blaðið - 10.08.2006, Side 30
38
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 blaðið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Hvernig ætlarðu að halda upp á daginn?
Dagnrinn verður tvískiptur. Égætla að vintta aðþeint máltim semhelst
á manni brenna og svo ætla ég að njóta dagsins með fjölskyldunni.
Siv Friðleifsdóttir, ráðherra.
Siv Friðleifsdóttir á afmæli í dag.
Smáborgarinn
STÓRKOSTLEGIR
EYJAMEWM
Smáborgarinn skellti sér á þjóð-
hátíð í Eyjum um helgina. Hann
hafði ákveðið að taka því rólega
heima í ár en á laugardagskvöld
fékk hann boð um frítt flug og
aðgöngumiða á svæðið og ákvað
hann að þiggja það með þökkum.
Fyrirhugað var að fljúga aftur
heim seinna um nóttina.
Skemmst er frá því að segja
að sökum mikils galsa og gleði
missti Smáborgarinn af flugvél-
inni um nóttina, enda löngum
verið þekktur fyrir að vera mikið
skemmtanaljón sem kveður
ekki gott partí svo auðveldlega.
Smáborgarinn hugsaði lítið út í
afleiðingarnar og kom á daginn
að þess þurfti ekki. Góðhjörtuð
Eyjahjón víluðu ekki fyrir sér að
bjóða Smáborgaranum gistingu
og bjuggu um hann eins og best
var á kosið.
Gestrisni heimamanna
var með eindæmum
Þegar Smáborgarinn vaknaði
var honum tekið af miklum fögn-
uði og honum boðinn matur og
veigar eins og hann gat í sig látið.
Borgarbarnið vissi ekki hvaðan
á sig stóð veðrið. Móttökurnar
sæmdu þjóðhöfðingja. Smáborg-
arinn fékk svo að fara í sturtu og
var boðinn velkominn aftur um
kvöldið.
Sunnudagskvöldið var stór-
skemmtilegt, eins og við var að
búast, en óþarfi er að fara náið út
í fylleríssögur í virðulegu dagblaði.
Víkur því sögunni til mánudags-
morgunsins. Á dansgólfinu hafði
Smáborgarinn hitt mann sem
hann vissi að gæti komið sér heim
til Reykjavíkur flugleiðis.
Þegar kom að því að fara út
á flugvöll reyndust góð ráð dýr.
Hvergi virtist mögulegt að fá bíl til
að flytja Smáborgarann þangað.
Þegar tíu mínútur voru til brott-
farar sá Smáborgarinn ekki annan
kost mögulegan en að stöðva
lögreglubíl úti á götu og biðja
hann um far. Laganna verðir voru
svo almennilegir að verða við bón
Smáborgarans og komu honum
út á flugvöll, hvar hann náði flugi
heim.
Gestrisni heimamanna þessa
helgi var með eindæmum og
eiga þeir mikinn heiður skilinn
fyrir vikið. Þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum er sannarlega stórmerkileg
hátíð, sem ekki væri unnt að
halda nema með svona frábærum
mannskap.
Ástríðufull þingkona Kolbrún Halldórs
dóttur þingkona hefur gjarnan tekið sér
fri frá þingstörfum til að sinna öðrum
ástriðum ílífi sínu eins og til dæmis
leiklistinni.
Mikilvægt að sinna
mörgum ástríðum
Allir eiga sér einhverja ástríðu
í lífinu sem þeir verja gjarnan
ómældum tíma og orku í að sinna.
Ástríðurnar eru vitaskuld jafnfjöl-
breyttar og fólkið sjálft en oftar
en ekki tengjast þær starfi þess
eða áhugamálum. Sumir hafa
ástríðu fyrir ferðalögum, aðrir
fyrir tónlist og enn aðrir fyrir
teiknimyndasögum. Kolbrún Hall-
dórsdóttir, þingkona og leikstjóri,
á sér ekki eina ástríðu í lífinu held-
ur nokkrar og segir hún nauðsyn-
legt að geta sinnt þeim öllum sem
skyldi.
Stjórnmálin, leikhúsið
og fjölskyldan
„Astríðan mín er eiginlega bara
það sem ég er að fást við í hvert
og eitt skipti. Stundum er það pól-
itíkin og þá náttúrlega helst um-
hverfismálin. Þegar ég er að vinna
í leikhúsinu er það listin og það
verk sem ég er að setja upp í það
og það skiptið. Stundum er ástríð-
an fjölskyldan mín og börnin. Ég
held að ég reyni að sinna því sem
ég tek að mér af ástríðu og hef gert
það frá því ég man eftir mér,“ segir
Kolbrún.
Þegar Kolbrún er spurð hvort
ekki sé hætt við því að ein ástríða
verði útundan vegna anna á öðrum
sviðum segist hún reyna að koma í
veg fyrir að svo fari. „Ef ég gleymi
mér of lengi í pólitíkinni þá reyni
ég að taka upp þráðinn við hinar
ástríðurnar þegar færi gefst og legg
þá pólitíkina til hliðar. Eg hef gjarn-
an tekið mér frí frá þingstörfum í
ákveðinn tíma og sett upp eins
og eitt leikrit og þá hefur minn
góði varamaður tekið sæti mitt á
Alþingi. Það er líka mikilvægt að
sinna fleiri ástríðum en einni.
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
9 6 4 2 7 8 1 3 5
8 1 2 9 3 5 7 6 4
3 5 7 4 6 1 9 8 2
5 7 6 3 8 2 4 9 1
1 2 9 5 4 6 8 7 3
4 8 3 7 1 9 2 5 6
6 9 1 8 2 3 5 4 7
7 3 5 1 9 4 6 2 8
2 4 8 6 5 7 3 1 9
-
Gáta dagsins:
1 7 9 5 6
9 1
6 4 7 8 1
8 2 7
7 6 9 4 5
8 1 4 9
4 2 9 8
5 2
3
by Jim Unger
Ég verð að þjóta 'sgan.
Það er maður hjá mér.
10-13
© Jim Unger/dist. by United Media, 2001
HEYRST HEFUR...
Vikið var að framboðsmál-
um Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi á þessum
stað í síðustu viku og greint frá
orðrómi þess efnis að Einar
K. Guðfinnsson,
sjávarútvegsráð-
herra, væri í ein-
hvers konar próf-
kjörsbandalagi
með þeim Birnu
Lárusdóttur og Borgari Þór
Einarssyni. Umsjónarmaður
dálksins átti orðastað við ráð-
herrann skömmu siðar og tók
Einar Kristinn því fjarri hann
væri að efna til samblásturs
gegn félögum sínum og vinum,
þeim Sturlu Böðvarssyni og
Einari Oddi Kristjánssyni.
Sjálfur myndi hann ekki hafa
afskipti af því með hvaða hætti
valið yrði á framboðslista
flokksins í kjördæminu...
Samfylkingarmenn í Norð-
vesturkjördæmi eru einnig
að velta fyrir sér hvernig skipa
skuli lista sinn. Þar á flokkur-
inn nú tvöþingsæti sem þau
Jóhann Ársælsson og Anna
Kristín Gunnarsdóttir skipa.
Eins og áðjir hefur komið fram
hefur Árni Páll Árnason, lög-
maður, fullan hug á því að gefa
kost á sér en eins tala menn
um að Sigurður Pétursson,
oddviti I-listans á ísafirði, eigi
að reyna fyrir sér
í landsmálunum.
Þá skyldu menn
ekki vanmeta
hugsanlegt fram-
boð Guðbjarts
Hannessonar, skólastjóra á
Akranesi, langfjölmennasta
byggðarlagi kjördæmisins...
Að undanförnu hafa sumir
rætt þann kost, að Árni M.
Mathiesen, fjármálaráðherra,
leiði lista sjálfstæðismanna í
Suðurkjördæmi
fyrir kosning-
arnar að ári.
Segja sumir að
tímabært kunni
að vera að skipta
öllum þingmönnum þess út, en
fyrst og fremst vakir þó fyrir
mönnum að gæta jafnvægis
milli byggðarlaga þessa víð-
feðmasta kjördæmis landsins.
Eftir að Árni Ragnar Árnason
féll frá eiga Suðurnesjamenn
þannig engan þingmann, en
flestir líta svo á að fyrsti þing-
maður kjördæmisins eigi að
koma þaðan, sá næsti af Suður-
landi og sá þriðji úr Eyjum...
Athygli vakti því í fyrrakvöld
þegar Viktor B. Kjart-
ansson, fyrrverandi varaþing-
maður sjálfstæðismanna á
Suðurnesjum,
sagði í tíufrétt-
um enga þörf
á því að sækja
frambjóðendur i
önnur kjördæmi
og bætti svo um betur og taldi
rétt að betur snjóaði yfir mál
Árna Johnsen áður en hann
gæfi sig að trúnaðarstörfum
fyrir almenning. Viktor er
áhrifamaður í flokksstarfi
sjálfstæðismanna í Reykjanes-
bæ og hyggst bjóða sig fram
í komandi prófkjöri, sem að
líkindum verður haldið i vor...
andres.magnusson@bladid.net