blaðið - 30.05.2006, Qupperneq 12
12 I DEIGLAN
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 blaðið
Hugarró í Skerja-
firðinum í kvöld
Blaíil/Frikki
[ kvöld mun Dada flytja fyrirlestur sinn að Þorragötu 1 kl 20. Hann mun sýna glærur og
kynna helstu hugðarefni sín á vettvangi yoga og hugleiðslu auk þess að syngja nokkur
lög. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.
Það er ekki úr vegi eftir nýaf-
staðna kosningahelgi að gera til-
raun til þess að finna innri frið og
sefa hugann með öllum tiltækum
ráðum. 1 kvöld kl. 20 mun Dada
Dyutimaya flytja fyrirlestur um
yoga, heimspeki og hugleiðslu í
Leikskólanum Sælukoti, Þorra-
götu 1.
Ananda Marga hugleiðsla
Að öðrum ólöstuðum verður Dada
að teljast einn helsti sérfræðingur
Islands í yoga og hugleiðslu. Hann
hefur nýlega lokið löngu námi í
þessum fræðum í Svíþjóð og á
Indlandi.
Dada aðhyllist heimspeki Ananda
Marga en upphafsmaður þeirrar
stefnu var Srii Srii Ananda Murti
og má rekja hana aftur til sjötta ára-
tugarins. Um tuttugu ár eru síðan
þessi stefna lét fyrst á sér krælá á Is-
landi og hefur hún notið töluverðra
vinsælda.
Dada Dyutimaya kynntist þessari
heimspeki fyrst árið 1991 og hefur
haldið tryggð við hana síðan. „Ég
hafði strax mikinn áhuga á þessu.
Ég hef unnið sem sjálfboðaliði hjá
Ananda Marga í Danmörku og Sví-
þjóð í nokkurn tíma. Ég var í þrjú
ár í formlegu námi og síðan var ég
í tvö ár að aðstoða við framkvæmda-
stjórn samtakanna. Samtökin reka
lífræn bakarí í þessum löndum og
þar starfaði ég um tíma. Einnig
fékkst ég töluvert við að kenna hug-
leiðslu og yoga allan tímann sem ég
var úti.“
Svörvið öllu
Dada heillaðist strax af Ananda
Marga: „Þessi heimspeki er mjög
alhliða. Hún snýr bæði að hinum
efnislega veruleika og hinum and-
lega. Þar getur maður fundið svör
við öllu. I fyrirlestrum sínum fjall-
aði Srii Srii um öll þau efni sem
maður getur hugsanlega ímyndað
sér. Hann var mikill áhugamaður
um sögu og tungumál. Hann samdi
5018 söngva á átta tungumálum
sem ég hef tileinkað mér að nokkru
leyti. Þetta er ljóðasöngur og leik ég
undir á gítar. Það sem er spennandi
við Ananda Marga hugleiðslu er að
hún er mjög djúp. Iðkendur ná mik-
illi hugarró og finna fyrir innri friði
sem maður getur ekki fundið fyrir í
neinu öðru. Hugleiðslan er bæði auð-
veld og á sama tíma mjög vandlega
vísindalega prófuð. Strax frá byrjun
þá fann ég að þetta var eitthvað sem
var ekta og ég hef nú verið í þessu í
14 ár,“ segir Dada að lokum.
Rannsóknar-
ráðstefna
læknanema
í dag fer fram síðari hluti dag-
skrár rannsóknarráðstefnu 3. árs
læknanema veturinn 2005-2006.
Fluttir verða 18 fyrirlestrar og fer
dagskráin fram í Hringsal LSH
- Hringbraut.
9:00-10:20
Klínfsk lyfiæknisfræði, hjartalækningar
og myndgreining: Fundarstjóri: Davíð
O. Arnar.
10:35-12:40
Þróunarlæknisfræði, lýðheilsa, fæðinga-
og kvensjúkdómafræði: Fundarstjóri:
Hulda Hjartardóttir.
13:40-15:00
Barnalæknisfræði, bæklunarlækningar,
sýklafræði og smitsjúkdómafræði: Fund-
arstjóri: Már Kristjánsson.
15:20-17:00
Lýðheilsa, barnalæknisfræði, sýklafræði
og smitsjúkdómafræði: Fundarstjóri: Sig-
urður Guðmundsson.
Frekari upplýsingar um rannsókn-
arráðstefnuna má finna á slóðinni
http://www.hi.is/page/radstefna.
Nýtt upphaf
- ný ævintýri
Næsta sumar munu leiðtogar G8
ríkjanna funda í Heiligendamm
í Þýskalandi. Andstæðingar
hnattvæðingar hafa þegar hafið
skipulagningu aðgerða og munu
íslenskir mótmælendur hittast í
Friðarhúsi til skrafs og ráðagerða í
kvöld kl 20.
Make Poverty History
Flestum er enn í fersku minni fundur
G8 ríkjanna í Skotandi fyrir tæpu
ári síðan. Dagana 6.-9. júlí settust
fulltrúar átta helstu iðnríkja heims
niður til fundar á sveitahótelinu
Gleneagles, skammt norðan við Edin-
borg. Leiðtogarnir ræddu m.a. vanda
þróunarlanda, niðurfellingu skulda
fátækustu ríkja heims og leiðir til
að bregðast við loftslagsbreytingum.
Mótmælendur létu nokkuð til sín
taka og voru gagnaðgerðir í undir-
búningi um langa hríð. Sá undirbún-
ingur fór að mestu fram fyrir opnum
tjöldum og naut mikillar fjölmiðla-
athygli. Mótmælaaðgerðirnar ein-
kenndust af vandlega skipulögðum
atburðum eins og hinu umfangs-
mikla Make Poverty History átaki og
Live 8 tónleikunum sem Bob Geldof
skipulagði. Mótmælendur komu úr
ólíkum áttum, allt frá hópum innan
kaþólsku kirkjunnar til vígreifra an-
arkista. Kröfurnar sem hafðar voru
uppi voru þó hinar sömu. Mótmæl-
endur gerðu þær kröfur að iðnríkin
afskrifuðu skuldir fátækustu ríkja
Afríku, veittu meiri og betri þróunar-
hjálp, og beittu sér fyrir sanngjarnari
viðskiptum. Mótmælendur skipu-
lögðu viðburði af ýmsu tagi og má
þar nefna ýmis málþing, mótmæla-
stöður, göngur og skemmtanir sem
ætlaðar voru til að vekja athygli um-
heimsins á málstaðnum.
G8 ríkin í Heiligendamm
Gríðarleg öryggisgæsla var í borg-
inni friðsælu, ein sú mesta í sögu
Bretlands, enda voru samankomnir
á einum stað valdamestu leiðtogar
heims. Mótmælagangan Make Po-
verty History fór vel fram og um
225 þúsund manns gengu undir
dúndrandi trommuslætti, fánum
og spjöldum með margvíslegum
boðskap til heimsbyggðarinnar. Það
voru ekki bara mótmælendur sem
gert höfðu sér ferð til borgarinnar til
þess að tjá skoðanir sínar heldur sáu
tugir þúsunda venjulegra Edinborgar-
búa sig knúa til þess að slást í hópinn
og lýsa andúð sinni á því hvernig iðn-
ríkin haga málum. Nú í sumar munu
leiðtogar G8 ríkjanna eiga fund í St.
Pétursborg í Rússlandi og sumarið
2007 í Heiligendamm í Þýskalandi.
Ólíkir hópar sameinast
Eðli málsins samkvæmt liggur gríð-
arlegur undirbúningur að baki svo
umfangsmiklum og vel skipulögðum
mótmælaaðgerðum. Því er betra að
hafa tíma. Því er ekki seinna vænna
fyrir mótmælendur að fara að huga
að aðgerðum sínum fyrir næsta
sumar. I kvöld kl. 20 munu íslenskir
mótmælendur hittast í Friðarhúsi,
Njálsgötu 87, og funda um aðgerðir í
Þýskalandi næsta sumar.
Arna Ösp Magnúsdóttir er einn
af forsprökkum hópsins. Þó Arna sé
ung að árum hefur hún lengi verið
virk í aðgerðum gegn kapítalism-
anum: „Dagskráin í kvöld er hluti af
alþjóðlegri kynningarherferð þýskra
mótmælenda sem ætlað er að vekja
athygli á fundi G8 ríkjanna í Þýska-
landi sumarið 2007. Vinur minn frá
Berlín mun að mestu leyti sjá um
dagskrána í kvöld í Friðarhúsi. Við
ætlum að kynna hvað félagsskapur
G8 er og hvaða áhrif hann hefur á hin
ýmsu málefni. Við munum kynna
þessar stóru stofnanir á borð við
World Trade Organization og einnig
þær hreyfingar sem hafa tekið sig
saman og ákveðið að mæta á þá staði
sem fundirnar eru haldnir á og hafa
uppi friðsamleg mótmæli."
Arna segir að þó þessar hreyfingar
mótmælenda kunni að virðast ólíkar
innbyrðis þá sé ýmislegt sem sam-
eini þær. „Mótmælin eiga sér rætur
að rekja í People’s Global Action
sem var ákveðinn vendipunktur í
baráttumálum fyrir friði, mannrétt-
indum o.fl. Fjöldi hreyfinga ákváð að
taka sig saman og vinna undir einu
merki. Eitt af því sem hóparnir hafa
sameinast um er að beita einungis
friðsamlegum aðgerðum og er það
gríðarlega mikilvægt atriði. Aukþess
heldur andstaðan við kapítalismann
og heimsvaldasinna þessum hópum
saman.“
Hnattvædd baráttumál
I kvöld í Friðarhúsi munu mótmæl-
endur sýna myndir frá mótmælunum
í Edinborg á síðasta ári og koma af
stað fjörugum umræðum um eðli og
tilgang aðgerðanna.
Arna Ösp ætlar sérstaklega að
ræða hvort þetta komi íslendingum
við: „íslenskir mótmælendur hafa
hingað til ekki verið sérlega virkir í
alþjóðlegum aðgerðum en ég held að
tími sé kominn til þess að við látum
til okkar taka. Málefnin sem við berj-
umst fyrir eru orðin ákaflega hnatt-
vædd, eins og t.d. umhverfismálin.
Mengun á sér engin landamæri."
Arna Ösp er nýkomin heim til ís-
lands eftir ferð um Evrópu þar sem
hún kynnti stöðu náttúruverndar á
íslandi: „Við kynntum fyrir Evrópu-
búum það sem hefur verið að gerast
á Kárahnjúkum. Svo ræddum við
almennt um gróðurhúsaáhrif, hlýn-
andi loftslag og önnur knýjandi um-
hverfismál. Okkur var ákaflega vel
tekið hvar sem við komum. Ég held
að Islendingar átti sig ekki á því að
virkjunaráform stjórnvalda á fslandi
koma öllum heiminum við. Margir
erlendir hópar sýndu málefninu mik-
inn áhuga og voru tilbúnir í samstarf
til þess að vekja athygli heimsbyggð-
arinnar á því sem er að gerast hér á
íslandi,“ segir Arna Ösp að lokum og
vonast til þess að sjá sem flesta áhuga-
sama í Friðarhúsi í kvöld. Dagskráin
hefst kl. 20 og eru allir velkomnir.
0
ðmSTUfíBfíHÚSIO
R€ ðCFK 700 SAVA6E
Fjarstýrt bensín fjórhjól með 2,5 hestafla 4,lcc
mótor og 2 gíra skiptingu.
Tómstundahúsið • Nethyl 2 • S. 587 0600 • www.tomstundahusid
www.bifteid.is
VaraMutir
Auhahlutlr
BMW - Benz - Opel
Bestu fáanlegu gædl frá Þýzkalandl
_ #
VERÐÖRY66I
Besta verölð mldað
vlð sambærlleg gæðl
Ekta xenonsett í alla bíla
Hjallahraunl 4 - s: 555 OBB5