blaðið - 28.07.2006, Page 8
8IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 2006 blaAÍ6
Misheppnaður bílaþjófnaður Mað-
ur reyndi að stela bíl upp á Höfða
en ífyrradag kveikti maður í bílum á
sama svæði
Bílaþjófnaður:
Reyndi að
stela bíl
Maður um tvítugt var handtek-
inn um miðnætti i fyrrinótt grun-
aður um að hafa reynt að brjótast
inn í bíla í Höfðahverfi í Reykjavík.
Honum tókst ekki ætlunarverk sitt
og fékk að gista í fangageymslum
lögreglunnar fyrir vikið.
Pólverji fundinn Maðurinn sem lýst
var eftir fannst á hótelherbergi.
Eftirlýstur:
Fannst á
hótelherbergi
Pólverjinn sem lögreglan í Reykja-
vík lýsti eftir á miðvikudag fannst
heill á húfi á hótelherbergi í Reykja-
vík á miðvikudagskvöldi Maðurinn
var heill á húfi. Eiginkona manns-
ins hafði ekki séð hann í viku. Ekki
er vitað hvers vegna hann lét sig
hverfa.
sumarrrnnu
Hahs ftmstn
Takmarkanir á nemum þrátt fyrir skort á hjúkrunarfræðingum:
Hjúkrunarnemar eru
að sprengja háskólana
■ Fjöldatakmarkanir vegna fjárskorts ■ Þarf að fjölga hjúkrunarfræðingum
Eftir Höskuld Kára Schram
Otskrifa þarf um 150 hjúkrunarfræð-
inga árlega til þess að anna eftirspurn
heilbrigðisstofnana að mati Elsu B.
Friðfinnsdóttir,
formanns Félags
íslenskra hjúkr-
unarfræðinga.
Aðeins tæpur
helmingurþeirra
sem sækist eftir
námiíhjúkrunar-
fræði í dag kemst
að vegna fjölda-
takmarkana eftir
að undirbúnings-
námi lýkur. Elsa segir það miður að
ekki skuli vera hægt að taka fleiri
nemendur inn.
Elsa B.
Friðfinnsdóttir
Skora á stjórnvöld
Alls hafa um 230 nemendur skráð
sig til hjúkrunarfræðináms við Há-
skóla íslands og Háskólann á Akur-
eyri samkvæmt upplýsingum frá
skólunum. Vegna fjöldatakmarkana
geta þó aðeins 112 nemendur gert ráð
fyrir því að halda áfram námi eftir að
undirbúningsnámi lýkur. í Háskóla
íslands er tekið við 80 nemendum
og Háskólinn á Akureyri tekur við 32
nemendum.
t ályktun sem stjórn Landspítalans
sendi frá sér í sfðustu viku er skorað á
stjórnvöld að sjá tii þess að hjúkrunar-
fræðideildir háskólanna fái nægilegt
fjármagn til þess að aflétta fjöldatak-
mörkunum á nemendur.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður
Félags fslenskra hjúkrunarfræðinga,
tekur undir þessa ályktun og bendir
á að samkvæmt núverandi kerfi séu
háskólarnir ekki að útskrifa nógu
marga hjúkrunarfræðinga. „Það
þarf að útskrifa a.m.k. 150 hjúkrun-
arfræðinga árlega til þess að anna
eftirspurn heilbrigðistofnana. Mér
finnst miður að á sama tíma og það
er skortur á hjúkrunarfræðingum
skulum við ekki reyna efla þessar
deildir svo þær geti tekið við fleiri
nemendum."
Vantar hundrað hjúkrunarfræðinga
Samkvæmt Elsu eru nú starfandi
um 2.600 hjúkrunarfræðingar á fs-
landi en fjölga þyrfti þeim um 10%
eða 260 til þess að hægt væri að
manna allar stöður. Á Landspítal-
anum vantar í dag um eitt hundrað
hjúkrunarfræðinga en þar eru nú
starfandi 20 danskir hjúkrunarfræð-
ingar frá danskri starfsmannaleigu.
í fyrra létu 113 hjúkrunarfræðingar
af störfum hjá Landspítalanum og
þar af fóru um 20 á eftirlaun.
Elsa segir nokkuð vanta upp á að
heilbrigðisstofnanir hlúi að starfs-
fóli sínu t.d. með markvissri starfs-
mannastefnu. „Það þarf að umbuna
fólki fýrir vel unnin störf og hækka
launin. Heilbrigðisstofnanir verða að
fylgja starfsmannastefnu sem miðar
að því að halda fólki í starfi."
hoskuldur@bladid.net
Verð á þjónustu:
ísland dýrast í Evrópu
Dýrt að tala í síma Islendingar greiða mun meira fyrir fjarskiptaþjónustu en
aðrir Evrópubúar. Aðeins írarog Svisslendingar greiða meira.
íslendingar greiða að jafnaði mest
fyrir hvers konar þjónustu sam-
kvæmt könnun Eurostat, hagstofu
Evrópusambandsins. I henni kemur
fram að meðalverð á þjónustu hér
á landi er 58% hærra en í öðrum
löndum á evrópska efnhagssvæðinu.
Af þeim átta þjónustuliðum sem
könnunin náði yfir var ísland dýr-
ast í sex tilfellum.
Þannig voru hótel og veitingahús
91% yfir meðalverði, samgöngur
76% og neytendaþjónusta 58% yfir
meðaltali Evrópuríkja. Þá var fjar-
skiptaþjónusta um 15% dýrari hér á
landi miðað við meðaltal. Aðeins á
írlandi og í Sviss greiða menn meira
fyrir fjarskiptaþjónustu. Raforku-
verð hér mældist 8% yfir meðaltali
og var ísland í 8. efsta sæti hvað það
varðar.
Á eftir Islandi mældist þjónusta
dýrust í Sviss og þá í Noregi þar sem
hún var 46% yfir meðalverði. ódýr-
ust var hún í Búlgaríu.
Braust inn í bíl Raftæki heilla þjóf-
ana og þvíer ráðlagt að geyma ekki
tónhlöður og annað fþílunum.
Þjófar:
Brutustinn
í tvo bíla
Brotist var inn í tvær bifreiðar í
Reykjavík og verðmæti höfð á brott.
Samkvæmt lögreglu munu MP3-spil-
arar og álika hlutir vera hvað vin-
sælastir hjá þjófum þessa daganna.
Lögreglan hvetur fólk því til þess að
skilja ekki slík verðmæti eftir í bíl-
unum eða hylja þau.
r
Allir njóta sín 1 fallegu umnverfi
iiðicihiiijuuiiiiiiio
Ljós
Veggborðar
Veggskraut
Borð og stólar
Dótakassar
Mottur
Fossaleynir 6 - 112 Reykjavík - Sími: 586 1000 - Fax: 586 1034 | www.husgogn.is