blaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 18
26 I HEILSA ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 blaöiö margret@bladid.net Bónus • Hagkaup • World Class • Hreyfing • Hress Hollusta í hverjum bital Melónur eru meinhollar Fátt er sœlla en að læsa tönnunum í safaríka melónusneið Melónur bera með sér bragð af sumri og sólheitum ströndum. Þær eru kaldar og stökkar, safa- ríkar og léttar, en einnig hlaðnar góðum vítamínum. Til dæmis er heill dagskammtur af A vítamíni og um sjötíu prósent af C vítamín þörf þinni í hálfri sneið af gulri melónu, og þar af eru aðeins 50 hitaeiningar og engin fita í sneiðinni! Melónur eru af sömu ætt og t.d. kúrbítur og agúrkur en þær eru hins vegar flokkaðar sem ávöxtur út af sætleika þeirra. Bændur í Mið-Aust- urlöndum voru fyrstir til að rækta melónur fyrir rúmum þúsund árum og með Kólumbusi komu þær svo til Ameríku. Því fagna Bandaríkja- menn enn og á hverju ári borða þeir um n kg á mann af melónum. Melónur geta gert ákaflega mikið fyrir sumarsalatið sem er borðað eitt og sér eða með grillmatnum. Þá er m.a. gott að mauka þær í ma- tvinnsluvél og nota sem dressingu eða bera fram sem forrétt eða léttan rétt ásamt hráskinku og nokkrum piparkornum, en piparinn, sé hann notaður í örlitlu magni, dregur fram sætuna í ávextinum. Geymast í þrjá daga í ísskáp Það er hægt að kaupa melónur allt árið um kring, bæði vantsmelónur, hunangsmelónur og gular, en þær eru samt yfirleitt alltaf langbestar þegar líða fer á sumarið. Þegar þú velur þér meiónu úr ávaxtaborðinu þá ætti hún alltaf að vera stinn (þó ekki glerhörð), töluvert þung miðað við stærð, laus við alla myglu eða mjúka bletti og það er óþarfi að hafa áhyggjur þó hún sé örlítið þyngri á aðra hliðina. Það er bara vegna þess að kjötið sígur örlítið með þyngdar- aflinu, eftir því hvernig melónan liggur. Melónur má geyma við stofu- hita ef þær eru ekki alveg þroskaðar, en um leið og þær ná þroska, eða eftir að búið er að skera þær, á að vefja þær í plastfilmu og setja í ís- skápinn. Þar endast melónur í um fimm daga - en þrjá eftir að búið er að skera þær. margret@bladid.net Brjóstagjöf með aðstoð hómópatíu - Fyrri hluti Landlœknir hvetur fjölmiðla- fólk til að setja sér vinnureglur Æðstu stjórnendur sjúkrastofnana þurfa að gefa leyfifyrir mynda- tökum og viðtölum enda oft um viðkvœm mál að rœða. Brjóstagjöf er almennt mjög gef- andi og nærandi reynsla þegar allt gengur vel, en það getur líka valdið okkur miklum vonbrigðum, skap- raunum og örvæntingu ef við upp- lifum erfiðleika við að koma reglu á brjóstagjöfina. Það geta legið margar ástæður að baki þess að erfiðleikar koma upp við brjóstagjöfina. Þetta getur verið vegna erfiðrar fæðingar, til- finningalegra vandamála eins og fæðingaþunglyndis, vanlíðunar eða kvíða en einnig vegna líkam- legra kvilla eins og sprungnar geir- vörtur, magakrampar og svo fram- vegis. Hómópatía getur oft hjálpað í þessum tilfellum ásamt fleiri góðum aðferðum. Til dæmis getur það hjálpað að nudda brjóstið létt og leggja á það heita og kalda bakstra. Það er um að gera að gæta þess að fá næga hvíld og gefa sér líka góðan tíma í brjóstagjöfina. Svo er mjög mikilvægt að drekka mikið af vatni og láta brjóstin tæmast vel þegar verið er að mjólka eða gefa. Ef eftirfarandi ráð og remedíur leysa ekki vandamálið frekar fljótt þá hvet ég þig til að leita frekari aðstoðar. Belladonna: Við bráða bólgutil- felli er Belladonna yfirleitt fyrsta re- medían sem reynt er að nota. Takið hana inn á klukkutíma fresti við brjóstabólgu, ef hiti og stífla eru í brjóstinu, eða jafnvel sláttur. Bryonia: Hentar venjulega fyrir hægra brjóstið ef það er hart og heitt, en virkar ekki eins vel þegar um hreyfingu eða hita er að ræða. Phytolacca: Notuð ef brjóstið er hart og hnúðótt, eða ef hnúðarnir verða sársaukafullir og kýli gætu verið að byrja að myndast. Magakrampi Eftirfarandi remedíur eru notadrjúgar fyrir börn með magakrampa: Chamomilla: Barnið er pirrað, niðurgangurinn er grænn á litinn, barnið dregur hnén upp að maga Landlæknisembættið hefur nýverið sent frá sér bréf þar sem fjölmiðlafólk er hvatt til að viðhafa ákveðnar vinnureglur hvað varðar umfjöllun sína á mál- efnum einstakra sjúklinga. Þegar viðtöl eru tekin við sjúk- linga fara þau oftar en ekki fram inni á sjúkrastofnunum og þá kemur það fyrir að aðrir sem eru þar staddir birtist í mynd. Landlæknir hvetur fjölmiðlafólk til að taka tillit til þessa og fá samþykki frá öllum sem hugsanlega gætu komið að um- fjölluninni hvort sem er með máli eða myndum. Hann minnir einnig forstöðumenn slíkra stofnana á þá ábyrgð sem hjá þeim liggur. Aðgát skal höfð í nær- veru sjúklings Landlæknir mælir með að vinnu- reglur þessar byggist m.a. á því að forstöðumenn og faglegir stjórn- endur heilbrigðisstofnana beri ábyrgð varðandi aðgengi fjölmiðla að sjúklingum og upplýsingum til fjölmiðla um sjúklinga og vistmenn stofnana. Hann hvetur til að sam- þykki sé fengið frá æðstu fagstjórn- endum stofnunar, eða þeirra sem þeir tilgreina, áður en leyfi til töku viðtals er veitt inni á stofnuninni, jafnvel þó samþykki sjúklings eða Það er mikilvægt að fjölmiðlafólk setji sér skýrar vinnureglur þegar tekin eru viðtöl við sjúklinga á sjúkrastofnunum. aðstandenda liggi fyrir. Einnig er lagt til að þessi viðtöl fari síður fram á göngum eða sjúkraherbergjum við- komandi stofnana og ef ekki er hægt að fallast á viðkomandi skilyrði, þá verði fjölmiðlafólkið að bíða effir því að sjúklingurinn útskrifist af stofnuninni. Að lokum leggur hann áherslu á að mikilvægt sé að virð- ingar sjúklings sé gætt í viðtölum af þessu tagi og að metið sé að sjúkling- urinn hafi í reynd hæfni til þess að meta mögulegar afleiðingar slíkra viðtala eða umfjöllunar. BYLGJA SVARAR SPURNINGUM / UMÓHEFÐBUNDNAR " LÆKNINGAR P • - 1 >.' ■ fC þegar verkirnir eru og einkennin verða sérstaklega slæm í kringum níuleytið á kvöldin. Mag Phos: Barnið er þreytt og úr- vinda með snögga krampaverki. Belladonna: Ef barnið er heitt, eirðarlaust, með útþaninn kvið og sveigir bakið aftur. Móðirin þreytt eftir brjóstagjöf China: Veikburða eftir vökvatap við fæðingu eða brjóstagjöf. Silica: Veikburða, þyngdartap og orkulítil. Yfirfull brjóst Belladonna: Brjóstin full, heit og það flæðir úr þeim. Bryonia: Þrútin og full. Verri við hreyfingu. Calc carb: Brjóstin stór og óþægi- leg. Nóg af mjólk en léleg gæði. Að venja barn af brjósti Það er alltaf talið best að venja barnið af brjóstinu hægt og rólega en stundum er það einfaldlega ekki hægt af margs konar ástæðum. Lac Caninum og Pulsatilla eru nota- drjúgar remedíur til að minnka mjólkina þegar verið er að venja barn af brjósti. Sum börn verða kvekkt eða upp- lifa aðra erfiðleika þegar gjöfum er hætt og þá gæti heildræn remedía komið að góðum notum. Kveðja Bylgja Hvar fínnur þú hómópata? Auðveld- asta leiðin er að fara á www.homopatar.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.