blaðið - 07.07.2006, Page 12
blaöió
—
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
AR FRA BLOÐBAÐINU
Idag er ár liðið frá hryðjuverkaárás íslamskra fasista í Lundúnum, þar
sem 48 saklausir borgarar á leið til vinnu lágu eftir í valnum, en í blóð-
baðinu særðust auk þess um 700 manns. Hryðjuverk af þessu tagi vekja
ávallt óhug, en fyrir Islendinga var nálægðin meiri en oftast; fjöldamorð í
höfuðborg einnar helstu vinaþjóðar okkar, þar sem jafnan dvelja þúsundir
fslendinga við nám, starf eða eru á ferð.
Hryðjuverk eru í eðli sínu óvænt blóðsúthelling sakleysingja með það eitt
fyrir augum að valda sem mestri ógn og skelfingu. En að þvi leyti mistókst
hryðjuverkið fyrir ári. Þrátt fyrir, að allt frá seinni heimsstyrjöld hafi ekki
fleiri fallið í sprengjuárás í Lundúnum, héldu Lundúnabúar stillingu sinni
og þar gengur lífið sinn vanagang.
Enn velta margir þvi fyrir sér hvert hafi verið tilefni árásarinnar eða til-
gangur. Sumir benda á f rak, aðrir á f srael og sumir telja rótina vera eitthvað,
sem Vesturlönd hafi gert á hlut hins íslamska heims, og gefa til kynna að
hryðjuverkum íslamskra fasista muni linna, ef aðeins eitthvað er gert þeim
að skapi. Þetta er þvættingur.
Einstakar umkvartanir skipta engu máli fyrir hryðjuverkamennina, eins
og best sést á því að þeir hafa ekki uppi neinar kröfur, heldur eru meðölin til-
gangurinn. Al-Qaeda á ekki aðeins í striði við Vesturlönd, heldur vestræna
siðmenningu.
Markmiðið er ekkert minna en heimsyfirráð islam og ekki hvaða íslam,
sem er, heldur þeirrar villimennsku, sem viðgekkst i nafni trúarinnar meðan
talíbanar réðu Afganistan. Vitaskuld er markmiðið fráleitt, en um leið gerir
það að engu vonir friðþægingarsinna um að með tíð og tíma megi semja við
ógnaröflin. Þeim verður ekki gert til hæfis nema með uppgjöf, undirgefni og
siðskiptum heimsbyggðarinnar.
Undanfarna daga hafa hugmyndir um stofnun þjóðaröryggisdeildar lög-
reglu verið til umræðu hér á landi og skoðanir verið skiptar. Eitt af því, sem
tínt hefur verið til, er hvort hér á landi sé nokkur hryðjuverkaógn. Auðvitað
ekki. Sú hugmynd er jafnfjarstæðukennd og á paradísareyjunni Balí.
Samt var 202 manns slátrað á Balí hinn 12. október 2002 og annað eins
særðist og örkumlaðist. Nýlega voru opinberuð gögn, sem fundust í tölvu
eins tilræðismannanna, en þar kemur skýrt fram að Balí varð ekki skot-
mark vegna einhvers sem eyjarskeggjar hefðu til saka unnið, heldur af því
að viðbúnaður var lítill og að blóðbað í þessari friðsælu náttúruperlu væri
sérstaklega til þess fallið að fá útbreiðslu í vestrænum fjölmiðlum og vekja
þannig óhug, ógn og skelfingu um heim allan.
Það er hollt umhugsunarefni i dag. Þó ísland sé fámennt, úr alfaraleið og
þjóðin með eindæmum friðsæl, er það engin trygging fyrir því að enginn
vilji vinna landsmönnum neitt til miska.
Andrés Magnússon
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeíld: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: (slandspóstur
f GLÆSILEGUR
TUNGUSÓFI
SEM VIÐ BJÓÐUM NÚNA Á ÓTRÚLEGU VERÐI
. r o
_ ' ;> / ÞÚ SPARAR Ö
40.001
\ MEO ÞESSUM . fTf
KAUPUM
kr.1 VERÐ ÁÐUR 209.900. 69.900 I - •
ALK LÆDDUR ÍTÖLSKU LEÐRI
BEIGE, SVARTUR OG DÖKKBRÚNN
SETT
HÚSGAGNAVERSLUN
OPNUNARTtMI: MÁNUD -FÖSTUD 11Æ0-1803 LAUGARDAGA 110O-16:03 SUNNUDAGA LOKAB
SETT HÚSGAGNAVERSLUN • ASKAUND 2A - 201 KÓPAVOGUR - SÍMI534 1400 WWW.SEn.IS
12 I ÁLIT
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2006 blaðiö
VP TTt fvBUhír sm K.ZMUH TiZ &T&ÍH/I:
íNN/H’ HVoRT 'TnÚ/l 5sf>Lfíg^MSrjMnKf(i^ \>Yí
í ÍLVó'RLNVí Þ HfeHúN StYríVAXT/J SneP/
l BR kft AV þtiíf BUI /irHYGLÍSSJÚKi^^M
rf J 7 f* ) 1—
AMLl -9 fr\ i'\ jW. , / f\WCS^II [, f--, v vy.f V i \ sík: I x/ 1 I 1 1 hnjtfAjtjHT 'IMmB
rlt1 v*
Feigðin á Miklubrautinni
Á dögunum hringdi í mig sölu-
maður frá Tryggingafyrirtæki hér í
borg. Þetta var stimamjúkur piltur,
ákveðinn en ákaflega kurteis. Hann
kunni sitt fag og það vissi hann vel.
Pilturinn spurði mig varfærnislega
um heilsufar, afkomu og hræðsluna
við dauðann. Við ræddum þessi mál
í góða stund meðan klukkan í eld-
húsinu tifaði og minnti mig á að lífið
fjaraði hægt og bítandi út hvort sem
ég tryggði mig í bak og fyrir eður ei.
Ég er vanajega ekki ginnkeypt fyrir
tilboðum sölumanna sem hringja í
mig síðla kvölds en þegar ég lagði á
hafði ég fjárfest í öllum mögulegum
og ómögulegum tryggingum sem
gætu verndað mig í lífsins ólgusjó.
Stimamýkt piltsins hafði greini-
lega náð til mín. Eða kannski voru
ástæður þess að ég gekk að ótal til-
boðum um líf- og sjúkdómatrygg-
ingar eilítið flóknari. Ég áttaði mig
betur á þessu öllu saman þegar ég
keyrði í vinnuna morguninn eftir. Is-
kalt samhengi hlutanna birtist mér
á brú yfir Miklubrautinni.
Hlauptu drengur, hlauptu
Flestir foreldrar hafa fyrir löngu
lagt á hilluna söguna um illu ver-
una sem hundeltir börnin og gleypir
þau í sig ef þau haga sér ekki skikk-
anlega. Þeir fáu sem enn nota þetta
bragð eru a.m.k. litnir hornauga af
uppeldisfræðingum og betri borg-
urum þessa lands. Hræðsluáróður
er þó í fullu gildi í því samfélagi
sem við byggjum og er nýttur til ým-
issa verka. Ráðamenn segja gjarnan
sögur af verðbólgudraugnum sem
strauk okkur svo eftirminnilega
um fölan vanga hér á árum áður og
bíður jafnvel á næsta horni eftir að
rífa okkur í sig. Það er vakin með
okkur hræðsla til þess að við gerum
allt sem í okkar valdi stendur til
þess að hindra árásir hans.
Umferðarstofa hefur komið
fyrir borðum með áletrunum á
fjölförnum stöðum í borginni. Þeir
minna á borðana sem hnýttir eru
Hilma Gunnarsdóttir
í blómakransa við útfarir þar sem
nafn hins látna, fæðingar- og dánar-
dagur er kyrfilega ritað. Á borðum
Umferðarstofu er ekkert nafn og
engin dagsetning, bara slagorð á
borð við „Ert þú fréttaefni morgun-
dagsins?" og „Bíður þín banaslys?“
Borðanir ljá borginni Reykjavík
drungalegt yfirbragð, það hvílir ein-
hver þungi og sorg í loftinu meðan
bílaröðin silast áfram eftir götunum
í suddanum. Ríkistúrvarpið spilar
,Til eru fræ“ með Hauki Morthens
og ég er sannfærð um að sólin láti
aldrei sjá sig aftur.
Ekki hræða mig til dauða
Það er kunnara en frá þurfi að segja
að dauðaslys í umferðinni eru hræði-
leg staðreynd. Fjöldi ungs fólks lætur
lífið á hverju ári og mörg slysin hefði
mátt hindra með aukinni aðgætni.
Ég efast ekki um þann góða hug sem
liggur að baki borðunum svörtu og
hvítu en þeir vekja engu að síður
með mér áleitnar spurningar um
hvort tilgangurinn helgi meðalið.
Borðarnir vekja upp ónot og
hræðslu innan með þúsundum
manna á hverjum einasta degi sem
eiga sér einskis ills von. Það er eitt-
hvert vonleysi yfir auglýsingunum
og óttinn grefur um sig í sálinni.
Við vitum að stundum er ekkert
hægt að gera. Við erum algjörlega
varnarlaus, keyrandi til vinnu árla
morguns í miðri viku og það getur
allt gerst. Við gætum á augabragði
orðið fréttaefni morgundagsins,
aldrei farið fram úr aftur og dáið
Drottni okkar á fjölförnum gatna-
mótum án þess að fá nokkuð að gert.
Það er möguleiki, möguleiki sem ég
vil ekki verða minnt á hvern einasta
morgun meðan rigningin lemur
rúðuna.
Höfundur er blaðamaður.
Klippt & skorið
E inhvern tímann átti Sirkus að vera
frábærasta fyrirbærið í fjölmiðlasögu
samtímans og gekk ekki lítið á þegar
hugmyndin fór á
legan hátt frá Sl
yfirtil365 miðla.V,
hins vegar sá að h
reyndist kannski el
bær og vænst vai
styttast í að tímaritið leggist af í núverandi
mynd, en það mun breytast í fylgirit Frétta-
blaösins í næsta mánuði og munu áherslurnar
vera þær sömu og voru í Fókus hér áður fyrr.
Breki Logason mun eíga að ritstýra þvf.
Porvaldur Gylfason, hagfræðipró-
fessor, fer mikinn á leiðarasíðu Frétta-
blaðsins í gær og bölsótast ákaflega
út í Morgunblaðið, aðallega fyrir að finna að
því í Reykjavíkurbréfi hinn 25. Júní hversu
heiftarleg opinber umræða verður á stundum.
Af skrifunum sýnist manni þó að Þorvaldur
gæti að ósekju tekið þá ádrepu til sín. Eftir
að hafa tíundað helstu smellina í fyrrnefndu
Reykjavíkurbréfi segir Þorvaldur svo að Morg-
unblaðið hafi aðeins tveimur dögum sfðar birt
forystugrein, þar sem látinn maður hafi verið
sakaður um lygar. Nú var forvitni klippara fyrst
vakin! Eftir að hafa fundið
blaðið í bunkum sínum er þó
erfitt að átta sig á því hvað
prófessorinn er að fara, því
leiðarinn er þrískiptur þann
dag og fjallar um afstöðu um-
heimsins til Bandaríkjanna, framtíðarstefnu í
vegagerð og svo var vikið að athyglisverðum
athugasemdum, sem fram komu í viðtali blaðs-
ins við Ingibjörgu Jónsdóttur á Hvolsveili
á 100 ára afmæli hennar. Hvergi er vikið að
látnum manni, hvað þá að nokkur sé vændur
um rangfærslur.
Sveinn Andri Sveinsson, hæstarétt-
arlögmaöur, liggur ekki á skoðunum
sínum frekar en fyrri daginn og í
Morgunblaðið í gær tekur hann fyrir nýlegan
frávísunarúrskurð héraðsdómarans Arngríms
fsberg á einum lið Baugsmáls-
ins. Segir hann úrskurðinn ekki
standast lögfræðilega skoðun
og lýsir nokkurri furðu á því að
dómaranum virðist ókunnugt
um að fjársvik og umboðssvik
eigi sér yfirleitt stað í viðskiptum. Vonast
Sveinn Andri til þess að úrskurðinum verði
hnekkt í Hæstarétti, enda megi ekki innleiða
réttarfar ríka mannsins hér.