blaðið


blaðið - 10.08.2006, Qupperneq 19

blaðið - 10.08.2006, Qupperneq 19
blaðið FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2006 GOÐSÖGN 27 hefði haft neikvæð áhrif á feril sinn. Um miðjan þriðja áratuginn féll kvikmyndaferillinn í skuggann af sambandi hennar við Hearst sem stóð í áratugi. Hearst var ákaflega af- brýðisamur og hafði strangt eftirlit með Marion. Hún átti í stuttu ástar- sambandi við Charlie Chaplin. Árið 1924 voru Hearst, Marion og Chapl- in ásamt fleirum í skemmtiferð á skútu Hearst þegar framleiðandinn Thomas Ince varð fyrir byssuskoti og lést. Aldrei hefur sannast hvað raunverulega gerðist en opinbera skýringin var sú að Ince hefði orðið fyrir slysaskoti. Þrálátar sögusagnir voru í gangi um að Hearst hefði í af- brýðiskasti skotið Ince í misgripum fyrir Chaplin. Marion lék í síðustu mynd sinni árið 1937, sama ár og Hearst lenti í gríðarlegum fjárkröggum. Hann neyddist til að setja dýrmæta muni á uppboð, seldi dýragarðinn og sagði upp starfsfólki. Hann dró einnig mjög úr umsvifum á blaðamarkaði. Marion veitti honum mikla fjárhags- lega aðstoð en hún var ein auðugasta konan í Hollywood. Snemma fóru á kreik sögur um að Marion hefði fætt barn þeirra He- arst. Sagt er að systir Marion hafi tekið að sér barnið, Patricu, og alið upp sem sína eigin dóttur. Patricia eyddi miklum tíma með Marion og var alla tíð nánari henni en sinni eig- in móður. Patricia sagði skömmu fyrir andlát sitt að Marion hefði sagt henni þegar hún var ellefu ára gömul að hún væri dóttir þeirra He- arst. Marion Davies Hún þótti hæfi- leikarík gamanleikkona en leikferill hennar féll snemma í skuggann af sambandi hennar viö blaöakónginn William Hearst Orson Welles í hlutverki sínu í Citizen Kane. Myndin skaöaði Willi- am Hearst en sérstaklega Marion Davies. Fékk ekki að kveðja Árið 1946 hrakaði heilsu Hearst mjög og hann eyddi síðustu árunum í hjólastól. Hearst lést árið 1951. Syn- ir hans höfðu verið í heimsókn hjá honum og Hearst lést þegar Marion var sofandi. Synir hans höfðu ekki fyrir þvi að vekja Marion og fluttu lík hans brott. Marion hélt því fram að þeir hefðu byrlað sér svefnlyf. „Þeir stálu eign minni. Hann tilheyrði mér. Ég elskaði hann i þrjátiu og tvö ár og nú var hann farinn. Ég fékk ekki einu sinni að kveðja," sagði hún. Ellefu vikum eftir dauða Hearst giftist Marion í fyrsta sinn, fimm- tíu og fjögurra ára gömul. Hún var dauðadrukkin við athöfnina. Eigin- maður hennar var fjörutíu og sex ára foringi í sjóhernum. Hann þótti minna ákaflega mikið á Hearst í út- liti. Hjónabandið var ekki farsælt. Marion lést árið 1961 af völdum krabbameins. 10. ágúst - 14. ágúst UR KJOTBORÐI cLambaframpartssneiðar þurrkryddaðar Frá fimmtudegi til sunnudags: Grillaður kjúklingur, franskar kartöflur og 2ja lítra ~ 25% affldttur kr. 1.998 - kr. 1.498 Lambagrillkótilettur þurrkryddaðar 25% affldttur kr. 2.173 - kr. 1.629 Grísakótillettur djúpkryddaðar 25% affláttyp - kr. ,1.: ylsur | dyHattítP, - kr. 799

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.