blaðið - 22.08.2006, Side 2
Glæsilegt úrval
Sisal og Kókos
Heimilisgólfdúkar
Tilboðsverð
frá kr. 890 á m2
Plastparket
Eik, beiki, hlynur, kirsuber
Tilboðsverð kr. 990 á m2
Fullt verð kr. 1.190 ám2
Stigateppi
Níðsterk og létt í þrifum
KJARAN EHF • SÍÐUMÚU 14 • 108 REYKJAVlK
SlMI 510 5510 • kjaran.ii
OPIÐ VIRKADAGA KL. 8-18.
SMÁAUGLÝSiNGARBLAÐSIN5 m
VANTAR MG HILLUPLASS
blaöið
16 I HEIMILI & HÖNNUN ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2006 blaöið
Viðskiptavinurinn
hannar sjálfur
BoConcept húsgognolínon býður upp ó fjölmorgo möguleiko.
Verslunin Innx selur vörur frá
danska fyrirtækinu BoConcept sem
er eitt hið stærsta á sviði húsgagna-
hönnunar. BoConcept er danskt
merki en reknar eru verslanir í 32
löndum víðs vegar um heiminn.
Fyrsta búðin var opnuð í París árið
1993 og hefur því útrásin verið mikil
á skömmum tíma. Nú eru opnaðar
verslanir mánaðarlega víðs vegar
um heiminn til þess að anna eftir-
spurn, enda BoConcept vörurnar
mjög vinsælar. „Hugmyndafræðin
á bak við BoConcept er flott hönnun
á viðráðanlegu verði“ segir Guðbjart-
ur Guðbjartsson hjá húsgagnaversl-
uninni Innx. „Einn helsti kosturinn
við BoConcept línuna er líka sá að
viðskiptavinurinn hefur mikið að
segja um hönnunina og getur ráðið
miklu um endanlega útkomu vör-
unnar sem hann kaupir. Þannig
er hægt að fara ýmsar leiðir og er
þetta spurning um að sá sem kaupir
vöruna geti mótað hana að mörgu
leyti sjálfur. Við getum t.d. boðið
fólki upp á átta mismunandi gerðir
af fótum undir sófana, fimm eða
tiu mismunandi gerðir af örmum
og eins er fjöldinn allur af fallegum
áklæðum í boði. Það má því segja að
viðskiptavinurinn fái það sem hann
vill sama hvaða stærð og gerð hann
sækist eftir. Það sama má segja um
hillusamstæðurnar svo eitthvað sé
nefnt. Viðskiptavinurinn getur kom-
ið með stærðina á veggnum sem sam-
stæðan á að standa upp við og hún
er hönnuð með tilliti til þess, sem er
auðvitað afar hentugt svo að rýmið
nýtist sem best“ segir Guðbjartur.
Hjá Innx má finna húsgögn úr Bo-
Concept línunni fyrir öll rými heim-
ilisins. Þannig er hægt að skapa sér
fallegt heimili með glæsilegri heild-
armynd á góðu verði.
Á heimasíðunni www.boconcept.
is er að finna forrit sem gerir fólki
kleift að hanna eða teikna innrétt-
ingar í ákveðið rými heimilisins. Þar
er hægt að velja á milli ýmissa hús-
gagna og setja saman á skemmtileg-
an hátt. Fólk getur þannig séð hvern-
ig ákveðin húsgögn koma til með að
líta út á heimilinu áður en ráðist er í
kaupin. Þar er einnig hægt að skipta
um liti á veggjum sem og nýtt gólf-
efni sem sparar miklar pælingar þeg-
ar verið er að ráðast í hönnun eða
endurbætur.
Það er um að gera að kíkja inn hjá
Innx í Faxafeni 8 og sjá hvað er í boði
og fá bæði upplýsingar og ráðlegging-
ar áður en ráðist er í framkvæmdir.
hilda@bladid.net
BYLTING í SVEFNLAUSNUM
FRÍ LEGUGREINING
OG FAGLEG RÁÐGJÖF
Húsgagnavinnustofa RH
Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
m
www.rumgott.is
Rúmgott er leiðandi í þróun
og framleiðslu á heilsudýnum
og rúmbotnum undir vöru-
merkinu EZ-sleep á íslandi.
Við höfum yfir að ráða
fullkomnum tækjabúnaði til
að mæla þrýstijöfnun á líkama
hvers einstaklings sem gerir
okkur kleift að framleiða
svæðaskiptar heilsudýnur
sniðnar að viðkomandi.