blaðið - 28.07.2006, Page 29
Nicole Vala Cariglia og
Árni Heimir Ingólfsson
Tónverk eftir
J.S. Bach
Á sumartónleikum Listasafns
Sigurjóns næsta þriðjudags-
kvöld leika NicoleVala Cariglia
og Árrti Heimir Ingólfsson
tónverk eftir J.S. Bach á selló
og sembal.
Fluttar verða sónöturnar þrjár
sem Bach samdi fyrir gömbu
og sembal, (nr.1 í G dúr BWV
1027; nr. 2 í D dúr BWV 1028 og
nr. 3 í g moll BWV 1029). Einnig
verða leiknir sarabande kafli úr
partítu nr. 5 í G dúr fyrir sembal
og allemande úr svítu nr. 6 í D
dúr fyrir selló.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20:30
Aðgangseyrir er 1500 kr.
Fimmtíu sumur
Út er komin hjá Bókaútgáfunni
Hólum bókin Fimmtíu sumur
í Hrafnkelsdal. Bókin er gefin
út til minningar um hjónin Aðal-
■ stein Jónsson
og Ingibjörgu
Jónsdóttur en
þau bjuggu á
Vaðbrekku í
Hrafnkelsdal
frá vori 1922
til hausts
1971. í bókinni,
sem er 357
blaðsiöur að stærð, eru marg-
víslegir textar, bæði frumsamdir
og endurbirtir. Þá er rakin
búskaparsaga Aðalsteins og
Ingibjargar, sögð er skólasaga
Vaðbrekkusystkinanna sem
hófst 1940 og er ólokið og birtir
eru ýmsir textar eftir Aðalstein.
Margt fleira er í ritinu.
Metsölulistinn - erlendar bækur
^ BlucSmoke
Nora Roberts
2 Lifeguard
James Patterson & Andrew Gross
jH Nora*
"’Robcrts
3 Saving Fish From Drowning
AmyTan
EndinTears
Ruth Rendell
5 Until I FindYou
John Irving
6 FireSale
Sara Paretsky
7 Frlends, Lovers, Chocolate
Alexander McCall Smith
8 Blind Willow, SleepingWoman
Haruki Murakami
9 The Third Secret
Steve Berry
10 Superstition
Karen Robards
Listinn var gerður út frá sölu dagana 19.07.06 - 25.07.06 i
Pennanum Eymundsson og BókabúS Máls og menningar.
Á
L
andartakínu
ttmhmstn
sýxting á verkum
tlers
Samspil listar og
hugmyndafræði
rno Breker var eftir-
lætismyndhöggvari
Hitlers. Hann lést árið
1991, níræður að aldri.
É/ V .Sýning á verkum hans
er haldin í bænum Schwein í Þýska-
landi og ekki eru allir sáttir við að
verk sem bera vitni um hugmynda-
fræði nasista skuli vera á sérstakri
sýningu. Þegar heimsmeistara-
keppnin í knattspyrnu var haldin
í Berlin fyrir skömmu heyrðust
raddir segja að fjarlægja ætti tvær
styttur eftir Breker sem eru nálægt
leikvanginum eða hylja þær til
að móðga ekki þá fjölmörgu sem
legðu leið sína á völlinn. Ekki var
hlustað á þessar raddir.
Breker er talinn einn af mikil-
vægustu listamönnum 20. aldar í
Þýskalandi. Hann var sérstaklega
þekktur fyrir gríðarstórar manna-
myndir, þar sem allir vöðvar eru
ýktir og hugmyndin um aríska feg-
urð er í fyrirrúmi. Breker tókst vist
aldrei að finna Þjóðverja á lífi með
nægilega góðan líkamsvöxt sem
hann gæti haft sem fyrirmynd og
studdist því við bækur um líffæra-
fræði þegar hann vann að verkum
sínum.
Hetjulegir aríar
Á sýningunni eru um sjötíu verk,
þar á meðal risastórar höggmyndir
af arískum karlmönnum í hetjuleg-
um stellingum, mjög svipaðar þeim
myndum Brekers sem skreyttu á
sínum tíma innganginn að kansl-
arabyggingu Hitlers. Einnig eru á
Hitler og Breker fyrir framan Eiff-
elturninn.
sýningunni minni verk og brjóst-
myndir af Salvador Dali, Anwar
Sadat, Konrad Adenauer og franska
kvikmyndgerðarmanninum og rit-
höfundinum Jean Cocteau sem var
náinn vinur listamannsins. Níutíu
prósent af verkum Brekers eyði-
r að vinnu við bi
af Albert Speer
lögðust í loftárásum bandamanna
í stríðinu. Verkin á sýningunni
eru því nær eingöngu úr einkaeign
ekkju Bergers, Charlotte. Á sýning-
unni er fjallað um tengsl Brekers
við Albert Speer, arkitekt Hitlers,
sem hann gerði brjóstmynd af.
Einnig er fjallað um samband hans
við Hitler sem fór með hinn unga
myndhöggvara í sérstaka ferð til
Parísar árið 1940 til að sýna hon-
um borgina. I sýningarskrá er sér-
stakur kafli helgaður aðstoð Berg-
ers við menn sem nasistar höfðu á
óvinalista sínum, eins og franska
leikarann Jean Marais.
Deilt um sýninguna
Menn eru ekki á eitt sáttir um
réttmæti sýningarinnar. „Það er
rangt að viðurkenna listamann
sem skapaði verk samkvæmt
hugmyndafræði nasista," segir
forseti Listaakademíunnar í Berl-
ín. „Breker starfaði ekki einungis
undir verndarvæng Hitlers heldur
hagnaðist á samskiptunum". Nób-
elsverðlaunahafinn Gunter Grass
er hins vegar fylgjandi sýningunni
og segir að hún gæti veitt svör við
spurningunni af hverju svo margir
snerust til fylgis við nasisma. Bæj-
arstjórinn í bænum Schwerin sem
átti frumkvæði að sýningunni
segir: „Deilan um það hvort Brek-
er var mikill listamaður eða arfa-
vondur listamaður skiptir ekki svo
miklu máli núna. Það sem skiptir
máli er að sýna samspil listar og
hugmyndafræði."
menningarmolinn
Shelley og Mary
strjúka til Frakklands
Á þessum degi árið 1814
struku skáldið Percy Byss-
he Shelley og hin sautján
ára gamla Mary Wollstonec-
raft Godwin til Frakklands.
Shelley var í hjónabandi þeg-
ar hann kynntist Mary og
með þeim tókust miklar ást-
ir. Þau fóru saman til Frakk-
lands og gengu í hjónaband
árið 1816 eftir að eiginkona
Percy B. Shelley
Shelleys fyrirfór sér. Shelley
og Mary eignuðust fimm
börn en einungis eitt þeirra
komst til manns. Shelley
drukknaði þegar Mary var
24 ára gömul. Hún lést 53 ára
gömul. Shelley er eitt ástsæl-
asta skáld Englendinga fyrr
og síðar og Mary er höfund-
ur hinnar frægu sögu um
Frankenstein.