blaðið - 30.05.2006, Side 14

blaðið - 30.05.2006, Side 14
blaðid Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Slgurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson. Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. TÖLUR OG TÚLKUN Sínum augum lítur hver silfrið og í því ljósi er (næstum því) skemmtilegt að fylgjast með túlkunum stjórnmálamanna á úr- slitum kosninganna um liðna helgi. Venju samkvæmt er reynt að gera sem minnst úr ósigrum en staðbundinn árangur gjarnan upphaf- inn. Framsóknarmönnum tekst jafnvel að greina ljóstíru í myrkrinu sem nú umlykur flokkþeirra. Það telst verulegt afrek. Hitt er rétt að vart verður greint að úrslit sveitarstjórnarkosninganna feli í sér stórbrotin pólitísk tíðindi. Tilvistarkreppa Framsóknarflokksins hefur verið staðfest; vart kemur það á óvart. Samfylkingunni hefur enn ekki tekist að verða það mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn sem stefnt er að. Sú niðurstaða er að mestu í samræmi við skoðanakannanir og hina pólitísku þróun á íslandi á undanliðnum árum. Slakur árangur í Reykja- vík kemur á hinn bóginn á óvart og hlýtur að vera Samfylkingunni áhyggjuefni. Nokkuð ber á því að rætt sé um að vinstri bylgja hafi riðið yfir landið í þessum kosningum. Það er oftúlkun á ástandi og úrslitum. Árangur Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs er að sönnu ágætur og Frjáls- lyndi flokkurinn bætir einnig við sig. Vísast hefur andstaða þessara flokka við stóriðju skilað þeim umtalsverðri fylgisaukningu. Hinu má ekki gleyma að vandi Framsóknarflokksins hlaut að skila sér í fylgisskriði og eðlilegt er að kjósendur flokksins skyldu velja að styðja nú aðra flokka en samstarfsflokk framsóknarmanna í ríkisstjórn. Sú mikla þreyta sem einkennir ríkisstjórnarsamstarfið bitnar ekki á Sjálfstæðisflokknum og hlýtur það að teljast góður árangur. Fyirsjáanlegt er að dræm þátttaka í kosningunum verði mönnum um- ræðu- og áhyggjuefni á næstunni. Ástæða er til að kanna hana sérstak- lega og það hljóta fræðimenn að gera. Á kjördag var nokkuð um það rætt að kosningaþátttaka ungs fólks virtist lítil. Reynist það rétt er ljóst að flokkarnir standa frammi fyrir vanda sem krefst snarpra viðbragða. Hitt ber einnig að hafa í huga að sú mikla miðjusókn sem einkennir stjórnmálaþróunina nú um stundir er ekki fallin til að kveikja eldmóð í röðum kjósenda. Þegar erfitt er að gera greinarmun á flokkum og fylk- ingum er ekki líklegt að áhugi vakni. Þá er hugsanlegt að sífellt stærri hópar fólks fái ekki séð að málfutningur flokkanna eigi við það erindi. Sá málflutningur er mjög sniðinn að þörfum og hagsmunum fjölskyldufólks en þeim fer nú fjölgandi sem draga það mjög að samlagast því mynstri eða hafna því. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík. Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Oliver Goldsmith Gleraugnaumgj arðir Hönnun gleraugnaumgjarða sem virka vel fyrir sjónina og líta jafnffamt vel út á fólki krefst fágætrar blöndu hæfileika. Til þessa má rekja velgengni Oliver Goldsmith sem alþjóðlegs gleraugnahönnuðar. Sjónffæði er honum í blóð borin þar sem hann er þriðja kynslóð hönnuða innan Goldsmith fjölskyldunnar. Afi hans stofnaði fyrirtækið árið 1926 í litlu bakherbergi í London Soho hverfí þar sem umgjarðir voru í fyrstu handsmíðaðar úr skjaldbökuskeljum. Oliver Goldsmith hefur persónulega hannað gleraugu fyrir John Lennon og Díönu prinsessu, meðal annara. Oliver kynnir nýjustu OG umgjarðimar í verslun Sjónarhóls Reykjavíkurvegi 22. Hafharfírði fímmtudagiim 1. júní og föstudaginn 2. júní á milli kl. 10 og 18 báða dagana Auglýsíngadeild Smáauglýsingar 510-3744 510-3737 blaðid^ Oliver Goldsmith 14 I ÁLIT ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 blaöiö SjÁÍPT B/tífl! tc, FR (/« UPpí. wm æp fe m S Ht-fr Ap Hfirn 4T \jNNl-Ð " 4" Tt LL.Z2 oR Fjöregg Framsóknarflokksins Framtíð Framsóknarflokksins var undir í kosningunum um helgina. Flokkurinn á erfitt uppdráttar og samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn síðastliðinn áratug er nú að koma niður á honum af fullum þunga. Svo miklum þunga reyndar að Fram- sóknarflokkurinn gæti allt eins verið að breytast í lítinn jaðarflokk í stað þeirrar kjölfestu á miðjunni sem brúaði bilið á milli hægri og vinstri sem hann eitt sinn var. Miðjan er ekkilengur Framsóknar- flokksins. Þangað er Samfylkingin komin og þar er Sjálfstæðisflokkur- inn þegar honum hentar. Óljóst tal um hófsaman miðflokk dugar ekki lengur til þegar þorri kjósenda sér lítinn mun á Framsókn og Sjálfstæð- isflokknum eftir langt og átakalítið samstarf í ríkisstjórn. Það þarf meira til. Róttæka breytingu sem færir flokknum nýja sókn inn í ís- lensk stjórnmál. Framsóknarflokkurinn þarf að ganga í endurnýjun lífdaga þar sem ný og skýr sérstaða frá bæði Sjálfstæðisflokki og Samfylking- unni er þungamiðja endurnýjunar flokksins. Þvf hefði maður haldið fyrirfram að dagskipan Halldórs formanns væri að vinna til vinstri í sveitarstjórnum. Áfram með íhaldi Annað kemur á daginn. Áður en rykið sest á vígvellinum eru fram- sóknarmenn í Kópavogi búnir að skrifa undir framhald á löngu samstarfi við sjálfstæðismenn. Þá eru stóru tíðindin að Framsókn er gengin í eina sæng með Sjálfstæðis- flokki í Reykjavík. Þar er teflt á tæpasta vað og spurning hvort flokkurinn fái ekki að kenna á reiði kjósenda af end- urnýjuðum krafti í kosningum til Alþingis að ári. Sérstaklega í ljósi þeirrar erfiðu stöðu sem flokkur- inn er í á Suðvesturhorninu og á Eyjarfjarðarsvæðinu. En af hverju ekki að vinna til vinstri og slá þar með stærstu vopnin úr höndum gagnrýnenda flokksins um þjónkun við íhald í Björgvin G. Sigurðsson ríki, borg og bæjum? Erfitt að segja en Björn Ingi og Ómar Stefánsson, hinir ungu leiðtogar flokksins á höf- uðborgarsvæðinu, eru með fjörgg Framsóknar í höndum sér. Þar gæti brugðið til beggja vona og eggið endað í gólfinu. Brestur í baklandinu Vinstra samstarf í borg og Kópavogi hefði án efa hleypt nýju lífi í flokkinn. Þó framsóknarmenn hefðu þurft að leggja á sig fjölflokka samstarf. Slíkt kallar á fyrirhöfn og leikni en lítið meira en það. Regnboginn rúllar yfir alla flokka í sveitarstjórnar- málum þar sem allt gengur út á að vera mesti kratinn í framboði. Það brýtur ekki á grundvallarmálum. Sjálfstæðismenn í Reykjavík boða t.d. hvorki einkavæðingu Orkuveit- unnar né lækkanir á sköttum. Því miður. Það vantar valkost til hægri í raun og veru. Ekki síst þegar Frjáls- lyndir hendast vinstra megin við VG í bæði umhverfis- og velferð- armálum. Regnbogastjórnmálin blífa. Allir eru vinalegir sósíalistar korterið fyrir kosningar til sveitar- stjórna. Því eru þau einnig svo átak- anlega loðin og óspennandi fyrir mörgum kjósendum. Hvort að fjöregg Framsóknar sé í tröllahöndum kemur í ljós. Ég spái því að ákvarðanir hinna ungu leið- toga Ómars og Björns um að vinna með Sjálfstæðisflokki í borg og bæ endurnýji heift kjósenda til vinstri í garð Framsóknar. Það nefnilega brast eitthvað i baklandi Fram- sóknar þegar flokkurinn studdi innrásina í írak á sínum tíma. Sá brestur er enn til staðar og samstarf til hægri í höfuðborginni er í augum þessarar fyrrum stuðningsmanna Framsóknar staðfesting á því að flokkurinn er lítið annað en stunð- ingfulltrúi Sjálfstæðisflokksins þegar samstarf til vinstri býðst og er enn kostur. Framtíð Framsóknar er undir. Hún ræðst á næstu mánuðum en horfur eru hörmulegar eftir að flokkurinn gekk til liðs við sjálf- stæðismenn í kjölfar kosninga til sveitarstjórna. Höfundur er þingmaður Samjylkingar. Klippt & skorið klipptogskorid@vbl.is Menn hafa vitaskuld ýmsar skoð- anir á úrslitum nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga og það er eðlilegt, að mati Einars K. Guðfinnssonar, sjávarút- vegsráðherra. En sá knái þing- maður Bolvíkinga (þar sem klofningsframboð sjálfstæðis- manna hafði sigur á sjálfstæð- ismönnum) velkist ekki í vafa um hvað stendur skýrast upp úr eftir kosningarnar: „ Vinstri sambræðings hræðslubandalög tapa víðast hvar. Á því eru undantekningar, en meginlinan erskýr. Þessarkosningar voru uppgjör við hræðuslubandalögin. Og erþað ekki táknrænt. Nú eru einmitt 40 árliðin frá því að frægasta hræðslubandalag lýðveldis- tímans leitdagsins Ijós; bandalag framsóknar og Alþýðuflokks. Það fór á rassinum út úr þeim kosningum. Núá 40 ára afmæli gamia hræðslubandalagsins endurtekur sagan sig. Iþessum kosningum komglöggt fram að kjósendum hugnast ekkiþessi vinstri skyrhræringur.“ WWW.EK6.IS, 29.V.2006 Samfylkingarmenn eru enn í sárum eftir úrslit borgarstjórnarkosning- anna, en hvíslað er um að meiriháttar flétta kunni að vera í vændum á þeim vígstöðvum. Telja sumir að Dagur B. Eggertsson hafi engan sérstakan metnað til þess að vera oddviti í minni- hluta borgarstjórnar og hann kunni að vilja snúa sér aftur að læknisstörfum á erlendri grundu, líkt og hugur hans stóð til áður en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, fékk hann til þess að gefa kost á sér. Láti Dagur af störfum er svo spurning hver taki við af honum sem oddviti. Vitað er að bæði Steinunn V. Óskarsdóttir, sem senn lætur af starfl borgarstjóra, og Stefán Jón Hafstein hafa velt fyrir sér þing- framboði að ári, en annað hvort mun sjálfsagt sitja eftir til þess að taka við af Degi. Ef hann fer þá fet. Enginn vill gefa upp nákvæmlega hvað bar á milli í viðræðum Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og Ólafs F. Magnússonar um flugvallarmálið. Hvíslað er um að Villi hafi boðið að láta völl- inn eiga sig á kjörtímabilinu, en að Ólafur hafi viljað festa hann beinlínis í sessi meðeinhverjumhætti.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.