blaðið - 30.05.2006, Síða 16
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 blaðiö
16
Litlar breytingar á bensinuerði
Bensínverð breytist að þessu
sinni lítið frá því í síðustu
könnun. Algengt verð á bensín-
lítra er nú í kringum 124 krónur
sé miðað við almennt verð í
sjálfsafgreiðslu.
Orkan býður nú lægsta verðið
eða 122,8 krónur lítrinn. Atlants-
olía, Egó og ÓB eru þó ekki langt
frá en þar kostar bensínlítrinn
122,9 krónur. Dýrast er að versla
við Essó, Olís og Skeljung en
þar er algengt verð 124,4 krónur
líterinn.
Maímánuður hefur verið nokkuð
sveiflukenndur en almennt
hefur verð þó farið lækkandi. í
byrjun mánaðar var algengt verð
á bensínlítra um 132 krónur og
hefur það því lækkað um tæpar
8 krónur. Verðið í dag er svipað
eins og það var í lok marsmán-
aðar en tíu krónum dýrara sé
miðað við síðustu áramót.
eru ódýrastir? j jH|H^Hr;SMF Samanburður á verði 95 oktana bensíns
AC Sprengisandi 122,9 kr. Kópavogsbraut 122,9 kr. Óseyrarbraut 122,9 kr.
ó 660 Vatnagörðum 122,9 kr. Fellsmúla 122,9 kr. Salavegi 122,9 kr.
© Árt1*24S4 kr03
ffffl Gullinbrú 123,9 kr Sæbraut 124,4 kr.
Eiðistorgi 122,8 kr. Klettagörðum 122,8 kr. Skemmuvegi 122,8 kr.
ORKAN
03 ðdýrtbwuín Háaleiti 122,9kr. Starengi 122,9 kr. Snorrabraut 122,9 kr.
@ Gylfaflöt 123,9 kr. Bm4kar.Ut Bústaðarvegi 124,1 kr.
Dragðu úr elds-
neytisnotkun
í Ijósi þess að eldsneytisverð er nú í sögu-
legum hœðum er ekki verra að kynna sér
leiðir til að draga úr eldsneytisnotkun.
Verð á bensíni hefur hækkað tölu-
vert á undanförnum árum og mán-
uðum. Þetta hefur að sjálfsögðu í
för með sér að íslendingar þurfa að
eyða sífellt stærri hluta af ráðstöfun-
artekjum sínum í rekstur einkabíls.
Þannig fóru 7,2% af ráðstöfunar-
tekjum íslenskra heimila í rekstur
heimilisbíls árið 2004 og viðbúið að
sú tala verði mun hærri í ár.
Margir gera sér kannski ekki
grein fyrir því en til eru fjölmörg
ráð til að draga úr eldsneytisnotkun
bifreiðar. Mörg þeirra fela ekki í sér
neina meiriháttar brey tingar heldur
fyrst og fremst að fólk skipuleggi sig
eilítið betur og eyði ekki bensíni að
óþörfu.
Notast við tvo jafnfljóta
Fyrsta og augljósasta leiðin til að
draga úr eldsneytisnotkun er að
takmarka notkun bifreiðar við þau
tilvik þar sem ekkert annað kemur
til greina. Margir eru of gjarnir á
að skreppa út í búð á bíl þegar það
tekur kannski ekki nema fimm til
tíu mínútur að ganga sömu leið. Þeir
sem hafa tök á að notast við tvo jafn-
fljóta ættu því að hugsa sig tvisvar
um áður en þeir setjast upp í bílinn.
Þá ættu menn einnig alltaf að
reyna að velja stystu leiðina að
áfangastað. Sumir setjast upp í bíl
án þess að hafa minnstu hugmynd
um það hvernig þeir ætla sér að kom-
ast á leiðarenda. Kylfa ræður þar oft-
ast kasti og sú leið sem er að lokum
valin stjórnast kannski frekar af
vana eða tilviljun og allsendis óljóst
hvort að sú leið sé styst og þ.a.l. hag-
kvæmust fyrir budduna.
Samnýta ferðir
Þá er einnig gott að reyna að sam-
nýta ferðir eins mikið og mögulegt
er. Margir eiga það til að fara þrjár
ferðir sama dag út í mismunandi
verslanir og búðir þegar hægt hefði
verið að samnýta ferðirnar í eina
langa ferð. Bara svona einfalt skipu-
lagsatriði getur sparað marga bens-
ínlítra á hverjum mánuði.
Margar verslanir og þjónustufyrir-
tæki bjóða nú neytendum upp á ítar-
legar upplýsingar um vöruúrval og
vöruverð á Netinu. Áður en lagt er
af stað getur fólk því athugað hvar
tiltekin vara er ódýrust og því skipu-
lagt ferð sína eftir þvi. Þetta sparar
endalausar ferðir milli margra
staða í leit að ákveðinni vöru og við
verðsamanburð.
1
Forðast háannatíma
Fólk ætti líka að forðast að vera
mikið á ferðinni þegar umferðin er
hvað þyngst. I Reykjavík er umferð
oftast þyngst á milli klukkan 16 og
18 á daginn enda flestir að fara í eða
úr vinnu á þeim tíma. Þeir sem hafa
það svigrúm að sleppa við að ferðast
á þessum tíma dags ættu frekar að
kjósa þann kost. Það getur verið gríð-
arlega bensínfrekt að þurfa að keyra
stöðugt í fyrsta gír og aldrei ná að
halda jöfnum hraða. Því ættu þeir
sem vilja spara eldsneyti að láta það
vera að ferðast mikið á háannatíma.
Þá er ekkert að því að nýta sér
hlutlausa gírinn þegar farið er niður
brekkur og ekki auka hraðann þegar
fyrirsjáanlegt er að maður muni
lenda á rauðu ljósi innan skamms.
Betra er að draga smám saman úr
hraða því ekkert eyðir bensíni jafn
mikið og mikil hraðaminnkun.
Þyngri bílar eyða meiru
Mikilvægt er að jafn loftþrýstingur
sé í öllum dekkjum og nægt loft.
Of lítið getur þýtt að bifreiðin eyði
meira eldsneyti en þörf krefur. Þá
ætti fólk að forðast að geyma of
mikið af þungum hlutum í skottinu.
Þyngri bíll eyðir meira eldsneyti
og það sama gildir um alla loftmót-
stöðu. Þakbogar eru nýtanlegir til
margra hluta en ef menn eru ekki að
nota þá að staðaldri ættu þeir frekar
heima í geymslunni.
Ekki skilja bíl eftir í lausagangi
enda eyðir það ekki bara bensíni að
óþörfu heldur mengar það líka um-
hverfið. Betra er að drepa á bílnum
enda er sú fullyrðing að bíll eyði
miklu bensíni þegar hann er ræstur
ekki á rökum reist. Staðreyndin er
sú að bílar sem framleiddir eru í dag
eyða mjög litlu eldsneyti þegar þeir
eru ræstir.
Heitar pylsur handa ferðalöngum
Frændir vorir Norðmenn hafa
mikið dálæti á hvers konar útivist.
Þessi ásókn þeirra í náttúruna
hefur einnig skilað sér mörgum
sniðugum lausnum sem eru bæði
hagnýtar og þægilegar.
Ein þeirra snýst um það að geta
alltaf dregið fram heita pylsu án
þess að hafa mikið fyrir því. Þetta
er afar einföld lausn og allir sem
eiga meðalstóran hitabrúsa geta
nýtt sér hana. Flún felst í þvi að
áður en lagt er af stað í ferðalag er
vatn hitað í potti. Vatninu er síðan
komið fyrir í hitabrúsa og ofan í
hann eru síðan settar eins margar
pylsur og pláss leyfir. Þetta tryggir
það að þegar hungrið sækir að
eru pylsurnar orðnar soðnar og
þægilega heitar til neyslu. Með
þessu sparast líka ferðalag í næsta
söluskála.
M .
ULFLJOTSVATNI
Uppiýsingar og skróning á netinu:
www.ulfljofsvatn.is
- Sparkleikir - Frumbyggjastörf - Ædol - Utilíf - Kassabílaakstur - Suf/d -1
Fyrir stráka og stelpur 8-12 ára - skipt í hópa eftir aldri
Krassandi útilífsœvintýri - fjör og hópeflisandi!
%%
a
INNRITUN ER HAFIN-Opið virka daga kl. 10-16-sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is,