blaðið - 30.05.2006, Page 30
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 blaðið
38 I
SIGURVEGAR-
INN
Smáborgarinn fylgdist eins og þorri lands-
manna með kosningunum um síðustu
helgi. Það verður varla sagt að úrslitin
hafi komið á óvart enda höfðu spár gefið
kjósendum nokkuð glögga mynd af þeim
niðurstöðum sem siðan voru opinberaðar
á laugardagskvöldið. Ræðuroddvita eftir
að úrslit lágu fyrir komu heldur ekki á
óvart. Menn tóku ósigri með reisn og sigri
með jafnaðargeði. Sumir lýstu því yfir að
þeirætluðu í„harða" naflaskoðun og enn
aðrir táruðust af gleði þegar kjósendur
höfðu náðarsamlega gefið þeim fjögur ár
í einhverri sveitar- eða bæjarstjórn.
Auglýsingaslagur
Ekki táraðist Smáborgarinn af gleði eða
sorg þrátt fyrir að hlutirnir hafi ekki þró-
ast alls staðar eins og hann hefði kosið
- og reyndar kaus. Þegar upp er staðið
eru kosningar að mörgu leyti fyrir löngu
hættar að snúast um djúpstæðan mál-
efnalegan ágreining. Þetta er fyrst og
fremst ímyndabarátta milli manna og
flokka. Einhver sagði að kosningar sner-
ust í raun um baráttu milli auglýsinga-
stofa um það hver næði að skapa bestu
og flottustu ímyndina af sínum frambjóð-
enda. Það kann að vera rétt enda Ijóst að
tugum ef ekki hundruðum milljóna var
eytt i að kynna frambjóðendur á síðum
dagblaðanna og í auglýsingatímum í
Ijósvakamiðlum. Minna fór þó um mál-
efnalegar umræður og man Smáborgar-
inn hreinlega ekki eftir jafn dapurlegum
kosningaslag hvað það varðar. Það sást
varla til frambjóðenda nema í eitt augna-
blik mínútu fyrir kosningar og ekki voru
þeir neitt sérstaklega sannfærandi og
frambærilegir þá.
Skrípaleikur
Nú keppast menn við landshorna á milli
að búa til meirihluta hér og þar. Smáborg-
arinn horfir á þessar athafnir stjórnmála-
manna með blendnum hug enda Ijóst að
vilji kjósenda hefur frekar lítið vægi í þess-
um leik. Þannig mun sá flokkursem mest
afhroð beið halda áfram að stjórna í næst
stærsta bæjarfélagi landsins. Þegar þetta
er skrifað er jafnvel útlit fyrir að hann
komist einnig til valda í sjálfri höfuðborg-
inni þarsem hann rétt marði einn fulltrúa.
Hvar er vilji kjósenda í þessum skrípaleik
þegar flokkur sem greinilega var hafn-
að í nánast öllum kjördæmum landsins
kemst samt sem áður til valda? Það skyldi
þó ekki vera að þeir sem töpuðu í hinu lýð-
ræðislega vali standi uppi sem sigurvegar-
ar í hinni pólitísku refskák.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknar-
flokksins.
Hvernig verður sumarþingið?
„Þetta verður mjög skemmtilegt fyrir ykkur fréttamenn, ég get lofað ykk-
ur því. Stjórnarandstaðan mætir dýrvitlaus til leiks og það verður mikið
um upphlaup, hávaða og læti. Þetta getur dregist langt fram á sumar en
þessu gæti líka linnt á einni viku. Það fer eftir því hvernig úr spilast."
Alþingi kemur saman í dag á sérstöku sumarþingi þar sem gera má ráð fyrir að mörg hitamál verði rædd.
Síðastliðinn föstudag hélt danska útgáfan Crunchy Frog tónleika á Nasa við
Austurvöll þar sem fram komu hljómsveitirnar HeavyTrash,Tremolo Beer Gut,
Powersolo og Fræ.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
S JÚKRAÞ JÁLFUN ARSKOR
Auglýsingar 510 3744
blaöi&_
eftir Jim Unger
Ekki einu sinni reyn'etta!
HEYRST HEFUR...
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
var ekki lengi að bræða
saman meiri-
hluta í Reykja-
vík, svo hann
þarf varla að
hræðast varn-
aðarorð Stak-
steinaMorgun-
blaðsins um
að þessu tækifæri mætti hann
ekki klúðra. Hins vegar er ekki
ósennilegt að Staksteinar sjálf-
ur hafi kosið annað samstarf en
það, sem varð ofan á. Þar hefur
hinn glæsilegi oddviti vinstri-
grænna, Svandís Svavarsdóttir
verið mærð verulega undan-
farnar vikur
og miðað við
árangurinn
í kosningun-
um verður
svo sem ekki
annað séð en
að hún hafi
staðið undir þeim gullhömrum
öllum...
Raunar hefur heyrst að Vil-
hjálmur hafi þegar á kosn-
inganótt litið á Vinstrigræna
sem fyrsta kost. Bæði hafi hon-
um litist vel á að hafa meirihlut-
ann rúman, en eins hitt að þar
á bænum sé nóg af mannskap
til þess að fylla hin aðskiljan-
legu ráð og nefndir valdakerfis
borgarinnar. Mannauðurinn
þykir af skornari skammti hjá
framsókn og frjálslyndum. For-
ysta vinstrigrænna hafi á hinn
bóginn viljað kanna samstarf á
vinstri vængnum til þrautar, þó
þar hafi menn alls ekki slegið
samstarf til hægri út af borðinu
að ókönnuðu máli. Kunnugir
segja að með þeim biðleik hafi
vinstrigrænir misst af vagnin-
um...
Ekkert mun hafa verið sam-
ið um skiptingu helstu
valdastofnana Reykjavíkurborg-
ar milli Framsóknarflokks og
Sjálfstæðis-
flokks, enda
munu samn-
ingaviðræður
oddvitanna
hafa snúist
um framtíð-
arsýn og sam-
eiginlegan skilning, en hrossa-
kaupin látin bíða betri tíma.
Gárungarnir segja að Björn Ingi
hafi aðeins sett fram eina kröfu
af sinni hálfu, að formaður
borgarráðs fengi bíl og einkabíl-
stjóra til afnota. Það myndi þá
veraHummer...
Könnunarviðræður um
meirihluta R-listaflokk-
anna og frjálslyndra hófust
þegar morguninn eftir kjördag
en á meðan svaf Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
fram eftir,
enda löng og
ströng kosn-
ingabarátta
að baki. Þar
mun Dagur
B. Eggerts-
son, oddviti Samfylkingarinn-
ar, hafa beitt sér mjög til þess
að af samstarfi hafi mátt verða
og verið tilbúinn til hvers kyns
eftirgjafar að þvi tilskyldu að
hann yrði borgarstjóri. Bak
við tjöldin kippti Ingibjörg Sói-
rún Gísladóttir, formaður Sam-
fylkingarinnar, í alla þá spotta,
sem hún hafði í hendi sér, en
allt kom fyrir ekki, því Ólafur
F. Magnússon óskaði eftir fund-
arhléi til þess að komast í há-
degismat, en eins og Björn Ingi
Hrafnsson skýrði frá, er Ólafur
ekki enn snúinn úr þeim máls-