blaðið - 15.08.2006, Page 6
22 I FJÁRMÁL
ÞRIÐJUDAGUR 15 . ÁGÚST 2006 blaðið
Ríkustu konur Bretlandseyja
Nýlego gerði dagblaðið Sunday Times úttekt á ríkasta fólki Bretlandseyja. Á listann komust um eitt þúsund einstaklingar og
þar afvoru nokkrar konur. Kíkjum hér á nokkrar:
Elísabet
drottning..
áenn sand af seðlum
Drottningin háttprúða þarf ekki
að nurla í ellinni enda situr hún
á 300 milljónum punda eða
rúmum 40 milljörðum íslenskra
króna og er númer 192 á list-
anum yfir milla í Tjallalandi.
J.K. Rowling
Mamma Harry Potters
Nú á hún aðeins eina bók eftir
í seríunni um Harry litla Potter
en þrátt fyrir það er daman
orðin ríkari en sjálf Englands-
drottning. Eignir hennar nema
nú um 520 milljónum punda
eða rúmum 70 milljörðum
íslenskra króna og þar með
situr sá snjalli penni í 122.
sæti listans. Sölulaun hennar
af öllu Harry Potter dæminu,
hvort sem um er að ræða leik-
föng, bækur, kvikmyndir eða
annað, eru komin upp f slíkar
himinhæðir að hún þarf aldrei
að slá fingri á lyklaborð svo
lengi sem hún lifir. Ekki slæmt
fyrir einstæða móður sem fyrir
nokkrum árum átti ekki einu
sinni fyrir kyndingu á íbúðinni
sinni.
Madonna
Efnishyggjustelpa
Madonna er númer 251 á
listanum yfir ríkasta fólkið í
Bretlandi. Hún er alltaf með
það á hreinu hvernig hún eigi
að endurskapa sjálfa sig og
á sama tíma veit hún líka vel
hvernig á að búa til nokkra
þúsundkalla.
Síðasta plata hennar, Confessi-
ons on a Dance Floor, náði mik-
illi sölu og á örfáum mínútum
seldust miðar á tónleika með
henni á Wembley-leikvang-
inum upp en stykkið kostaði
„aðeins" rúmlega tuttuguþús-
undkall. Hún á um það bil 248
milljónir punda eða rúma 33,4
milljarða og er enn iðin við að
búa til meira. Aldeilis ekki af
baki dottin
Victoria
Beckham
Sparikrydd
Þau fara ekki framhjá neinum
þessi blessuðu hjón sem eru
númer 674 á listanum. Saman
munu þau vera metin á 87 millj-
ónir punda. Prátt fyrir að hann
eigi heiðurinn af stærsta hluta
þeirrar upphæðar þá'er ekki
hægt að segja að hún sé eitthvað
að lepja dauðann úr skel. Stef-
gjöldin frá Spice Girls-tímabilinu
gáfu henni 1,5 milljarða punda og
hagnaður fyrirtækisins Footwork
(sem er á bak við allt sem fram-
leitt er í nafni þeirra) var 10,5 millj-
arður punda í fyrra. Hún þarf s.s.
ekki að væla yfir því að hafa ekki
efni á handsnyrtingu eða skóm
eða bara hverju sem er...
Slavica
Ecclestone
Formúludrottning
Þessi fyrrverandi fyrirsæta frá
Króatíu trónir hér yfir eigin-
manni sínum, Bernie, sem er
eigandi Formúlu 1 keppninnar.
Slavica á hlut í Formúlunni
og sá hlutur er upp á litla 300
milljarða íslenskra króna. Þetta
setur Slavicu númer þrettán á
listann yfir ríkasta fólk heims.
Anita Roddick
Meðvitaður kapítaiisti
Konan sem kom The Body
Shop á koppinn og seldi nýlega
til L’Oréal við misjafnar undir-
tektir græddi ansi vel á því að
vera meðvituð á sínum tíma
í kringum áttunda áratuginn
þegar fyrirtæki hennar fór að
spretta. Kókossmjörið og E-vít-
amín-kremin hafa halað inn 132
milljónir punda eða 17,8 milljarða
íslenskar og Anita Roddick situr
í tröppu númer 424 yfir ríkustu
einstaklinga Bretlands.
Ingólfur H. Ingólfsson fjármálaráðgjafi:
Fólk á að forðast neyslulán
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að vextir eru himinháir á ís-
landi í dag. Eðlilega veigrar fólk sér
við því að taka lán og flestir forðast
eins og heitan eldinn að hækka yfir-
dráttinn. Það er þó vissulega freist-
andi stöku sinnum að taka lán til að
festa kaup á fögru sófasetti, nýjum
jakkafötum eða ferð til fjarlægra
landa.
Ingólfur H. Ingólfsson ráðleggur
fólki þó eindregið að láta undan
þeirri freistingu. „Ef fólk vantar
nauðsynlega litlar upphæðir til
skamms tíma þá er yfirdráttur
einn skásti kosturinn. Þar þarf fólk
ekki að greiða kostnað á borð við
stimpilgjöld og annan kostnað sem
bankinn tekur. Ef þú tekur skulda-
bréfalán í stuttan tíma þá ertu að
borga hlutfallslega nokkuð mikið í
stimpilgjöld og lántökukostnað. Lán-
tökukostnaður er i% sem bankinn
tekur venjulega og stimpilgjöld eru
1,5 % þannig að fólk er strax komið
með 2,5% í kostnað. Þetta eru yfir-
dráttarlánin laus við. Þau eru þó auð-
vitað ákaflega dýr og fólk ætti eftir
fremsta megni að reyna að komast
af án þeirra.“
Aukin lífsgæði
Ingólfur ráðleggur fólki að skoða
vel hvaða kjör séu í boði og hverjir
bjóði best í þeim efnum. „Netbank-
arnir, S24 og Netbankinn, hafa verið
að bjóða bestu vextina á yfirdrátt-
arlánum upp á síðkastið en svo er
oft hægt að semja í hvert skipti um
sæmileg kjör.“
Nú um stundir horfast líklega
margir í augu við dágóða mínustölu
þegar þeir opna heimabankann sinn.
Þessi mínus fær oft svitann til að
hríslast niður bakið. Ingólfur segir
það oft auka lífgæði fólk að ganga
frá þessum málum og það sé vissu-
lega mikils virði að hafa ekki stöð-
ugar áhyggjur. „Þumalputtareglan
er sú að reyna að greiða niður lánin
eins fljótt og auðið er. Það getur þó
verið ákaflega taugatrekkjandi að
þurfa alltaf að horfast í augu við
mínusinn. Því getur oft verið gott
að hreinsa borðið, taka skuldabréf
og greiða niður öll skammtímalán.
Þannig er hægt í rólegheitunum að
finna leiðir út úr vandræðunum í
stað þess að horfast í augu við stöð-
ugan mínus. Þá er ég ekki endilega
að tala um að fjárhagsleg útkoma
þessa sé betri heldur frekar að fólki
líði betur og greiði ákveðna upphæð
mánaðarlega af lánunum."
Avísun á vandræði
Ingólfur hefur um skeið haldið
námskeið fyrir einstaklinga sem
vilja ná góðri stjórn á fjármálum
sínum. Hann heldur úti heimasíð-
unni www.spar.is. Hann hefur því
mikla reynslu af því að ráðleggja
fólki í fjármálum
„Það er ýmislegt hægt að gera til
þess að lifa af erfiðleika í fjármálum.
Þegar ég keypti mitt fyrsta húsnæði
þá fór verðbólgan upp í 80% og
lánin voru verðtryggð. Einhvern
veginn lifði maður samt af þó þetta
hafi verið erfitt. Það er óðs manns
æði að taka neyslulán til þess að
kaupa hluti. Slíkt er bara ávísun á
vandræði. Fólk á frekar að reyna
að safna í einhvern neyslusjóð sem
hægt er að nota til að kaupa hluti
á borð við sófasett eða ryksugu. Ég
þekki engan sem hefur safnað svo
miklu fé að hann geti ekki veitt sér
eitthvað en ég þekki marga sem
hafa tekið svo mörg neyslulán að
þeir geta ekki leyft sér neitt lengur.
Svo man fólk sjaldnast í hvað þessir
peningar fóru og hafði enga ánægju
af því að eyða þeim. Menn verða að
byrja að greiða niður lán áður en
þau næstu eru tekin. Það er ekkert
gaman að lifa ef maður getur ekki
leyft sér eitt né neitt,“ segir Ing-
ólfur að lokum