blaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 15
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006
15
Framsókn á sömu
leið og Alþýðuflokk-
urinn forðum
íframhaldi af viðhorfsgrein Einars Kára-
sonar í Blaðinu 24. maí.
Eftir Pétur Jósefsson
Það er ótrúlegt en satt en Framsókn-
arflokkurinn virðist vera á sömu
leið og Alþýðuflokkurinn fór fyrir
tæpum 10 árum.
1 Alþýðuflokknum þynntist liðið
með þvi að ýmsum liðsoddum
flokksins þótti rétt að tryggja sér feit
embætti áður en í óefni var komið.
Eiður Guðnason fór úr ótryggu emb-
ætti umhverfisráðherra í sendiherra-
embætti og þar með undir verndar-
væng utanríkisráðuneytisins. Karl
Steinar hvarf af Alþingi í forstjóra-
stól hjá Tryggingastofnun ríkisins
og Jón Sigurðsson fór úr embætti
viðskiptaráðherra í Seðlabankann
en þó ekki fyrr en samflokksmaður
hans var kominn í stólinn hans og
gat skipað hann seðlabankastjóra
en þá heyrði Seðlabankinn undir
viðskiptaráðuneytið. Siðar hvarf
Sighvatur Björgvinsson af Alþingi
í þróunarmálin. Eftir margra ára
útivist í Evrópulöndum sem utan-
ríkisráðherra kom svo Jón Baldvin
heim og ætlaði að fara að stjórna
flokki sem í fjarveru hans hafði að
miklu leyti gefist upp á tilverunni
sbr. hér að framan. En eftir að hafa
misst embætti utanríkisráðherra
gerðist Jón Baldvin svo þreyttur í
stjórnarandstöðu og á Jóhönnu Sig-
urðardóttur að hann fékk vini sína
í ríkisstjórninni til þess að skipa sig
í sendiherraembætti í Washington.
Og þar með dó Alþýðuflokkurinn
drottni sínum.
Menn geta auðvitað haft ýmsar
skoðanir á úrslitum nýafstaðinna
sveitarstjórnarkosninga og það er
eðlilegt. En meðal þess sem upp úr
stendur og er skýrt er þetta: Vinstri
sambræðings hræðslubandalög
tapa víðast hvar. Á því eru undan-
tekningar, en meginlínan er skýr.
Þessar kosningar voru uppgjör við
hræðuslubandalögin. Og er það
ekki táknrænt. Nú eru einmitt 40
ár liðin frá því að frægasta hræðslu-
bandalag lýðveldistimans leit dags-
ins ljós; bandalag Framsóknar og
Alþýðuflokks. Það fór á rassinum
út úr þeim kosningum. Nú á 40 ára
afmæli gamla hræðslubandalags-
ins endurtekur sagan sig. í þessum
kosningum kom glöggt fram að kjós-
endum hugnast ekki þessi vinstri
skyrhræringur.
Veikir flokkar smala sér saman í lið
R listinn í Reykjavík var slíkt hræð-
uslubandalag, sem átti sér fyrst og
fremst þá hugsjón að koma Sjálfstæð-
isflokknum frá völdum í Reykjavík,
enda var til þess stofnað í kjölfar
skoðanakönnunar sem benti til þess
að slikt gæti skeð. Sú atlaga að Sjálf-
stæðisflokknum tókst og þá kvikn-
aði líf i fleiri slíkum hræðslubanda-
lögum. Markmiðið er alls staðar hið
sama. Að búa til pólitískt afl gegn
Sjálfstæðisflokknum.
Við vitum hins vegar að sagan á
bak við þessi fyrirbrigði er sums
staðar jafnframt lika önnur. Veik-
leiki flokkanna er slíkur að það
þykir henta að smala saman í lið
til þess að bjóða fram. Eitt og sér
treysta þessi framboð sér ekki til
þess. Eftir á eru framboðin klædd
í einhvern nýjan búning til þess að
draga athyglina frá raunverulegum
ástæðum tilveru þeirra.
Ernúsaganöll?
En er nú sagan öll? Það er eðlilegt að
Halldór Ásgrímsson var árum
saman erlendis sem utanríkisráð-
herra og hélt að flokkurinn stjórn-
aði sér sjálfur í fjarveru hans en
svo virðist komið á daginn að eftir
alla þessa fjarveru formanns Fram-
sóknarflokksins sé lítið orðið eftir
af flokknum ef marka má ótal skoð-
anakannanir undanfarnar vikur.
Niðurstaðan er sú að hver höndin
er uppi á móti annarri í flokknum
hans og þykir undirrituðum fremur
líklegt að flokkurinn deyi drottni
sínum sem sjálfstætt stjórnmálaafl
og fylgið sem eftir er muni dreifast
á Sjálfstæðisflokkinn og Samfylking-
una. Raunar hefur undirritaður átt
bágt með að skilja undanfarin 15 ár
hvers vegna þessi vesalings flokkur
er ennþá til enda SÍS frændi látinn
fyrir löngu.
Kannski má draga þann lærdóm af
þessari þróun þessara tveggja flokka
að óhollt sé flokksformönnum að
sitja í embætti utanríkisráðherra
nema stuttan tíma. Eilífar fjarvistir
utanríkisráðherrans á eylandi okkar
frá flokksmönnum og Alþingi er ber-
sýnilega óheppilegt fyrir formenn
stjórnmálaflokka. Hvers vegna
flokksformenn kjósa embætti utan-
ríkisráðherra skilur maður eiginlega
varla - embætti fjármálaáðherra er
í raun miklu áhrifameira og valda-
meira embætti en embætti utanrík-
isráðherra. Líklega er rétt fyrir Geir
Haarde að athuga sinn gang!
Höfundur er eftirlaunamaður
slíkrar spurningar sé spurt, í ljósi
úrslitanna. Svarið er nei. Veikleiki
flokkanna sem að þessum hræðslu-
bandalögum hafa staðið, er slíkur
sums staðar, að líklegt má telja að
enn muni blakta ljós á samkrull-
stýrunni hist og her. En ætla verður
þó að mjög muni draga úr áhuga
manna á svona framboðum, í ljósi
þeirra hrakfara sem kosningarnar
voru fyrir bræðingsframboðin. Þess
vegna vekur það auðvitað furðu að
gömlu stjórnendurnir úr R lista
þrotabúinu reifuðu nú að afloknum
kosningunum, hugmyndir um
nýjan R lista og á nýrri kennitölu að
loknum fjórum árum. Það hlýtur að
teljast til vitnis um ótrúlega örvænt-
ingu sem ríkir á þeim bæ bak kosn-
ingum nú.
Alls staðar geigaði atlagan
En skoðum aðeins landslagið
með hliðsjón af þessum vinstri
hræðslubandalögum.
Þeir reyndu í Reykjanesbæ, Hvera-
f;erði, Vestmannaeyjum, Seyðisfirði,
sfjarðarbæ, Bolungarvík, gjörvöllu
Snæfellsnesinu án þess að takast
það ætlunarverk sitt að ná hreinum
meirihluta. Og það þrátt fyrir að
sums staðar væri Framsóknarflokk-
urinn með í bixinu. Það vantaði
ekki að hátt væri reitt til höggs. En
alls staðar geigaði atlagan. Fylgið
hrundi eða dugði ekki til, þó skoð-
anakannanir sýndu sums staðar
góðan byr fyrir nokkrum vikum.
Þetta er ekkert minna en hreint
áfall fyrir þá sem að þessum fram-
boðum stóðu. Dæmin um árangur
af slíkum samkrullsframboðum,
finnum við einungis í undatekning-
artilvikum og þar skýrist hann af
staðbundnum aðstæðum...
EinarK. Guðfmsson
sjávarútvegsráðherra
www.ekg.is
MIKIÐ ÚRVAL AF NÝJUM 06 6LÆSILEGUM BARSTÓLUM
Það hefur aldrei verið til meira úrval af barstólum hjó okkur!
Vió erum meó barstóla í mörgum flottum litum, gerðum og veróum sem ætti aó henta
öllum. Komdu og kíktu vió hjó okkur og skoöaöu úrvaliö!
www.rumfatalagerinn.is