blaðið - 07.07.2006, Qupperneq 1
fs's'G
Simi5777000
Fxjálst,
óháð &
ókeypis!
föstudagur
7. júlí 2006
Aukablað um
vinnuvélar
fylgir Blaðinu
idag
■ TÍSKA:
Hin
glæsilega
Charlize
Theron
|SlOUR 13-20
| SÍÐA 24
152. tölublað 2. árgangur
Magni fær
toppeinkunn
Sigga Beinteins, Idol dómari,
segir að Guðmundur Magni Ás-
geirsson hafi staðið sig frábær-
lega í raunveruleikaþættinum
Rock Star: Supernova sem sýnd-
ur var á miðvikudagskvöldið í
beinni útsendingu á SkjáEinum.
Gríðarlega góð
þátttaka var hér
á landi íkosning-
unni eftir þáttinn
og segir Hreimur
Ö. Heimisson að
Magni sé nú aug-
Ijóslega orðinn
strákurinn okkar.
| SÍÐUR4 0G 28
Skotveiði nýtur
aukinna vinsælda
Skotveiðifélagið Skotreyn
er þessa dagana að leggja
lokahönd á nýtt æfingasvæði
sem mun opna á Álfsnesinu
bráðlega. Að sögn Þóris Sigurðs-
sonar, formanns félagsins, er
leirdúfuskotfimi mjög vinsæl
íþróttagrein og hefurfarið vax-
andi á undanförnum misserum.
| SÍÐA 21
Ómur flugaldar
Þessar glæsilegu flugfreyjur voru verðugir fulltrúar flugaldar á Reykjavíkurflugvelli í gær, þar sem haldið var upp á það að 60 ár voru
liðin frá því að völlurinn komst undir íslensk yfirráð, en það voru breskir dátar og íslenskir Dagsbrúnarmenn, sem lögðu völlinn í upp
hafi hernáms Breta. f baksýn gnæfir DC-3 vél lcelandair, annað afsprengi styrjaldaráranna og jafnvel á sig komin.
Verulegu fé stolið úr heima-
banka með smáskilaboðum
Peningum var stolið af heimabanka eftir að einstaklingur fékk SMS skilaboð og fór á stefnu-
mótasíðu í kjölfarið. Þýskur forritari á íslandi fann mann sem stóð á bak við eina síðuna.
Eftir Val Grettisson
Verulegu fé var rænt af heimabanka
einstaklings eftir að hann fór inn
á stefnumótasíðu fyrir áeggjan
smáskilaboða sem voru send í þús-
unda tali hér á íslandi um miðjan
júní. Bandarískur maður á miðjum
aldri stóð fyrir síðunni samkvæmt
Michael St. Neitzel, þýskum tölvu-
fræðingi sem starfar hjá Skúlason
ehf. sem sérhæfir sig í vírusvörnum.
Michael ákvað að athuga síðuna,
smstruedate.com, þegar kona hans
fékk skilaboð í símann sinn. Hann
komst að því að síðan var hýst í
Bandaríkjunum, • nánar tiltekið
New Jersey og á bak við hana stóð
forritari á fertugsaldri sem einnig
reyndist vera viðtakandi upplýsing-
anna sem síðan útvegaði.
Tuttugu þúsund skilaboð
Tvær holskeflur af smáskilaboðum
bárusl í íslenska sima um miðjan
júní. Fyrri bylgjan fór í farsíma sem
Síminn þjónustar og sú seinni hjá
Ogvodafone. Alls munu skilaboðin
hafa verið tæp tuttugu þúsund sam-
kvæmt heimildum.
Einstaklingurinn sem fékk skila-
boð í farsímann sinn í fyrri bylgj-
unni lét glepjast af skilaboðum en
í þeim stóð að ef þú færir ekki inn
á stefnumótasíðuna þá væri tekið af
þér ákveðið gjald.
Ef farið var eftir þeim leiðbein-
ingum, sem var að finna í þessum
skilaboðum, var hætta á að tölva við-
komandi smitaðist af svokölluðum
„bakdyrum“. Við það geta óviðkom-
andi aðilar mögulega nýtt sér tölv-
una án vitneskju eiganda hennar
og fylgst jafnframt með innslætti
leyniorða inn á öruggar síður eins
og netbanka.
Þjóðverji fínnur tölvuþrjót
Tölvufræðingurinn Michael St.
Neitzel fékk þessi skilaboð og
einnig kona hans. Michael ákvað
að kanna uppruna síðunnar. Flann
fann í kjölfarið út hver maðurinn
er sem stendur á bak við síðuna og
fékk upplýsingarnar.
„Ég hringdi heim til hans en þa
svaraði kona og hún gaf mér far-
símanúmerið hans,“ segir Michael
og bætir við að hann hafi svo hringt
í manninn. Þegar Michael gekk á
hann og spurði hvort hann stæði
fyrir síðunni svaraði hann að hann
vissi ekkert um tölvur og kynni
ekki einu sinni á þær. Michael segir
að hann hafi ekki trúað því og því
fundið út við hvað hann starfaði.
í ljós kom að maðurinn starfar
sem forritari hjá tölvufyrirtæki í
Bandaríkjunum.
Hefur framið tölvuglæp
Samkvæmt Michael hringdi hann
í lögregluna á svæðinu og benti á
manninn og sagði frá því að hann
fengi upplýsingarnar og að öllum
líkindum skilaboðin sem send voru
einnig. Kom þá í ljós, að sögn Micha-
els, að maðurinn hefur áður verið
viðriðinn svipað tölvubrot. Tók þá
Michael upplýsingarnar saman
og sendi þær til Interpol og alrík-
islögreglunnar í Bandaríkjunum.
Michael segist ekki vita hver staða
mála sé en enginn hefur haft sam-
band við hann í kjölfarið.
Samkvæmt Friðriki Skúlasyni, eig-
anda Skúlason ehf.. mun það vera
nokkuð einfalt að senda út svo mikið
af skilaboðum. Hann segir að tölvu-
þjófar þurfi ekki nema fyrstu þrjár
tölurnar af símanúmerunum og svo
finni þeir svokallaðar „opnar gáttir“
sem er frí sms-þjónusta á Netinu likt
og finna má á heimasíðu Símans og
Ogvodafone. Þá nota þeir tölvuforrit
sem sendir skilaboð. í kjölfarið ber-
ast tugir þúsunda skilaboða áleiðis.
Alþjóðleg lögregluleit
Yfirmaður efnahagsbrotadeildar-
innar, Ómar Smári Ármannsson,
getur ekki staðfest að um sama
mann sé að ræða í þessu tilviki en
kannast við málið. Hann segir alla
liggja undir grun eins og málin
standa núna. Lögreglan vinnur í
samstarfi við önnur lönd vegna
málsins en ekki er gefið upp hvaða
lönd um ræðir.
Ómar áréttar að símar og Internet
erulandamæralaus ogþví auðveldar
það tölvuþrjótum að vinna út um
allan heim frá sínu eigin herbergi.
Hann segir jafnframt að afar fáir
láti glepjast en þegar um þúsundir
skilaboða sé að ræða þá séu ágæti:
líkur á því að einhver láti blekkj-
ast. Hann tekur fram að í svona til-
fellum sé það alltaf sá sem sendir
skilaboðin sem reynir að græða en
þeir sem fá þau, geta það ekki. Þv:.
á fólk að eyða skilaboðunum líkt og
símafélögin sendu tilkynningu um
þegar atvikið átti sér stað i júní.
Rannsókn málsins gengur vel að
sögn Ómars.
valur@bladid.net
Sumartilboð
20% afsláttur af öllum
hjólum út þessa viku.
Einnig 20% afsláttur af
öllum hjálmum
Full búö af nýjum hjólum!!
www.gap.is
Motomicro 16”
Frábært barnahjól
fyrir 4-6 ára
fijgjpÉ IflTOl
Cú?
FJALLAHJÖLABÚÐIN
FAXAFENI 7 S: 5 200 200
MÁN - FÖS. KL. 9-18. LAU. 10-16
Tyax Comp 26”
Frábært fjallahjól fyrir
kröfuharða
FREESTYLE
Mischief 20”
Rokadile
Ai 26”
Einnig til með kvk stelli.