blaðið - 15.08.2006, Blaðsíða 7
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2006
FJflRMÁL I 23
Dýrustu
hlutir i heimi
Dýrasti brjóstahaldarinn
Árið 2002 hannaði undir-
fatafyrirtækið Victoria’s
/j Secret dýrustu
1 I f\ uHÚirföt
tiLI f j sögunnarsem
AbL íyrirsætan Gi-
sele Biindchen
skartar
myndinni.Nær-
fötin kostuðu
milljarð og kallast Red
Hot Fantasy. Brjóstahaldarinn er
úr rauðu satíni og 1300 rúbínum
og demöntum. Áður höfðu hönn-
uðir fyrirtækisins hannað und-
irföt úr hvftagulli, safírum og
demöntum. Undirfötin eru enn
til sölu þar sem enginn hefur
látið tilleiðast í slík kaup. Það er
þó aldrei að vita nema aldraður
auðkýfingur muni leggja fram
slíka upphæð til þess að ganga í
augun á tvítugri ástkonu sinni.
DÝRASTI KOKTEILLINN
I dýrasta kokteil sögunnar má
finna demantshring f stað ólívu
sem skýrir betur verð drykks-
ins. Hann kostar tvo milljarða.
Drykkurinn var hannaður af
Harvey Nichols og kemur í fylgd
lífvarða til þess sem drykkjar-
ins vill njóta. Viðskiptavinir
geta valið á milli hringa sem
þeir vilja hafa í drykknum og í
dýrasta drykknum er forláta trú-
lofúnarhringur á botni glassins.
DÝRUSTU SKÓRNIR
130 MILLJÓNIR.
Dýrustu skór í heimi eru til
sölu í Harrods f London. Skórnir
eru örugglega geymdir en þó
til sýnis f boxi úr skotheldu
gleri og öryggisverðir standa
vaktina allan sólarhringinn.
Skórnir eru ofnir úr platínu
og skreyttir með 642 rúbínum.
Skóna hannaði Stuart Wiezman.
DÝRASTA KLIPPINGIN
Hárgreiðslumaðurinn Lee Staf-
ford tekur 258,000 krónur fyrir
klippinguna og hlýtur þar af leið-
andi að vera afar
fær. Frá honum
ætti enginn að
fara óánægður
með of stutt hár
eða óumbeðið
perman- ,4
ent. Lee jý
bessi
veitir þjónustuna heima
hjá sér og fýlgja smáréttir
og kampavín í kaupbæti.
DÝRASTISÍMI (HEIMI
36 MILLJÓNIR.
Dýrasti sími sögunnar
er þakinn gulli og
demöntum og kostar
meira en dýrir
sportbílar á
borð við
Jagúar S
Type og
BMW
blæjubíl.
Motor-
ola-síminn er
þakinn 1.200 demöntum og er
með takkaborð úr skíragulli.
DÝRASTIPENNI í HEIMI
Svissneska fyrirtækið Caran
d' Ache hannaði La Modernista
Diamonds pennann sem var
seldur í Harrods í London fyrir
átján milljónir. Penninn var
hannaður í minningu arkitekts-
ins Antonio Gaudi. Pennahylkið
er þakið silfri, 18 karata gulli og
er skreyttur 5072 demöntum og
Hvað er vísitala?
I grófum dráttum eru vísitölur eins
konar meðaltöl sem eru fengin með
því að setja saman nokkrar stærðir.
Vísitölur eru notaðar áýmsum sviðum
þó að mest sé talað um þær í sam-
bandi við efnahagsmál. í verðlagsvísi-
tölu felst meðal annars vísitala neyslu-
verðs sem er gjarnan notuð til þess
að meta verðbólgu á íslandi. Þessar
vísitölur er reiknaðar út með því að
reikna út kostnað við að kaupa tiltekið
magn af ýmsum vörum og þjónustu
á ákveðnu tímabili. Þá er talað um
ákveðna körfu eða grunn sem endur-
speglar þær vörur og þá þjónustu sem
meðalfjölskyldan kaupir á tilteknum
tíma. Sá kostnaður er notaður sem
mælikvarði á verðlag og hvernig það
breytist með tímanum.
Almennt verðlag er fengið með
reglulegumverðkönnunumsemgefa
góða mynd af breytingum á verðlagi.
Yfirleitt er reiknað út ákveðið meðal-
verð sem miðað er við.
Algengast er að miða við ákveðið
upphafsgildi sem vísitölurnar eru
hafðar á eins og t.d. ef miðað er við
100 stig. Þá er hægt að miða við að
verðlagsvísitalan sé 100 á ákveðnum
tíma, eins og í byrjun árs. Ef vísi-
talan fer upp í 102 er 2% dýrara að
meðaltali að kaupa sér vörur og
þjónustu.
Vísitölur eru þó ekki óskeikulir
mælikvarðar þar sem yfirleitt er
aðeins tekið mið af meðaltölum en
gefa þó ágætis mynd af breytingum
á verðlagi.
Arnarr
G A R A G E DyO O R S
Klemmivörn
Vfrnet
ÁREIÐANLEIKI - ÞJÓNUSTA - ÁRANGUR
Gylfaflöt 9 112Reykjavík Sími: 530 6000 Fax: 530 6019 www.limtrevirnet.is
Amarr bílskúrshurðir eru vandaðar,
þéttar og öruggar. Þessar glæsilegu
hurðir eru til á lager í nokkrum
stærðum, með eða án glugga.
V