blaðið - 10.08.2006, Side 14

blaðið - 10.08.2006, Side 14
 Öldungadeildarþingmaðurinn Joe Lieberman laut á þriðjudag i lægra haldi fyrir Ned Lamont í próf- kjöri demókrata í Connecticut fyrir þingkosningarnar í nóvember. Fá- heyrt er að sitjandi þingmenn tapi í prófkjörum í Bandaríkjunum en þrátt fyrir það misstu tveir þing- menn repúblikana sæti sín á sama tíma og Lieberman. Stjórnmálaskýrendur fylgdust náið með prófkjörinu enda eru úr- slitin talin geta haft mikil áhrif á gang mála fyrir þingkosningarnar í haust og mögulega getu demó- krata til þess að sigra í næstu for- setakosningum. Naumur sigur Lamont er talinn benda til þess að demókratar muni halla sig enn frekar til vinstri í stjórnmálabarátt- unni og herja fyrst og fremst á óvin- sældir Íraksstríðsins og George Bush, forseta. Þessi áhersla kanna að setja þá leiðtoga flokksins sem eru á miðjunni og hyggja á forseta- framboð í töluverðan vanda. Joe Lieberman hefur verið einn helsti áhrifamaður demókrata í öldungadeildinni. Hann var vara- forsetaefni A1 Gore í forsetakosn- ingunum árið 2000 og sóttist eftir tilnefningu flokksins fyrir for- setakosningarnar 2004. Hann er staddur á miðju stjórnmálanna en þrátt fyrir stuðning hans við inn- rásina í írak hefur hann yfirleitt stutt baráttumál demókrata á þingi eins og bandaríska dagblaðið New York Times sýndi fram á dögunum, þvert á það sem andstæðingar hans hafa haldið fram. Athafna- maðurinn Ned Lamont er hins vegar nýgræðingur í stjórnmálum en með því að leggja ofuráherslu á gagnrýni á stuðning öldungadeild- arþingsmannsins við stefnu Bush í hryðjuverkastríðinu fékk hann öfl- ugan stuðning frá ýmsum grasrót- Örn Arnarson skrifarum aódraganda þingkosninga i Bandarikjunum Fréttaskýring orn@bladid.net FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 blaðiö arsamtökum á vinstri-vængnum sem skilaði honum naumum sigri á Lieberman. Lamont málaði þá mynd af andstæðingi sínum að hann væri taglhnýtingur George Bush og uppskar ríkulega. Kjósendur á miðju fældir frá? Vegna þess hve George Bush er umdeildur og hve klofin þjóðin er í afstöðunni til þeirrar utan- ríkisstefnu sem hann hefur rekið í forsetatíð sinni hafa einstaka stjórnmálamenn freistað að virkja grasrót Demókrataflokksins ásamt herdeild áhrifamikilla bloggara á vinstri væng stjórnmálanna með fiví að höfða til andstöðunnar við raksstríðið. Gengi Lamont í próf- kjörinu ásamt árangri Howard Dean í forvali demó- krata fyrir forsetakosningarnar árið 2004 sýnir að þessi áhersla getur skilað góðum árangri og traustum stuðningi. Hins vegar er forval ekki það sama og kosningar og óttast margir flokksmenn að hún komi til með að einangra kjós- endur á miðjunni og fæla frá hóf- sama repúblikana sem gætu ann- ars hugsað sér að kjósa demókrata vegna óánægju með núverandi vaídhafa. í þessu felst vandi demó- krata fyrir þingkosningarnar. Þeir vita að þeir eiga góða möguleika að ná meirihluta af repúblikönum í bæði öldunga- og fulltrúardeild- inni vegna óvinsælda forsetans en hins vegar gera margir þeirra sér grein fyrir að slíkur árangur næst ekki án samstöðu um stefnu og sókn inn á miðju stjórnmálanna. Sigur Lamont gefur til kynna að flokkurinn stefni í aðra átt. Breska ríkisútvarpið hefur eftir Tom Matzzie, einum aðstandanda grasrótarsamtakanna MoveOn.org sem studdi dyggilega við bakið á Lamont i prófkjörinu, að samtökin myndu berjast gegn hverjum þeim þingmanni demókrata sem þykir of nálægt stefnu núverandi ríkis- stjórnar Bandaríkjanna. Þrátt fyrir að enginn þingmaður flokksins hafi stutt jafndyggilega við utan- ríkisstefnu Hvíta hússins og Lie- berman er ljóst að flestir hófsamir frambjóðendur flokksins þurfa ísrael og Líbanon: 200 hermenn gætu látist ísraelsk stjórnvöld veittu í gær hernum heimild til þess að grípa til víðtækra hernaðaraðgerða á landi gegn skæruliðum Hizballah í suður- hluta Líbanon. Að sögn ráðamanna mun aðgerðin taka um þrjátíu daga og hafa hermenn fengið grænt ljós frá stjórnvöldum til þess að fara allt að þrjátíu kílómetra inn fyrir landa- mæri Líbanon, eða að bökkum Litani árinnar, til þess að uppræta skæru- liða Hizballah. Að sögn sérfræðinga hersins má búast við að allt að tvö hundruð ísraelskir hermenn gætu látist í aðgerðinni. Ehud Olmert, for- sætisráðherra, og Amir Peretz, varn- armálaráðherra, hafa vald til þess að fyrirskipa aðgerðirnar verði af þeim. ísraelsmenn hafa nú þegar tíu þús- und hermenn í suðurhluta Libanon en ekki er víst hversu mörgum yrði bætt við ef ráðamenn gripu til víð- tækari hernaðaraðgerða. Talsmaður Olmerts lýsti því þó yfir í gær að fljótlega yrðu veittar frekari upplýs- ingar um aðgerðina. Ljóst er að sát- Bandaríkjamenn og Frakkar standa að en Líbanar og fulltrúar þriggja Arabaríki eru henni mótfallin. Þeir vilja meðal annars gera breytingar sem kveða á um að Israelar dragi her- lið sitt umsvifalaust frá Líbanon og að líbanskar hersveitir með aðstoð frá fjölþjóðaherliði gæti suðurhluta landsins. Óljóst er hvort að samstaða náist um málið á næstu dögum. ísraelskir hermenn héldu að- gerðum sínum áfram i gær og sam- kvæmtlíbönskumyfirvöldummættu þeir harðri andstöðu frá skæruliðum Hizballah. Arabíska sjónvarpstöðin Al-Jazeera sagði að ellefu hermenn hafi fallið í bardögum við Hizballah við landamærin en talsmaður ísra- elska hersins staðfesti ekki þá tölu. Hizballah gerði fjölda eldflaugaárása á norðurhluta Israels en ekki var vitað um mannfall í gær. Yfir þúsund manns hafa fallið í Líb- anon frá því að átökin hófust í síðasta mánuði og rúmlega hundrað ísraelar hafa látið lífið. Sigurreifur Ned Lamont ávarpar stuönings- menn eftir að sigur hans lá fyrir. Á myndinni má sjá nokkra þekkta demókrata af vinstri vængnum Psvö> : ysSsíF 1 að taka tillit til grasrótarinnar í málflutningi sínum. Borið hefur á ýmsum merkjum um að það sé ein- mitt að gerast. Á dögunum krafðist Hillary Clinton, öldungadeildar- þingmaður og væntanlegur forseta- frambjóðandi, að Donald Rums- feld, varnarmálaráðherra, segði af sér, vegna framkvæmdar inn- rásarinnar í Irak og hernámsins í kjölfarið. Clinton studdi innrásina en hefur að undanförnu verið að fjarlæga sig frá þeirri skoðun, eins og fleiri demókratar á miðjunni, og beint gagnrýni sinni þess í stað að framkvæmd hernámsins. Hvort að það sé nægilega mikil andstaða við stefnu forsetans í augum grasrótar- Joe Lieberman: Óháður frambjóðandi Þrátt fyrir aö hafa tapað í prófkjörinu á þriðudag og mikinn þrýsting frá þunga- viktarmönnum Demókrataflokksins um að draga sig í hlé hyggst Joe Lieberman bjóða sig fram í þingkosningunum í nóv- ember sem óháður frambjóðandi. Stjórn- málaskýrendur telja góðar líkur á því að Lieberman haldi öldungadeildarsæti í rík- inu bjóði hann sig frá á eigin vegum. Talið er að Lamont hafi ekki víða skírskotun út fyrir raðir demókrata og þar af leiðandi myndi slagurinn um öldungadeildar- sætið standa á millí Lieberman og Alan Schlesinger, frambjóðanda Repúblikana. Lieberman mun reyna að herja á vaxandi óánægju meðal bandarískra kjósenda um of mikla flokkadrætti í stjórnmálum landsins. Ferill Joe Lieberman: 1942: Fæddist í Stamford, Connecticut. 1967: Útskrifaðist með gráðu í lögfræði frá Yale-háskóla 1970: Kosinn til setu á ríkisþinginu í Connecticut 1983: Varð dómsmálaráðherra Connecticut 1989: Kosinn til setu í öldungadeild Bandaríkjanna 2000: Valinn varaforsetaefni Al Gore í forsetakosningunni. 2004: Býður sig fram í forvali demó- krata fyrir forsetakosningarnar 2004. Mótmælt við jarðarför Líbanar mótmæia ísraeium og Bandaríkjamönnum við jarðar- för í Beirút taumleitanir á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna færu í uppnám gripu ísraelsmenn til enn harðari aðgerða í Líbanon. Hins vegar hafa ísraelsk stjórnvöld lýst því yfir að þau muni ekki gripa til aðgerðanna náist samstaða um ályktun í örygg- isráðinu á næstu dögum. Ekki hefur verið enn kosið um ályktunina sem Bjóðum þessar heimsþekktu þýsku kamínur í mörgum stærðum og gerðum á hreint frábæru i/erði\ ORMSSON SIÐUMULA 9 ■ Sími 530 2800 I SMARALIND • Sími 530 2900 AKUREYRI • Simi 461 5000 I Sjá nánar: www.ormsson.is Aðdragandi þingkosninga í Bandarikjunum: Vinstriöflin sækja á Joe Lieberman tapaði í prófkjöri demókrata á þriðjudag Til marks um vaxandi áhrif grasrótarinnar innan flokksins blaðið FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 FRÉTTIR I 15 Skortur á samstöðu Flestar kannanir benda til þess að demókratar eigi ágætis möguleika á að vinna meiri- hluta í báðum deildum Banda- ríkjaþings í kosningunum. Óvinsældir forsetans, ástandið í Irak og hneykslismál í röðum repúblikana hefur skapað sókn- arfæri fyrir flokkinn. Hins vegar hefur ósamstaða meðal demókrata á Bandaríkjaþingi gert þeim erfitt fyrir. Á dög- unum gátu þingmenn flokks- ins ekki komið sér saman um eina tillögu á þingi um brott- kvaðningu hernámsliðsins frá Irak og settu þar af leiðandi fram tvær. Klofningur í jafn- mikilvægu máli dregur úr trú- verðugleika flokksins. Enda hefur gagnsókn repúblikana í kosningabaráttunni meðal annars falist í því að hamra á að demókrötum sé ekki treyst- andi fyrir að fara með utanrík- isstefnu og þjóðaröryggismál Bandaríkjanna. Ljóst er að demókratar munu reyna að gera Íraksstríðið eitt af helstu kosningamálunum í nóvember. Grasrót. flokksins talaði á þriðjudag í Connecticut og refsaði sitjandi þingmanni. Hins vegar er ljóst að eigi hern- aðarlist demókrata í kosning- unum að takast þurfa þeir að tala einu máli í kosningabar- áttunni. Úrslit prófkjörsins í Conncecticut bendir ekki til að sú verði raunin. Verkfærum stolið Óprúttinn þjófur stal verkfærakassa úr vinnuskúr í austurborginni Þjófnaður: Verkfærum stolið Verkfærakassa var stolið úr vinnu- skúr í austurborg Reykjavíkur í gærmorgun. Þjófnaðurinn var tilkynntur um hálfníu um morguninn en þá kom iðnaðarmaður að tómum kofanum. Ekki er ljóst hversu verðmæt verk- færin eru en ljóst er að um allnokkra upphæð er að ræða. Ekki er vitað hver var að verki en málið er í rannsókn hjá lögreglunni. Umferöaróhapp í Texas: Þrjár mörgæsir í valnum, kolkrabbi slapp Óvenjulegt umferðarslys átti sér stað í Texas í Bandaríkjunum á þriðjudag. Vöruflutningabíll, sem var að flytja dýr úr dýragarði í Indi- ana til annars skemmtigarðs í Gal- veston, valt á þjóðvegi með þeim af- leiðingum að dýrin sluppu út. 1 bílnum voru tuttugu og fjórar mörgæsir, slatti af sjaldgæfum fiskum og einn kolkrabbi. Örlög fisk- anna voru ráðin þegar þeir sluppu úr tanknum í bílnum þegar hann valt en tvísýnt var um hvernig mör- gæsunum og kolkrabbanum myndi reiða af á hraðbrautum Texas-ríkis. Tuttugu og ein mörgæs náðu að koma sér af veginum og hjú- fruðu sig saman í skurði rétt við slysstaðinn en keyrt var yfir þrjár þeirra. Kolkrabbinn slapp lifandi úr hildarleiknum. Verið var að færa dýrin til vegna breytinga sem er verið að gera á dýragarðinum sem þau halda alla jafna til í. Richard Buchanan, umferðar- lögga í Texas, var einn þeirra sem var kallaður á vettvang. Hann sagði við fjölmiðla að þetta væri án efa undar- legasta umferðaróhapp sem hann hefur orðið vitni að. Hann sagði að ekki væri óalgengt að umferðaró- höpp sem tengdust kúm, hestum og svínum ættu sér stað í ríkinu en að fáheyrt væri að mörgæsir lentu í um- ferðarslysum í ríkinu. Buchanan sagði þó að verra hefði getað farið þar sem að annar vörubíll sem var að flytja hættulega snáka og krókódíla fór um veginn sama dag. Starf lögreglunar hefði orðið mun erfiðara hefði sá bíll oltið. Mörgæsir á batavegi UJ'mörgœsa er fullt afhættum. Þessar mörgœsir hlutu aðhlynningu i Brasiliu á dögunum eftir að þeim skolaði að strönd landsins í kjölfar þess að isjaki sem þœr voru á bráðnaði. . liJll Hús og híbýli - Nýjasta nýtt I nýjasta hefti Húsa og híbýla er kíkt (heimsókn til arkitektanna Erlu og Tryggva, hönnuðarins Katrlnar Pétursdóttur ogtjöldin á Þjóðhátið í Vestmannaeyjum eru skoðuð í þaula. Einnig kíkjum við í heimsókn til Danmerkur og fáum að auki frábær ráð varðandi gólfefni og litaval. Við ræðum við fólk sem stækkaði eldhúsið, sýnum myndir af moldar- flagi sem var breytt í grillparadís og svo má ekki gleyma lesendatilboðunum. Hvaða blað ert þú að lesa? Kynntu þér frábær áskriftarkjör (s(ma 515 5555 eða sendu okkur póst á askrift@frodi.is HÚS OG HÍBÝLI KEMUR ÚT í DAG! Erla ogTryggvi hönnuðu eigið draumahús Hjónin Tryggvi Þorsteinsson arkitekt og Erla Dögg Ingjaldsdóttir innanhússarkitekt eru einir heitustu arkitektar Islands. Þau hönnuðu og byggðu draumahúsið sitt. Hús og híbýli kíktu í heimsókn. Sjón er sögu ríkari. Ift /1 íIHI I Dýrast að búa í Garðabæ I nýjasta hefti Húsa og híbýla er ítarleg úttekt á fasteigna- markaðinum. Hvað kostar að koma sér upp húsnæði á íslandi? Er mikill munur á hverfum innan höfuðborgarsvæðisins og kannski enn meiri munur á milli landshluta? Innllt hjá Katrínu Péturssdóttur Katrín Pétursdóttir hefur skapað sér nafn sem listamaður og hönnuður og hefur unnið fyrir mörg stærstu fyrirtæki heims. Hún býr og starfar í Hong Kong ásamt eignmanni stnum, Michaet Young, og börnum en þau eiga einnig heimili í Reykjavík. Hús og híbýli kíktu í heimsókn til Katrínar. FRÓÐI TÍMARITAÚTGÁFA

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.