blaðið - 15.08.2006, Síða 4

blaðið - 15.08.2006, Síða 4
20 I FJÁRMÁL ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2006 blaöiö Að sógn Astu S. Helga- gójáir, forstöðumanns haðgjafarstofu um fjár- 'mál heimilanna fresta« sumir að taka á vax- andi fjárhagsvandayf- ir sumarmánuðina en ætla svo taka til í sín- um ranni íseptember. .September er oft erfiður mánuður hjá mörgum,” segir Ásta S. Helgadótt- ir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Að sögn Ástu fresta sumir að taka á vaxandi fjárhagsvanda yfir sumarmánuðina en ætla svo taka til í sínum ranni í september. Ráðgjafarstofan veitir fólki sem á í verulegum greiðsluerfiðleikum og komið er í þrot með fjármál sín endurgjaldslausa ráðgjöf. Ásta segir að ráðgjafar stofunnar séu fullbók- aðir fyrir ágústmánuð, en það þýði ekki endilega að ástand fjármála heimilanna fari versnandi. Ráðgjaf- arstofan hafi verið lokuð vegna sum- arleyfa. Það kunni að skýra annir. Hinsvegar segir Ásta ýmis teikn á lofti í þjóðfélaginu um að heimilin eigi í vandræðum. Hún segir að húsa- leiga fari hækkandi, fasteignaverð sé í sumum tilfellum á niðurleið, vextir háir og geta sumra til þess að standa undir greiðslubyrðinni fari minnk- andi. Ásta segir að fasteignalánin séu erfið mörgum sem sækja þjónustu ráðgjafarstofunnar. „Það eru hæstu lánin og vextir af þeim eru háir núna.” Ásta nefnir einnig yfirdrátt- arlánin í þessu samhengi. En þrátt fyrir ýmsar blikur á lofti telur Ásta ekki ástæðu til svartsýni. Yfirleitt sé hægt að hjálpa þeim sem eiga í erfið- leikum. Mikilvægt sé að fólk fái yfir- sýn yfir fjármál sín og það auðveldi að koma böndum á þau. Starfsfólk ráðgjafarstofunnar aðstoðar fólk við að öðlast slíka yfirsýn. Ásta segir að fólk eigi að forðast í lengstu lög að reyna að ýta skuldahalnum á undan sér og eigi að taka á vandræðunum strax. Hún segir að fólk geti yfirleitt fundið viðunandi lausn á sínum fjár- hagserfiðleikum, en þó að ráðgjafar- stofan veiti fólki aðstoð skipti öllu máli fyrir farsæla lausn að fólk sé tilbúið að hjálpa sér sjálft. Á heimasíðu Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, www.fjol- skylda.is/fjarmal/radgjafarstofa/, er að finna margvíslegar gagnlegar upplýsingar fyrir þá sem vilja koma fjármálum sínum í viðunandi horf. Yfirdráttarlán: 650 þúsund krón- ur á hvert heimili Yfirdráttarlán heimilanna námu um7i milljarði króna í lok júní- mánaðar. „Útlán þessarar gerðar lána lækkuðu svolítið eftir að bank- arnir fóru að lána til íbúðakaupa," segir Jón Bjarki Bentsson, sérfræð- ingur hjá Greiningu Glitnis. „Yfir- dráttarlán fóru svo aftur að aukast og frá árslokum í fyrra hefur heildar- talan verið á svipuðu róli, eða í kring- um 70 milljarðar. Þessi þróun, að lán- unum fjölgaði á ný, endurspeglaði vaxandi einkaneyslu umfram vöxt kaupmáttar neytenda. Segja má að munurinn hafi verið fjármagnaður að einhverju leytimeð dýrum lán- um.“ Jón Bjarki segir að ef reiknað er með 110 þúsund heimilum í landinu megi reikna með að þessi tala jafn- gildi því að hvert heimili í landinu hafi skuldað um það bil 650 þúsund krónur í yfirdrátt í júnílok, sem ger- ir um 240 þúsund á hvern íslending. „Ýmiskonar vaxtakjör eru í gangi hjá bönkunum, en meðalvextir yf- irdráttarlána í dag eru rúm 20%. Vaxtakjörin fara mikið eftir sögu viðkomandi hjá bankanum og hvort hann sé kominn með vildarkjör og svo framvegis. Það lætur því nærri að meðalheimilið greiði um 130 þús- und krónur í vexti á ári vegna yfir- dráttar,“ segir Jón Bjarki. Meðalheimilið Greiöir um 130 þúsund krónur á ári í vexti vegna yfirdráttarlána. Lán í erlendri mynt hafa tvöfaldast að verðgildi Undanfarin ár hefur verið mikið um fjárfestingar á heimilum landsmanna. Fasteignaviðskipti voru í miklum blóma og mikið var um að fólk nýtti sér hagstættgengi til að flytja bíla inn til landsins sem keyptir voru víða erlend- is, þá oft á erlendum lánum í innlendum bönkum. En hvernig skyldi skuldastaða þeirra sem kusu sér að taka lán í erlendri mynt vera í dag? Hafa ein- hverjir brugðið á það ráð að breyta erlendum lánum í innlend? Blaðið hafði samband við greiningardeild Glitnis og spurðist fyrir um málið: „Ég giska á að almennt hafi fólk ekki skipt erlendum lánum yf- ir í innlend áður en krónan féll og þvíhækkaði einfaldlega höfuðstóll- inn á erlendu lánunum,“ segir Ingvar Arnarson hjá greiningardeild Glitnis. „Eftirstöðvar á erlendum lánum sem voru til dæmistekin fyrir ári eru þannig sennilega orðnar hærri ená innlendum lánum sem tekin voru á sama tíma. Þetta er þó algerlega háð því hvenær lánin voru tekin. Ef þau voru tekin fyrir tveimur til þremur árum þá er staðan á erlendu lánun- um líklega betri í dag en á þeim inn- lendu“. Ingvar segir vaxtamun á erlend- um og innlendum lánum mikinn eins og staðan er í dag og því gætu margir freistast til að taka erlend lán ídag. „Ekki átta sig þó allir á að þegar erlend lán eru tekin þá eru vextirn- ir yfirleitt lægri, en áhættan á sama tíma meiri. Þannigmá segja að maðurborgi fýrir lægri vexti með meiri áhættu. Það geta hæglega orð- iðmeiri sveiflur í gengi krónunnar og hún gæti fallið enn frekar í fram-

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.