blaðið - 16.08.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 16.08.2006, Blaðsíða 12
12 I FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 blaðið íran: Teknir af lífi fyrir dópsölu mbl.is Þrír Iranar voru teknir af lífi í fran í gær fyrir fíkni- efnasölu. Voru mennirnir hengdir á al- mannafæri í borgunum Zabol og Sahedan, að því er fram kemur í írönskum fjölmiðlum í dag. Að minnsta kosti 86 manns hafa verið teknir af lífi í íran það sem af er ári. Samkvæmt skýrslu Amnesty International, sem berst gegn dauðarefsingum, voru 94 af- tökur í íran á síðasta ári. Brot eins og morð, nauðganir, vopnuð rán, trúarníð, guðlast, fíkniefnasala, samkynhneigð, vændi, framhjáhald, föðurlands- svik og njósnastarfsemi varða í mörgum tilvikum dauðarefs- ingu í íran. Árásir Hizballah: Sílikoniö bjarg- aði mannslífi Læknir lýsti því yfir í gær að sílikonbrjóst hefði bjargað lífi konu sem fékk sprengjuflís í brjóstkassann eftir eldflauga- árás vígamanna Hizballah á norðurhluta ísraels á dögunum. Jacky Govrin, sem er læknir á sjúkrahúsinu í Nahariya og gerði að sárum konunnar, sagði í samtali við útvarps- stöð ísraelska hersins í gær að sprengjuflísin hafi bókstaflega staðnæmst í sílikoninu og þar með ekki valdið innvortis skaða á líkama hennar. Konan sem fór í brjósta- stækkun fyrir tveim árum slapp þó ekki alheil úr hildar- leiknum. Sprengjuflísin eyði- lagði sílikonpúðana og þarf því að græða aðra í hana í stað þeirra sem fyrir voru. Framkvæmdastjóri íbúðalánasjóðs svarar gagnrýni: Við höfum verið að dansa með ■ Gagnrýnin á ekki við rök að styðjast ■ Bankarnir of fyrirferðarmiklir ■ Alltaf heitt á könnunni, segir framkvæmdastjórinn Apar og Netið: Einkamála- spjallsvæði AÐGERÐIR ÍBÚÐALÁNASJÓÐS og sætta sig við þau fá hjá okkur lán. Bankarnir voru náttúrlega orðnir mjög fyrirferðarmiklir á þessum markaði en þeir eru núna að draga saman um tugi millj- arða. Þegar bólan var sem'stærst hjá bönkunum voru þeir að lána þrjátíu milljarða á mánuði en eru nú að lána þrjá.” „Ég held að flestir séu þeirrar skoðunar að bankarnir hafi farið of geyst fram í þessum geira og því hafi þeir þurft að stíga mun harkalegar á bremsurnar heldur en við. Þróunin í efnahagsmálum hefur komið fram í okkar starf- semi og ég held að það muni hægja enn meira á næstu mán- uði. Það er hins vegar eðlilegt að við sem opinber stofnun höldum ákveðnum stöðugleika í starf- seminni. Það kann ekki góðri lukku að stýra að hafa opið í dag en lokað á morgun,” bætir Guð- mundur við. Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Ég hef það fínt, það er svo gott veður,” segir Guðmundur Bjarna- son.framkvæmdastjóriíbúðalána- sjóðs, aðspurður hvernig hann hafi það vegna þeirrar gagnrýni sem komið hefur fram síðustu daga um að sjóðurinn hafi ekki staðið sig sem skyldi í aðhaldsað- gerðum í útlánaaukningu. Guðjón Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, hefur gagnrýnt íbúðalánasjóð fyrir að draga ekki nægilega úr útlánum sínum. I fréttum Útvarps sagði hann íbúðalánasjóð ekki fylgja sömu peningastefnu og Seðla- bankinn sem hvatt hefur Ibúða- lánasjóð ög bankana til að draga úr útgjöldum sínum. Þetta segir Guðjón að íbúðalánasjóður hafi ekki gert. „Þetta er allt saman tóm vit- leysa. Hjá okkur er búið að lækka hámarkslán, hækka vexti, lækka lánshlutfall og ég veit ekki betur en við höfum verið að dansa með,” segir Guðmundur. „Við höfum hins vegar ekki lokað hjá okkur, það er alltaf opið og heitt á könnunni hjá okkur. Þeir sem geta uppfyllt ný skilyrði Vextir Lánshlutfall Hámarkslán Áður 4,15% 90% 18 milliónir NÚ 4,70% 80% 17 milljónir Þetta er allt saraan tóm > ' vitleysa. Guömundur Bjarnason Framkvæmdastjóri íbúðalánasjóös Aðstandendur apadýragarðs Apenhaul í Hollandi hafa ákveðið að hjálpa einmana órangútönum að komast í kynni við hitt kynið með því beita tölvutækninni. Starfsmenn dýragarðsins ætla að koma á tölvutengingu á milli órangútana í Hollandi og Ind- ónesíu. Aparnir munu geta séð hvor annan, lokað á samband við þá sem þeim líkar illa við og ýtt á takka sem færir þeim sem þeim finnast tilkippilegir mat. Anouk Ballot, talsmaður hollenska dýragarðsins, segir að ekki sé óhugsandi að ein- hverjum af öpunum verði komið saman til mökunar. Millilandaflug: Reglurnar hertar íslensk flugyfirvöld hafa hert öryggisreglur sem gilda framvegis í öllu farþegaflugi frá Keflavíkurflugvelli en einskorð- ast ekki við flug til Bretlands og Bandaríkjanna eins og verið hefur. Farþegar mega eiga von á að öll umferð um flugstöðina taki lengri tíma en áður og að vopnaleit verði algengari. Áfram mun gilda bann við vökvum í handfarangri en undanskilin verða nauðsynleg lyf og barna- matur. Þá þarf að færa öll raf- tæki, s.s. fartölvur, í hefðbund- inn farangur og fara úr skónum við gegnumlýsingu. Vol Ita ren D 01 lo Voltaren Dolo® ( díklófenak kalíum) 12,5 mg töflur. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem höfuðverk, tannpínu og tíðaþrautum. Verkar eínnig hitalækkandí. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum, skal leita til læknis. Þeír sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða skeifugarnarsár eða skerta lifrarstarfsemi ættu að ráðfæra sig við lækni áður en lyfið er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru, íbuprófen eða önnur bólgueyðandi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo®. Notið lyfið ekki á meðgöngu nema í samráði við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfjafræðings um milliverkanir við önnur lyf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Rs50 LAKH MANSOOR Alias Chota Ibrahim Dlstrict: Karachi_ Rannsókn á hryðjuverkaárás: Fengu peninga úr neyðaraðstoðarsjóði Eftir Örn Arnarson orn@bladid.net Pakistanskur neyðaraðstoðarsjóður sem fékk um tæpan einn milljarð íslenskra króna í framlögum frá Bret- landi vegna jarðskjálfta í landinu á síðasta ári var notaður til að styðja við bakið á hryðjuverkamönnunum sem ætluðu að sprengja upp tíu farþega- þotur á leið frá Bretlandi til Bandaríkj- anna. Þetta kom fram í frétt banda- ríska dagblaðsins Washington Post í gær. Blaðið hefur eftir pakistönskum embættismanni að þeir sem gáfu féð í Bretlandi hafi ekki vitað að það myndi renna til hryðjuverkamanna. Blaðið heldur því fram að helmingur fjárins sem átti að nota í neyðarað- stoð til bágstaddra eftir hina miklu jarðskjálfta á síðasta ári hafi runnið til skipulagningar á hryðjuverkaárás- inni sem bresk yfirvöld komu upp um í síðustu viku. Að sögn blaðsins hófu bresk yfir- völd að rannsaka neyðaraðstoðarsjóð- inn í desember á síðasta ári. Embætt- ismennirnir sem Washington Post talaði við vildu ekki gefa upp hvaða sjóð væri um að ræða en á mánudag hélt dagblaðið New York Times því framaðrannsóknináhryðjuverkaárás- inni beindist meðal annars að Jamaat- ud-Dawa, en það er hjálparsjóður sem er sagður hafa tengsl við Lashkar-i- Taiba, hryðjuverkahóp íslamskra að- skilnaðarsinna í Kasmír-héraði.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.