blaðið - 16.08.2006, Blaðsíða 24
36
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 blaöið
Hvaðan er Zayra? ockstart J/
Hvað heitir hún fullu nafni? V' £ ooju ojjand jo ÁjjSJOAjun bjj jpjdB|0>|S?ij qouj jo unij ‘Bp S
Hvenær er hún fædd? •BZH JjJjdlJ LIIOS JI1JSÁS jjpia Blljd B UIU| ‘Bf f
Á hún systkini? Er hún eitthvað menntuð? '8Z6L Jocjuiasap 'u. ppaej ja uiih 'C zajBAiv bjábz jjjjaij unn z •ooju ojjaiid bjj ja iii.ih 'l
ÚTVARPSSTÖÐVAR: RÁS 1 92,4/93,5 • RÁS2 90,1 /99,9 • KISS FM 89.5 • XFM 91,9 • BYLGJAN 98,9 • FM 95,7 • X-IÐ 97,7 • ÚTVARP SAGA 103,3 • TALSTÖÐIN 90,9 • LÉTTBYLGJAN 96,7
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
®Hrútur
(21. mars-19. apríl)
Sumir vinir þinir láta þér Ií5a vel og þegar þú hef-
ur verið með þeim liður þér eins og þú sért end-
urnærð(ur) en aðrir láta þér líða eins og vörubíll
hafi keyrt yfir þig. Vinir eiga að vera þér meira til
ánægju en ama og þú ættir að hafa það hugfast að
lífið erfullt af hamingjumolum sem þú þarft að leit-
ast við að finna. Ef vinir þinir valda þér meiri ama
en ánægju ættir þú að taka til í vinahópnum.
©Naut
(20. apríl-20. maO
Gerðu eitthvað nýtt í dag! Prófaðu einhvern nýj-
an og spennandí rétt I hádeginu, farðu nýja leið í
vinnuna eða bara úr kaffipásunni þinni. Hver veit,
kannski muntu finna nýjan uppáhaldsrétt, finna
styttri leið eða hitta nýjan besta vin þinn. I kvöld
ættir þú að vera frumleg(ur) og koma ástinni þinni
á óvart með einhverju nýju og spennandi.
©Tvíburar
(21. maí-21. júnO
Ef þú hunsar staðreyndir lifsins og lætur eins og
þú sjáir ekki þau mál sem koma inn á borð til þín
kemst þú aldrei skrefinu lengra. Þú verður að horf-
ast i augu við Iffið eins og það er og hætta að leika
strút sem stingur höfðinu ofan i sandinn. Þegar þú
ferð að takast á viö lífið eins og það er hættir lika
verkefnabunkinn á skrifboröinu þinu að hækka.
©KrabbJ
(22. júní-22. júlQ
Þin innri markmið og takmörk í lifinu eru farin að
ná of miklu taki á þér og stjórna þér um of. Það er
stundum eins og þú gleymir þvi hvar þú sténdur í
raun og veru og það er stundum eins og raunveru-
leikaskyn þitt sé brenglað. Þú þarft að læra að
hrista af þér þennan óraunverulega heim og koma
fótunum niður á jörðina. Lærðu af þeim mistökum
sem þú gerir.
®Lj6n
(23. júlí-22. ágúst)
Þú skalt ekki rugla ábyrgöartilfinningunni sem
er að vaxa innra með þér saman viö samviskubit,
þetta er tvennt ólíkt. Þú ert að ganga inn í nýtt
tímabil þar sem þú þarft að takast á við meiri
ábyrgð en þú ert vanur/vön og það er jákvætt Ekki
láta samviskuna hlaupa með þig í gönur og stríða
þér þvi að þú vinnur vinnuna þina alveg nógu vel.
Saumaklúbbsnöldur
©
Meyja
(23. ágúst-22. september)
Það er mikilvægara fyrir þig nú en nokkru sinni að
hvíla þig vel. Það eru strembnir timar framundan
og þú þarft að takast á við margt sem kemur upp.
Taktu þér frí, notaðu restina af sumarfriinu eða eitt-
hvaöslíkt til þessað hlaða batteriin því að þér veitir
ekki af að vera með nóga orku til þess að komast í
gegnum næstu vikur.
©Vog
(23. september-23. október)
Til þess að fá það sem þú vilt verður þú að sþyrja
rétta fólkið á réttum tíma. Það er lykilatriði. Ef þú
hikar og þorir ekki að sækjast eftir því sem þú vilt
missirðu af tækifærinu og verður fyrir vonbrigð-
um með allt og alla í kring um þig og allra mest
sjálfa(n) þlg. Vertu dálitið frakkari en venjulega og
láttu það berlega f Ijós hvað það er sem þú vilt.
©Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
Þú ert meðvitaðúr/meðvituð um það sem þú getur
afrekað í dag, þú tekur ekki of mikið að þér en samt
nóg til þess að þú hafir hæfilega mikið fyrir stafni.
Þetta á eftir að veita þér ánægju og dagurinn verð-
ur góður. Þú hefur mikla yfirsýn yfir það sem þú ert
að gera og þú færð viðurkenningu frá yfírmönnum
þinum fyrir vel unnin störf.
©Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
Líf þitt er langt frá þvi að vera fullkomið i dag en
það er samt svo yndislegt. Lærðu að njóta hverrar
mínútu og hvers mola sem dagurinn hefur upp á
að bjóða því það er allt yndislegt á sinn hátt. Þó
að fjölskyldan geti veriö erfíð við þig og upp komi
deilur, mundu þá að þér þykir óendanlega vænt
umhana.
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
Það er aldrei betri tími til þess að vinna að fram-
tiðinni en akkúrat núna. Búðu til plan og skrifaðu
niður hvar þú sérð sjálfa(n) þig og hvað þú vilt vera
búin(n) að afreka eftir mánuð, ár, fimm ár og svo
framvegis. Þetta á eftir að auðvelda þér að ná þeim
takmörkum sem þú setur þér því þá er það alveg á
svart og hvítu hvað þúvilt.
®Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
Mistök sem þú hefur gert í fortíðinni eru til þess
aö læra af þeim en ekki láta þau eyöileggja fram-
tiöina fyrir þér. Áttaðu þig á því að þú ert mikllvæg-
ari en þú heldur og það sem er búið er búið og þú
getur ekki breytt því. Það hefur áhrif á svo marga
í kringum þig ef þér liður illa og ert að láta óþarfa
áhyggjur draga þig niður.
o
Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
Hafðu eitt sterklega í huga í dag, þú getur notað
sjarma þinn til þess að fá fram það sem þú vilt Þú
þarft ekki að frekjast áfram og reyna að ráðskast
með alla, þú getur vel fengið það sem þú vilt með
þvi að heilla fólkið i kringum þig upp úrskónum.
í umræðuþættinum Pressan á NFS síðasta
sunnudag spjallaði Helgi Seljan við fjóra
einstaklinga úr fjölmiðlaheiminum,
tvær konur og tvo karla. Ýmislegt
var rætt en ekki leið á löngu þar
til konurnar tvær hófu að spjalla
um skortinn á kvenfólki í íslensk-
um fjölmiðlum. Helgi og karlarnir
tveir horfðu furðu lostnir hver á
annan á meðan þær göspruðu sin á
milli hversu mikil karlastöð NFS væri
og hversu æðislegt og göfugt það hefði
verið ef kona hefði verið ráðin sem
rítstjóri Blaðsins.
Ég er hlynntur jafnrétti og vil
að sjálfsögðu að allir, konur og karlar, fái sömu
tækifæri. Jafnréttisumræðan á fullkominn rétt á
sér en hina hárfínu línu á milli umræðu og nöld-
urs er mjög auðvelt að slíta. Konurnar tvær
minntu mig meira á saumklúbb hiá systur
minni en umræðuþátt í sjónvarpi. I þennan
stutta tíma sem þær ræddu sín á milli var
umræðan algjörlega einhliða. Nokkrum
sinnum hvarflaði að mér' að
skipta um stöð en ég hugsaði
með mér að Helgi hlyti að
grípa inn í, sem hann
gerði.
Eigum við ekki bara
að láta kjurt liggja?
Atli Fannar Bjarkarson
Nennir ekki að hlusta á sauma-
klúbbsnöldur i umræðuþáttum
Fjölmiðlar
atli@bladid.net
Sjónvarpið
16.35 fslandsmótið í vélhjóla
akstri (3.4)
Þáttur um keppni vélhjóla-
manna. Dagskrárgerð.
Þorvarður Björgúlfsson.
Framleiðandi. Kukl. e.
17.05 Leiðarljós (Guiding Light)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Disneystundin
18.01 Stjáni (Stanley).
18.25 Sígildar teiknimyndir
18.32 Líló og Stitch (44.49)
18.54 Víkingalottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljós
20.05 Tiskuþrautir (13.13)
Lokaþáttur í þessari þátta-
röð um unga fatahönnuði
sem keppa sín á milli og er
einn sleginn út í hverjum
þætti. Kynnir í þáttunum
er fyrirsætan Heidi Klum.
21.00 Kokkar á ferð og flugi
Ben O'Donoghue og
Curtis Stone, flakka á milli
fallegra staða í Suðurálfu
og töfra fram Ijúffenga rétti
úr hráefninu á hverjum
stað.
21.25 Litla-Bretland (1.8)
(Little Britain I)
Bresk gamanþáttaröð
þar sem grínistarnir Matt
Lucas og David Walliams
bregða sér i ýmissa kvik-
inda líki og kynna áhorf-
endum Bretland og furður
þess. Þættirnir hafa unnið
til fjölda verðlauna. e.
22.00 Tíufréttir
22.20 fþróttakvöld
22.35 Mótorsport
Þáttur um íslenskar akst-
ursíþróttir. Dagskrárgerð:
Birgir Þór Bragason.
23.05 Vesturálman (16.22)
(The West Wing)
Bandarísk þáttaröð um
forseta Bandaríkjanna
og samstarfsfólk hans í
vesturálmu Hvíta hússins.
Aðalhlutverk leika Martin
Sheen, Alison Janney,
Bradley Whitford, John
Sþencer, Richard Schiff,
Dulé Hill, Janel Moloney,
Stockard Channing og
Joshua Malina.
23.50 Kóngur um stund (10.12)
Hestaþáttur í umsjón
Brynju Þorgeirsdóttur. Text-
að á síðu 888 í Textavarpi.
00.20 Kastljós
Endursýndur þáttur.
00.50 Dagskrárlok
Blaðið réð mjög hæfan einstakling í starf ritstjóra
sem reyndist vera karlmaður. Ég held að kven-
þjóðin hafi það ágætt í dag þó konur virðist koma
aðeins minna fram á NFS - einu sjónvarpsstöð-
inni sem er með þátt tileinkaðan femnistum.
06.58 fsland í bítið
09.00 Bold and the Beautiful
09.20 i fínu formi 2005
09.35 Oprah Winfrey
10.20 My Sweet Fat Valentina
11.10 Strong Medicine (20.22)
12.00 Hádegisfréttir NFS
12.25 Neighbours (Nágrannar)
12.50 f fínu formi 2005
13.05 Home Improvement
13.30 How I Met Your Mother
14.05 Medium (10.16)
14.50 Las Vegas (11.24)
(My Beautiful Launderette)
15.35 Blue Collar TV (17.32)
(Grínsmiðjan)
16.00 Sabrina - Unglingsnornin
16.25 BeyBlade (Snældukastar
arnir)
16.50 Cubix
17.15 Könnuðurinn Dóra
17.40 Bold and the Beautiful
18.05 Neighbours (Nágrannar)
18.30 Fréttir, íþróttir og veður
19.00 ísland í dag
19.40 The Simpsons (10.22)
20.05 Neyðarfóstrurnar (4.16)
(McCrays Family)
I Nanny911 stígurfram
á sjónarsviðið flokkur
þrautþjálfaðra uppalenda,
barnfóstrur með áralanga
reynslu af barnauppeldi og
- pössun. Barnfóstrur sem
eiga ráð undir rifi hverju
þegar kemur að Parnaupp-
eldinu og hvernig siða eigi
börnin til þegar þau eru
óþekk. (4.17)Stella neyðar-
fóstra heim
20.50 Oprah (86.145)
21.35 Medium (21.22)
22.20 Strong Medicine (21.22)
(Samkvæmt læknisráði)
Ný sería af þessum vönd-
uðu spítalaþáttum sem
fjalla um kraftmikla kven-
lækna sem Perjast fyrir
bættri heilsu kynsystra
sinna.
23.05 FOOTBALLERS' WIVES
(Ástir í boltanum)
23.55 Cold Case (21.23)
00.40 Autopsy (3.10)
01.30 I Spy
(Spaugsamir spæjarar)
03.05 LasVegas (11.24)
(My Beautiful Launderette)
03.50 Medium (21.22)
(Miðillinn)
04.30 Strong Medicine (21.22)
(Samkvæmt læknisráði)
05.15 Fréttir og ísland í dag
Fréttir og Island í dag end-
ursýnt frá því fyrr í kvöld.
06.25 Tónlistarmyndbönd frá
Popp TíVi
07.00 6 til sjö (e)
08.00 Dr. Phil (e)
15.40 All About the Andersons
16.15 Brúðkaupsþátturinn Já
17.15 Dr.Phil
18.00 6 til sjö
19.00 Beverly Hills 90210
Unglingarnir í Beverly Hills
eru mættir til leiks. Tvíbur-
arnir Brandon og Brenda
Walsh eru nýfluttir til
stjörnuborgarinnar og kynn-
ast krökkum fína og fræga
fólksins í Beverly Hills. Þar
eru þau Kelly, Steve, Dylan,
David og Donna fremst í
flokki og þetta eru persón-
ur sem ahorfendur fylgdust
með í gegnum súrt og sætt
í áratug.
19.45 Beautiful People
Lynn leitar að einhverjum
sem getur stutt hana og
Maddy fjárhagslega í
þeirra nýja lífi og kærasti
Karenar kemur til greina
í því sambandi. Sophie
skreppur út á lífið og slettir
úr klaufunum og hún og
Chris verða nánari.
20.30 Emily’s Reason Why Not!
Emily og Reilly eru of oft
ósammála. Emily ákveður
að leita að nýjum vini bara
til að finna út hvort vinskap-
ur þeirra sé einhvers virði
eftir allt.
21.30 Rock Star: Supernova
- raunveruleikaþátturinn
22.00 Rock Star: Supernova
- tónleikarnir
Fylgist með Magna og
félögum í rokkaðasta
raunveruleikaþætti allra
tíma. Hver verður söngvari
Supernova með þunga-
rokkurunum Tommy Lee
úr Motley Crúe, Jason
Newstead úr Metallica
og Gilby Clarke úr GunsN’-
Roses?
23.00 The L Word
00.00 Rock Star: Supernova
- úrslit vikunnar
01.00 Love Monkey (e)
Tom fær tækifæri til þess
að kaupa verk söngvara
sem kiknaði undan álaginu
í tónlistarbransanum fyrir
mörgum árum og náði
aldrei að Ijúka við gerð
plötunnar.
01.45 Beverly Hills 90210 (e)
02.30 Ústöðvandi tónlist
Sirkus
18.30
19.00
19.30
20.00
20.30
21.00
21.30
22.20
22.45
23.35
Fréttir NFS
l’sland i dag
Pipóla (5.8) (e)
Seinfeld (17.22)
(The Wife)
Sirkus RVK
Stacked (10.13)
(Third Date)
Ghost Whisperer (5.22)
Jake in Progress (13.13)
(Henry Porter And The
Coitus Interruptus)
Rescue Me (10.13)
(Brains)
Frábærir þættir um hóp
slökkviliðsmanna í New
York borg þar sem alltaf
eitthvað er í gangi. Ef það
eru ekki vandamál í vinn-
unni þá er það einkalífið
sem er.að angra þá. Ekki
hjálpar það til að mennirnir
eru enn að takast á við
afleiðingar 11. september
sem hafði mikil áhrif á
hópinn, en þar féllu margir
félagar þeirra í valinn. Den-
is Leary fer með aðalhlut-
verkið í þessari þáttaröð
sem siegið hefur í gegn
vestanhafs.
Seinfeld (17.22)
(The Wife)
Enn fylgjumst við með
Islandsvininum Seinfeld og
vinum hans frá upphafi. %
07.00 fsland i bítið
09.00 Fréttavaktin
12.00 Hádegisfréttir
12.00 Hádegisfréttir.
12.12 Markaðurinn.
12.15 íþróttafréttir.
12.20 Veðurfréttir.
12.28 Leiðarar dagblaða.
12.40 Hádegið
13.00 Sportið
14.00 Fréttavaktin
17.00 Sfréttir
18.00 fþróttir og veður
18.30 Kvöldfréttir
19.00 fsland í dag
19.40 Hrafnaþing
20.10 Brot úr fréttavakt
21.00 Fréttir
21.10 Panorama2006
22.00 Fréttir
Fréttir og veður
22.30 Hrafnaþing
23.10 Kvöldfréttir
00.10 Fréttavaktin
18.00 fþróttaspjallið
18.12 Sportið
Allar nýjustu og ferskustu
íþróttafréttirnar á hverjum
virkum degi.
18.30 Gillette Sportpakkinn
18.55 England - Grikkland
21.00 Steven Gerrard. Sagan til
þessa
Þáttur um enska knatt-
spyrnumanninn Steven
Gerrard sem gerður var í
aðdraganda HM í Þýska-
landi. Spjallað við Gerrard,
samherja hans og mótherja
og sýndar svipmyndir af því
helsta á hans ferli. Gerrard
er orðinn ein allra helsta
stjarna Englendinga og
hefur verið iðinn við kolann
fyrir Liverpool í stórleikjum.
22.00 NBA - Bestu leikirnir
(Chicago Bulls - Utah Jazz
1997)
Útsending frá sjötta leik
Chicago Bulls og Utah Jazz
i úrslitarimmu NBA árið
1997. Michael Jordan átti
við veikindi að stríða en lét
það ekki aftra sér. Chicago
Bulls var langbesta liðið i
NBA á síðasta áratug en
í einvíginu við Utah Jazz
stefndu Jordan og félagar
á sinn fimmta meistaratitil.
23.30 England - Grikkland
Upptaka frá vináttulands-
leik milli Englands og
Grikklands.
06.00 Lóa og leyndarmálið (e)
08.00 Maid in Manhattan
10.00 Bride & Prejudice
12.00 HEADOFSTATE
14.00 Lóa og leyndarmálið (e)
16.00 Maid in Manhattan
(Þerna á Manhattan)
18.00 Bride & Prejudice
(Brúður og hleypidómar)
20.00 HEAD OF STATE
(Þjóðhöfðinginn)
22.00 Barbershop
(Rakarastofan)
00.00 Dagon (Sjóskrímsli)
02.00 Van Wilder
Van Wilder er búinn að
vera sjö ár í framhalds-
skóla en útskrift er enn
fjarlægur draumur. en nú
hefur Pabbi fengið nóg
og neitar að borga skóla-
gjöldin.
04.00 Barbershop
Stöð 2 23.05
Footballers' Wives
Hér áður fyrr voru það poppstjörnur og kvikmyndastjörnur. Nú eru það
fótboltahetjurnar sem eru fínasta og frægasta fólkið. En á meðan þessir
moldríku ungu herramenn sýna listir sínar og þokka á knattspyrnuvell-
inum þá eru það konur þeirra og kærustur sem baða sig í sviðs-
Ijósinu utan vallar. Hér er á ferð fimmta þátta-
röðin sem framleiðendur hafa lofað
og breska pressan hefur staðfest að
er svæsnari og svakalegri en allar
þær fyrri. I þessum þætti birtir Eva
skelfilegar myndir af Tönyu í tímaritinu
sínu, en Tanya hefnir sín með því að
afhjúpa sláandi leyndarmál um Evu og
kærastann Paolo - náungann sem hún
hefur augastað á - og hótar fjárkúgun.
Þættirnir eru bannaðir börnum.
Stöð 2 bíó 12.00 & 20:00
Head of State
Vika er langur tími í pólitík eins og sannast eftirminnilega í þessari frá-
bæru gamanmynd. Þegar forsetaframbjóðandi demókrata deyr í miðri
kosningabaráttunni (Bandaríkjunum opnast óvæntar dyr fyrir Mays
Gilliam sem er flestum óþekktur. Brátt
er nafn hans á allra vörum en getur
hann staðið undir þessu trausti? Líf
Mays tekur stakkaskiptum og hann
verður nú að þola stöðugt kastljós
fjölmiðlanna. Áreitið tekur á og það
þarf sterkar taugar til að þola álagið.
Aðalhlutverk eru í höndum Chris Rock,
Bernie Mac, Dylan Baker, Robin Gi-
vens. Leikstjóri en Chris Rock og er
myndin frá árinu 2003.
Leyfð öllum aldurshópum.