blaðið


blaðið - 10.08.2006, Qupperneq 18

blaðið - 10.08.2006, Qupperneq 18
26 i GOÐSÖGN FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 blaöiö Einn af vinsælli ferðastöð- um í Bandaríkjunum er kastali blaðakóngs- ins Williams Randolph Hearst sem stendur á glæsilegu landssvæði mitt á milli San Francisco og Los Angeles. f kastalanum hélt blaða- kóngurinn rómaðar veislur og ríka og fræga fólkið kepptist um að kom- ast á boðslista. Háðfuglinn George Bernhard Shaw var þar eitt sinn meðal gesta og sagði eftir heimsókn- ina: „Þetta er staður sem Guð hefði byggt hefði Guð átt peninga." Draumakastalinn Eigandi kastalans William Rand- olph Hearst var á sínum tíma í hópi auðugustumannaBandaríkjannaog einn sá umdeildasti. Ástkona hans í áratugi, allt þar til hann lést, var ein af þekktari leikkonu Bandaríkjanna, Marion Davies, og saman gerðu þau kastalann að vinsælum samkomu- stað fræga fólksins. Hearst hafði ungur að árum ferðast um Evrópu með móður sinni og heimsótt kast- ala. Með byggingu síns eigin kastala ætlaði hann að byggja stað sem tæki flestum öðrum fram. Hann vann í 28 ár að því að fullkomna kastalann en lauk verkinu aldrei fullkomlega. Umhverfis kastalann voru sér- stakar byggingar ætlaðar gestum og sundlaugar voru einnig á sínum stað. Þarna var dýragarður með yfir þrjú hundruð dýrum, þar á meðal se- brahestum, ljónum, kengúrum, dá- dýrum, giröffum og öpum. Hearst sankaði að sér dýrmætum listmun- um og fyllti hús sitt af þeim. Þar á meðal voru grískir vasar frá 800 f. Kr, austurlensk teppi, antíkmunir og forn málverk. Um hverja helgi var nokkrum tug útvalinna boðið í kastalann. Hearst borgaði starfs- mönnum sínum mjög vel og var vin- sæll meðal íbúa á svæðinu. Hearst og Kane Kastalinn, Hearst sjálfur og Mari- on Davies leika hlutverk í bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Höll minn- inganna. Hearst var fyrirmynd að persónu í skáldsögu Áldous Huxl- ey, After Many a Summer Dies the Swan sem fjallar um sérvitran auð- mann sem býr í kastala ásamt ást- konu sinni. Hearst kippti sér ekki upp við þá bók en tók afar illa kvik- Marion og Hearst. Ástarsamband þeirra stóð írúm þrjátíu ár. mynd Orson Welles, Citizen Kane. Aðalpersónan Kane, er maður sem svifst einskis í viðskiptum við aðra og stefnir hátt í pólitík en mistekst, rétt eins og henti Hearst. Myndin sem dregin var upp í kvikmyndinni var ekki beint falleg og skaðaði He- arst. Kvikmyndin reyndist þó enn skaðlegri ástkonu hans, Marion Davies, sem var þar fyrirmynd að hinni hæfileikalausu og drykkfelldu söngkonu Susan Alexander. Ósjálfr- átt settu kvikmyndahúsgestir sama- semmerki milli Susan Alexander og Marion Davies. Niðurstaða þeirra varð að Davies væri hæfileikalaus og drykkfelld leikkona. Þessi ímynd hefur loðað við leikkonuna allt fram á þennan dag. Marion Davies átti vissulega við áfengisvandamál að etja en hún var langt frá því að vera hæfileikalaus. Hún var skínandi gamanleikkona og kvikmyndasérfræðingar hafa margir tekið upp hanskann fyrir hana á seinni árum og borið lof á hana. Orson Welles sagði reyndar að það eina sem hann sæi eftir í sam- bandi við Citisen Kane væri skaðinn sem myndin hefði valdið Marion Davies. Veikur fyrir dansmeyjum Hearst ólst upp með silfurskeið í munninum en faðir hans var á sín- um tíma fimmtándi ríkasti maður Bandaríkjanna. Hearst lærði í Har- vard og gerðist síðan blaðaútgefandi og um þriðja átatuginn átti hann tæplega þrjátíu dagblöð víðs veg- ar um Bandaríkin. Hearst bjó yfir miklum pólitiskum metnaði. Hann var demókrati en skipti síðan um pólitíska skoðun og gerðist harður Marion Davies átti vissulega við áfeng- isvandamál að etja en hún var langt frá því að vera hæfi- leikalaus. repúblíkani. Hann sat um tíma á þingi, bauð sig fram til borgarstjóra í New York og stefndi á Hvíta húsið með engum árangri. Hann var hálffertugur þegar hann kynntist sextán ára gamalli, gullfal- legri dansmey, Millicent. Þau gengu í hjónaband fimm árum seinna, þrátt fyrir andstöðu fjölskyldu He- arst og eignuðust fimm syni. Þeg- ar Hearst var rúmlega fimmtugur kynntist hann annarri dansmey, sem var ekki síður falleg en eigin- konan, hinni sextán ára gömlu Mari- on. Hann skildi ekki við eiginkonu sína en bjó meira og minna með Marion þar til hann lést. Stjarna í þöglu myndunum Marion var falleg, tilgerðarlaus og hafði sérlega góða kímnigáfu. Hún var annáluð fyrir gjafmildi. Hún kom fyrst fram í kvikmynd árið 1917 í þöglu myndunum og þótti einkar hæfileikarík gaman- leikkona. Hearst hafði hins vegar þann metnað að gera hana að bestu dramatísku leikkonu í Hollywood. Hann fjármagnaði myndir hennar en seinna komst hún á samning hjá kvikmyndaverum. Afskiptasemi Hearst af ferli hennar lauk ekki þar með. Marion sagði seinna að ákafi He- arst við að koma henni á framfæri 50% 50% Allar sumarvörur með helmings-afslætti —vErhlistinn. við Laugalæk • sími 553 3755 50%

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.