menn muna eftir í Kólumbíu ára- tugum saman. Yfirkjörstjórn sendi í gær frá sér yfirlýsingu þess efnis að kosningarnar hefðu farið vel fram, einnig á svæðum sem eru að mestu á valdi FARC-hreyfingarinnar. Uribe forseti gaf til kynna í viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC, að hann kynni að vera reiðubúinn að efna til viðræðna við leiðtoga FARC- hreyfingarinnar, tækist að skapa for- sendur fyrir því að slíkir fundir gætu farið fram af fullum heilindum. Gaviria sagði hins vegar að vinna þyrfti bug á fátækt og gríðarlegum lífskjaramun ætluðu stjórnvöld sér að binda enda á ófriðinn í landinu. Um 220.000 lögreglu- og stjórnar- hermenn voru við öllu búnir á kjör- dag. Mikilli öryggisgæslu var haldið upp vegna forsetaframbjóðendanna sem voru sex að þessu sinni. Á kjör- skrá voru 26,7 milljónir manna. Bandamaður George W. Bush Uribe hefur síðustu fjögur árin verið eindreginn bandamaður stjórnvalda í Bandaríkjunum. Andstaða við Bandaríkin fer vaxandi í Rómönsku- Ameríku líkt og sigrar þeirra Hugo Chavez í Venesúela og Evo Morales í forsetakosningum í Venesúela og Ból- ivíu eru til marks um. Úrslitin í Kólumbíu þykja því til marks um að landsmenn hafi nú hafnað þeim valkostum sem leið- togar lengst til vinstri bjóða fram í álfunni. Frjálslyndir og íhaldsmenn hafa verið ráðandi í stjórnmálum Kólumbíu frá því að landið hlaut sjálf- stæði frá Spánverjum á 19. öld. Samantekin tölfræði stjórnvalda bregður nokkru ljósi á árangur Uribe á undanförnum fjórum árum. Morðum fer ört fækkandi í landinu og hið sama má segja um mannrán. Andstæðingar forsetans segja á hinn bóginn að hann hafi vanrækt umbætur á sviði félagsmála. Ríkis- stjórnin hefur beint öllum kröftum sínum að baráttunni við skæruliða sem hafa haldið uppi marxískri andspyrnu í landinu í fjóra áratugi. Tæplega 200.000 manns hafa týnt lífi á þessu tímabili. Ofbeldi setur enn mjög mark sitt á samfélagið í Kólumbíu en ástandið þykir þó hafa farið batnandi í stærstu borgum landsins. Skæruliðar FARC ráða hins vegar stórum hluta landsins, senni- lega allt að þriðjungi þess. Alvaro Uribe er fæddur árið 1952. Hann er lögfræðingur að mennt og stundaði m.a. nám í Harvard og Ox- ford. Hann var kjörinn forseti Kól- umbíu árið 2002 og vakti boðskapur hans um aukna hörku í viðskiptum við skæruliða vonir landsmanna. Skæruliðar myrtu föður hans, sem var auðugur landeigandi, árið 1983 í árás á búgarð fjölskyldunnar í Antioquia. Skæruliðar hafa einnig sýnt Uribe banatilræði. Barnahús 4,1 fm • kr 120.000 Barnahús 2,5 frn • kr 99.000 Afgreiðslufrestur 2-3 vikur mm Garðskáli 6,lm2, kr 275.000 www.bjalkabustadir.is ÁRMÚLA36,108 R Sími 5814070 Uribe endurkjörinn forseti Kólumbíu Alvaro Uribe fagnar sigri í forsetakosningunum í Kólumbíu. Reuters Alvaro Uribe heitir óbreyttri stjórnarstefnu en gefur til kynna að viðræður við FARC-skæruliðahreyfinguna geti komið til álita. Alvaro Uribe var á sunnudag endur- kjörinn forseti Kólumbíu. Forsetinn vann stóran sigur, hlaut 62% atkvæða að því er yfirkjörstjórn skýrði frá í gær. Uribe hafði beitt sér fyrir breyt- ingum á stjórnarskrá landsins til þess að hann gæti boðið sig fram öðru sinni. Kjörtímabil forseta Kól- umbíu er fjögur ár. Fréttaskýrendur segja að sú harka sem Uribe hefur sýnt í baráttu við skæruliða og eiturlyfjasmyglara í landinu hafi tryggt honum þennan glæsta sigur. Ekki kom til meiriháttar átaka á kjördaginn enda var öryggisgæsla bæði umfangsmikil og ströng. Skæru- liðar FARC-hreyfingarinnar höfðu heitið því að hafa ekki afskipti af kosningunni og stóðu þeir við það loforð. Lýðræðið færir öryggi Uribe sagði í sigurræðu sinni að afram yrði haldið á sömu braut. „Með hugrekki hermanna okkar að vopni munum við áfram leitast við að skapa öruggara samfélag í Kólumbíu,” sagði forsetinn. „Við erum að öðlast á ný frelsið sem hryðjuverkamenn TILBOÐ gorenje ÖRBYLGJUOFN Verð kr. 11.500 Áður kr. 15.500 RONNING Borgarfúni 24 | Reykjavík | Sími: 562 4011 | Qseyri 2 | Akureyri | Sími: 460 0800 Við erum flutt - en bara stutt Viðopnum 2. júní Henrjk Old, formaöur Vestnor- ræna ráðsins. Vestnorræn ferðaþjón- usta brotin til mergjar Málefni vestnorrænna ferðamála og ferðaþjónustu auk samstarfs vestnorrænu landanna í ferða- málum verða til umræðu á þema- ráðstefnu Vestnorræna ráðsins sem haldin verður í Maniitsoq á Grænlandi 6. til 9. júni. „Tilgangur ráðstefnunnar er að beina athygli að ferðamálum og ferðaþjónustu og samstarfi Færeyja, Grænlands og íslands á þessu sviði. Ætlunin er að beina sérstaklega sjónum að því hvernig samstarfi landanna og samfélaganna verði best háttað til þess ná auknum árangri í að vekja athygli umheimsins á vest- norrænum áfangastöðum og ferðaþjónustu", segir Henrik Old, formaður Vestnorræna ráðsins. Að sögn Henriks verður jafn- framt rætt um það við hverju megi búast að ferðamenn fram- tíðarinnar sækist eftir og hvaða sérstöðu vestnorrænu ríkin geti markað í geiranum. Jafnframt verður rætt um flug- samgöngur milli landanna, þýð- ingu ferðamennsku fyrir Vestur- norðurlönd, auk þess sem menn munu velta fyrir möguleikunum á samræmdri markaðssetningu landanna þriggja. Meðal þeirra sem halda erindi á ráðstefnunni eru Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra, ferðamálaráðherrar Grænlands og Færeyja, Klaus Æ. Mogensen frá Rannsóknarsetri um framtíð- ina í Danmörku, Árni Gunnars- son frá Flugfélagi íslands, Ársæll Harðarson frá Ferðamálaráði ís- lands, forseti Norðurlandaráðs. Formaður Islandsdeildar ráðsins er Halldór Blöndal alþingismaður. Nemendur fleiri en 100 þúsund Á skólaárinu 2005-2006 er heild- arfjöldi nemenda á öllum skóla- stigum í fyrsta skipti meiri en 100 þúsund. 101.171 nemandi stundar nám á Islandi frá leik- skólastigi til háskólastigs. Að auki stunda 2.237 nemendur nám erlendis á yfirstandandi skólaári. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Islands. Skólasókn 16 ára ungmenna hefur aldrei verið meiri og er hún 94%. Hins vegar hefur skólasókn minnkað milli ára á meðal 18-20 ára nemenda. 73% 18 ára nemenda stunda skóla í ár miðað við 75% árið áður. Að sama skapi hefur skólasókn 20 ára nemenda minnkað um þrjú prósent. Ef litið er til háskólastigsins virðist sem viðskipa- og hag- fræði heilli mest um þessar mundir en flestir nemendur stunda nám í þessum greinum. Mikil fjölgun hefur orðið í þessum greinum og ef litið er aftur til ársins 1997 sést að nem- endafjöldinn hefur þrefaldast.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.