blaðið - 07.07.2006, Side 19
blaðið FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2006
MENNING I T)
Landslagið og þjóðsagan
Bók sem breytti
bókmennta-
sögunni
Helgi Þorgils Friðjónsson. Fiskar sjávar, 1995.
Gyllti áttavit-
inn á íslandi?
Tökur munu brátt hefjast á kvik-
mynd sem gerð er eftir hinni vin-
sælu skáldsögu Philip Pullman,
Gyllta áttavitanum. Myndin er fram-
leidd af New Line sem einnig fram-
leiddi Hringadróttinssögu. Á vef Gu-
ardian segir að framleiðendur séu að
leita að töku-
stöðum og
hafi ísland
og Grænland
í huga, auk
Englands.
* G V U.Tl
/VTTAVmw
rwco'cvvc
Nicorette Fruitmint
Nýtt bragð
sem kemurá óvart
Nicorette nikótínlyf eru fóanleg án iyfseðils og eru notuö þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum I fylgiseóli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir þvi hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. I>ví ber aö
kynna sér upplýsingar um notkun I fylgiseðli. í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúöarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er aö lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. LeitiÖ til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaöar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema aö ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áöur en byrjað er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
Handhafi markaðsleyfis: Pfi^er ApS. Umboöá (slandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. www.nicorette.is
*Meöan birgðir endast
Laugardaginn 8. júlí kl. 11 verður
opnuð í Listasafni Islands sumar-
sýning safnsins, Landslagið og
þjóðsagan. Fjallað er um íslenska
landslagslist frá upphafi 20. aldar
og einnig eru sýnd verk sem byggja
á túlkun þjóðsagna m.a. úr Safni
Ásgríms Jónssonar. Mörg af öndveg-
isverkum íslenskrar myndlistar frá
fyrri hluta 20. aldar eru á sýning-
unni, m.a. eftir Þórarinn B. Þorláks-
son, Ásgrím Jónsson, Jón Stefáns-
son, Jóhannes Kjarval, Guðmund
Thorsteinsson, Júlíönu Sveinsdóttur,
Kristínu Jónsdóttir og Svein Þórar-
insson. Þá eru verk eftir yngri lista-
menn, sem takast á við landslagið
og þjóðsöguna eins og Sigurð Guð-
mundsson, Magnús Pálsson, Helga
Þorgils, Georg Guðna,
Hrafnkel Sigurðsson, Magnús Sig-
urðsson, Sigurð Árna, Halldór Ás-
geirsson, Ólaf Elíasson, Eggert Pét-
ursson og Ólöfu Nordal.
Alls eiga 27 listamenn 95 verk á
sýningunni.
Islenska safnadaginn 9. júlí verður
leiðsögn um sýninguna kl. 14.00.
Til að koma til móts við erlenda
ferðamenn verður boðin leiðsögn á
ensku í hádeginu alla þriðjudaga og
föstudaga í júlí. Frá og með 20. ágúst
hefst síðan fræðsludagskrá þar sem
myndlistarmenn og fræðimenn
fjalla um sýninguna út frá ólíkum
forsendum með leiðsögn á sunnu-
dögum kl. 14.00. Jafnframt verður
leiðsögn í hádeginu á þriðjudögum
og föstudögum út sýningar-
tímann.
Jón Stefánsson. Þorgeirsboli, 1929.
Hjá Máli og menningu er komin
út í kilju Nafn rósarinnar eftir Um-
berto Eco. Thor Vil-
hjálmsson þýddi.
Á köldum vetrar-
degi kemur frans-
iskanamunkurinn
Vilhjálmur frá Bask-
erville til klausturs
í hlíðum Appen-
ínafjalla í fylgd
hins unga Adsos
frá Melk. Þeir eru
í hápólitískum og viðkvæmum
erindagjörðum sem brátt virðast
harla léttvægar því hræðileg morð-
alda skekur tilveru klausturbúa. Á
daginn kemur að það var ekki að
ástæðulausu sem Vilhjálmur var
lengi í þjónustu rannsóknarréttar-
ins. Brynjaður einstakri rökvísi, frá-
bærum hæfileikum til að lesa í tákn
og draga ályktanir hefst hann handa
við að upplýsa hina dularfullu glæpi.
Smám saman verður ljóst að dauðs-
föllin standa í sambandi við bóka-
safn klaustursins, gríðarlegt völund-
arhús sem gætt er af dularfullum,
blindum bókaverði.
Ein þekktasta skáldsaga allra
tíma og margföld metsölubók um
heim allan, loksins endurútgefin í
kilju. Bók sem breytti bókmennta-
sögunni og var fyrst til að tefla
saman margslungnu innihaldi við
æsispennandi atburðarás og frá-
sagnir af dularfullum afkimum lið-
innar sögu.
Tólf ára
óþekkt bresk
skólastúlka,
Dakota Blue
Richards,
leikur hlutverk söguhetjunnar, Lyru.
Philip Pullman hefur lýst mikilli
ánægju með valið á henni og segir
hana smellpassa í hlutverkið.
Tökur á myndinni hefjast í sept-
ember og frumsýning er áætluð
haustið 2007. Leikstjóri er Chris We-
itz, leikstjóri myndarinnar About a
Boy.
Philip Pullman. Tökur hefjast brátt á
kvikmyndinni Gyllta áttavitanum eftir
samnefndri skáldsögu hans sem komið
hefur út á islensku.
50LUMAÐUR?
FINNST ÞÉR ÞÚ EIGA MEIRA SKILIÐ?
Blaðið óskar eftir duglegum, metnaðarfullum og kraftmiklum sölumönnum
til starfa sem fyrst. Við leitum að fólki með frumkvæði, ódrepandi áhuga á
sölumennsku, vilja og getu til að vinna í krefjandi og erilsömu umhverfi og
hressleikann að leiðarljósi.
GÓÐ LAUN í BOÐI FYRIR DUGLEGT FÓLK.
LAUN ÁRANGURSTENGD
UMSÓKNIR SENDIST Á ATVINNA@BLADID.NET
blaðiða