blaðið - 16.08.2006, Blaðsíða 4
4IFRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 blaöiö
Nauðganir á skemmtistöðum:
Nærri þrjátíu hafa
leitað til Stígamóta
Nauðsynlegt er að auka öryggi
inni á skemmtistöðum til að koma
í veg fyrir nauðganir að mati
Guðrúnar Jónsdóttur, talskonu
Stígamóta. Alls hafa 29 einstak-
lingar leitað til Stígamóta á undan-
förnum fimm árum eftir að hafa
orðið fyrir kynferðisofbeldi inni á
skemmtistað. Þáhafaþrjár stúlkur
leitað til Stígamóta í sumar eftir að
hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi á
útihátíð. Grunur leikur á að þeim
hafi verið byrluð ólyfjan.
„Við þekkjum þetta vanda-
mál vel og það er full
ástæða til að taka þetta
mjög alvarlega,“ segir Guð-
rún Jónsdóttir, talskona
Stígamóta. Að sögn Guð-
rúnar hafa á bilinu 4 ^
til 10 einstaklingar
leitað til Stígamóta ár-
lega á undanförnum
árum vegna kynferð-
isbrota sem framin
voru á skemmti-
stöðum. Alls voru
S þeim Bendir
inni
Æmk fjoi
iHMl fra
mrnrn c
'WmmsBr SC1T
/mjr
Kynferðisofbeldi
vex Nærri 90
nauðganir og
nauðgunartilraunir
á þessu ári
þeir 29 sem þangað leituðu frá
árinu 2002 til 2005. „Þó að nauðg-
anir séu á ábyrgð þeirra sem
fremja þær þá geta skemmtistaðir
skapað öruggara umhverfi en þeir
gera í dag. Þeir verða að gera sér
grein fyrir þessari hættu.“
Samkvæmt tölum frá Neyðar-
móttöku nauðgana í Fossvogi eru
nauðganir og nauðgunartilraunir
orðnar um 90 talsins á þessu ári.
Bendir allt til þess að nauðgunum
á skemmtistöðum fari
fjölgandi en þær eru nær allar
framdar inni á salernum.
Guðrún bendir þó á að eftir
sem áður séu flestar nauðganir
framdar inni á heimilum eða
um 70% þeirra. „Þetta
hljómar kannski kal-
hæðnislega því heimilin
eiga að veita okkur skjól
og vernd. En það er ein-
faldlega svo að milli 50
til 60% nauðgana eru
framdar af svokölluðum
vinum og kunningjum."
Takmörkun málshöfðunarréttar feðra:
Stjórnarskrárbrot?
„Ég tel þessa þrengingu ekki vera
í samræmi við fyrstu grein barna-
laganna sem segir að allir hafi rétt
á að vita uppruna sinn og þekkja
foreldra sína,” segir Dögg Páls-
dóttir, hæstaréttarlögmaður.
1 gær fjallaði Blaðið um barna-
lögin frá 2003 þar sem málshöfð-
unarréttur feðra er takmarkaður
og eiginmenn geta talist feður ann-
arra manna barna, til dæmis þegar
barn er getið eftir framhjáhald.
„Þegar barnalögin voru til um-
fjöllunar þá stoppaði Alþingi
að opnað yrði
fyrir málshöfð-
unarrétt feðra
og þrengdi við
ófeðruð börn.
Rökstuðning-
urinn var sá
að friðhelgi
fjölskyldunnar
sé þar æðri, þrátt fyrir að hjónin
og aðrir viti sannleikann í málinu,”
segir Dögg.
„Það er athyglisvert að Alþingi
hafi sett þessa þrengingu en Siða-
laganefnd lagði frumvarpið þannig
fram að málshöfðunarrétturinn
væri óskertur. Það væri spennandi
prófmál ef einstaklingur í þessari
stöðu færi í dómsmál. Þá myndi
reyna á hvort þetta ákvæði stæð-
ist mannréttindaákvæði stjórnar-
skrárinnar. Almenn lög þurfa að
standast stjórnarskrána
og á það reynir ekki nema
fyrir dómstólum.”
!| i'm 11
í i
Nýir litir í gallabuxum
Ótrúlegt verð á útsöluvöru í Eddufellil
Eddufelli 2 Bæjarllnd 6
sfmi 557 1730 sími 554 7030
Oplð mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15
Svalalokanir
íslensk framleiðsla
íslensk hönnun
Sérsmiði
www.solskalar.is
solskalar@solskalar.is
Slmi: 554 4300 - Smiöfbóö.10 - 210 Garöabc
LUGGAR J&
ARÐHUSllehf
Frjáls för launafólks:|
Meira er um svik
og svarta vsnnu
■ Erlendir starfsmenn hlunnfarnir ■ Svört atvinna hefur aukist
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
gunnar@bladid.net
Verkalýðsfélag Húsavíkur og ná-
grennis hefur á hverjum tíma hálfan
tug mála í vinnslu er varða erlent
vinnuafl og samskipti þess við íslensk
fyrirtæki. Aðalsteinn Baldursson, for-
maður félagsins, segir að opnun fyrir
frjálsa för launafólks frá nýjum ESB-
ríkjum hafi verið mistök. Svört vinna
hefur aukist og dæmi eru um að fólk
sé að vinna á þriðja hundrað tíma í
mánuði án þess að fá borgað í sam-
ræmi við það.
„Við erum með um fimm mál hér á
hverjum tíma á okkar könnu,“ segir
Aðalsteinn Baldursson, formaður
verkalýðsfélagsins. „Við erum að
elta uppi menn sem við grunum
um að standa ekki rétt að málum
og sjáum til þess að menn fari eftir
lögum og reglum.“
Aðalsteinn segir mörg dæmi þess
að erlendir starfsmenn séu beðnir
um að vinna svart og einnig sé
nokkuð um að fólk sé ráðið til þess að
vinna nær ótakmarkaða vinnu fyrir
fasta greiðslu. „Ég hef séð dæmi af
einstaklingum sem hafa verið með á
fjórða hundrað tíma yfir mánuðinn,“
segir Aðalsteinn. „Við vöruðum
við þessum breytingum sem urðu
fyrsta maí og ég held að flestir séu
búnir að átta sig á þvi að við vorum
að taka á okkur skuldbindingar sem
við ráðum ekkert við nema við fáum
einhvern aðlögunartíma.“
Erfiðara að fylgjast með
Aðalsteinn segir að þessum til-
fellum hafi fjölgað verulega síðan
opnað var fyrir frjálsa för launa-
fólks frá nýjum aðildarríkjum ESB
1. maí síðastliðinn. „Fyrir breyting-
una gátum við líka fylgst betur með
mönnum vegna þess að fyrirtækin
þurftu uppáskrift frá okkur vegna
ráðningar fólks. Nú flæðir þetta
fólk einfaldlega inn í landið og við
verðum ekki varir við það fyrr en
við sjáum einhvern úti á götu sem
við þekkjum ekki.“
Aðalsteinn segir einnig bera á því
að fólk sé tilbúið til þess að koma
inn í landið og vinna á launum sem
eru miklu lægri en lög í landinu
kveða á um. „Þetta gerir það til þess
að komast inn í landið og fá leyfi til
að dvelja hér. Síðan hverfur þetta
fólk til annarra starfa." Hann segir
svarta vinnu einnig hafa aukist. „Ég
fékk nú síðast ábendingu um það í
morgun að einstaklingur var að fal-
ast eftir svartri vinnu. Hún sagði
þessum vinnuveitanda sem hafði
samband við okkur að hún hefði
verið hér í nokkurn tíma og alltaf
unnið svart. Svarta vinnan hefur
ekki minnkað og reynsla okkar
sýnir að hún hafi frekar verið að
aukast.“
Vöruðum við
breytingunni
Aðalsteinn Bald-
ursson, formaður
Verkalýðsfólags
Húsavikur.
Útlendingar borga fyrir
matinn, íslendingar ekki
Aðalsteinn segir lagabreytinguna
þann fyrsta maí hafa verið mistök.
„Við áttum ekki að opna ísland á
þessum ' tímapunkti. Ef menn á
annað borð vildu gera það þá áttu
menn að vinna betur að því að þessir
hlutir yrðu í lagi.“
Aðalsteinn segir að ekki sé verið
að setja út á útlendingana sem
hingað komi til að vinna heldur
verði að undirbúa jarðveginn betur
áður en tekið sé á móti þeim. „Þetta
er eins og að bjóða fólki í veislu og
hafa ekkert til að bjóða upp á. Við
erum sannarlega að sjá undirboð og
fyrirtæki sem nýta sér að geta boðið
upp á léleg laun og aðbúnað," segir
Aðalsteinn. „Það er til dæmis til
skammar að við skulum horfa upp
á það að á ónefndum vinnustöðum
sem hafa ávallt boðið frítt fæði sé
erlenda vinnuaflið látið borga fyrir
matinn á meðan íslendingarnir fái
það áfram frítt. Við þekkjum dæmi
um þetta.“
Launabarátta íslenskra uppfinningamanna:
Myndi fagna auknum
stuðningi við frumkvöðla
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Iðulega þurfa frumkvöðlar að leggja
mikla vinnu og tíma í að koma hug-
myndum sínum í verð og fá oft ekki
umbun fyrr en löngu síðar,” segir Sig-
urður Steingrímsson, verkefnisstjóri
Impru.
I umfjöllun Blaðsins í gær komu
fram kvartanir íslenskra uppfinninga-
manna í þá veru að styrkjaumhverfið
geri ekki ráð fyrir launagreiðslum til
þeirra fyrir vinnu sina og vilja þeir
koma á fót frumkvöðlalaunum.
„Styrkirnir fara eftir eðli verkefnis-
ins og við hvað frumkvöðlarnir eru að
glíma. Þar er gerð rík krafa um nýsköp-
unargildi hugmyndarinnar og skoðað
hvort hún sé líkleg til árangurs,” segir
Sigurður. „Ef frumkvöðlarnir geta
sjálfir leyst hluta undirbúningsvinn-
unnar og sleppt því að kaupa til þess
þjónustu þá getur viðkomandi reiknað
sér það sem laun. Það er engin krafa
Frumkvöðla-
1 starf er tíma-
I og vinnufrekt.
Sigurður
Steingrimsson
Verkefnisstjóri
hjá Impru
borgarsvæðinu. Á tímabili aðstoðaði
Nýsköpunarsjóður í þeim efnum en
sá stuðningur hefur ekki verið fyrir
hendi síðustu árin. Á móti verður að
gera kröfur um að um sé að ræða efni-
legar og arðbærar hugmyndir,” bætir
Sigurðurvið. ESnS—V** 1
um að utanaðkomandi aðilar leysi alla
þætti undirbúningsins.”
„Að mínu mati er aukinn stuðn-
ingur við frumkvöðla á öllum
stigum af hinu góða og
má gera meira af því
að styrkja frum-
kvöðla
höfuð-
STYRKJALEIÐIR IMPRU TIL FRUMKVÖÐLASTARFSEMI
Hvar Upphæð
Átak til atvinnusköpunar Ailt landið 200.000-2.000.000
Styrkir úr byggðaáætlun Landsbyggðin 400.000-600.000
Styrkur til fyrirtækja Allt landið 500.000